Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 39
Helgarblað 29. október–2. nóvember 2015 Kynningarblað - Matur og veitingar 3 Villibráðarhlaðborðið í algleymingi Í Perlunni er lögð áhersla á að elda allt frá grunni É g hef verið þarna meirihlutann af mínu lífi. Byrjaði að snigl- ast hérna um 11 ára gamall. Þá var ég í alls konar snatti. Ég byrjaði síðan í bakaríinu árið 1996, var síðan í ísgerðinni og bara úti um allt,“ segir Stefán Elí Stefánsson, yfirmatreiðslumeistari í Perlunni. Perlan var opnuð árið 1991 og hefur æ síðan notið mik- illa vinsælda sem framúrskarandi veitingastaður í frábæru umhverfi. „Íslenska lambið og íslenski fisk- urinn eru áberandi á sumrin en núna er villibráðarhlaðborðið ný- hafið. Þar er til dæmis hreindýra- kjöt, elgur, dádýr, villigæsabringa og skoskar rjúpur í aðalrétt. Af forrétt- unum má nefna lax, hörpuskeljasal- at, hval, grafið lamb og reykta súlu. Í rauninni væri hægt að skrifa heilt blað um allt það sem við höfum á boðstólum en þetta eru ágæt dæmi um það helsta,“ segir Stefán. Aðspurður hvort hvalurinn njóti vinsælda útlendinga segir Stefán svo vera. „Þeim þykir spennandi að smakka þetta og þetta er einn vin- sælasti forrétturinn.“ Að sögn Stefáns sækja jafnt útlendingar sem Íslendingar veitingastaðinn í Perlunni. Sem fyrr snýst húsið hægt í hringi með- an á borðhaldi stendur og vekur það alltaf jafn mikla lukku. Tekur það tvo klukkutíma að fara heilan hring en Stefán segir það einmitt vera tímann sem góður kvöldverður með öllu taki. Villibráðarhlaðborðið hófst fyr- ir viku og verður í gangi til 18. nóv- ember. Þá tekur við hið sívinsæla jólahlaðborð Perlunnar. Það er því alltaf eitthvað spennandi og girni- legt í gangi. Auk þess að sinna gestum veitingastaðarins býður Perlan upp á margvíslega veitingaþjónustu á staðnum fyrir bæði litla og stóra hópa. Í Perlunni eru haldnar dýr- indis brúðkaups- og afmælisveisl- ur, líka óvenjulegar veislur með til dæmis morgunverðarhlaðborði. Erfidrykkjur eru einnig haldnar í Perlunni og þarna finna ýmsir hóp- ar, til dæmis vinnustaðahópar, sér góðan stað til að lyfta sér upp og efla liðsandann. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.