Skagfirðingabók - 01.01.2008, Page 51

Skagfirðingabók - 01.01.2008, Page 51
MANNSKAÐAVEÐRIÐ Á NÝFUNDNALANDSMIÐUM 1959 aðist máltækið að ekki verður feigum forðað né ófeigum í hel komið. Þegar við komum inn á Flateyri eftir ofsaveðrið var enn bara einn björgunarbátur á skipinu. Hinn lá ennþá brotinn í davíðunum. Ég hafði þá orð á því við skipstjórann að við værum enn bara með annan bátinn. Skipstjóri sagði að einn bátur gæti tekið allan mannskapinn og spurði hvort ég væri hræddur? Ég kvað það ekki skipta máli, en það væri lág- markið að geta bjargað sér frá borði í logni. Þetta varð samt til þess að skipstjóri fékk lánaðan bát áður en við fórum á Grænlandsmið, minni bát sem bundinn var niður á bátadekkið. I það skipti upplýsti skip- stjóri að það væru reyndar til gúmmí- björgunarbátar á skipið, en þeir væru í geymslu á Akureyri. Þessir bátar komu aldrei um borð meðan ég var þar, a.m.k. ekki svo að ég yrði var við. I þessum túr á Vestfjarðamiðum náðum við þokkalegum afla sem landað var á Sauðárkrók. Þá var enn ekki bráðnaður allur ís af skipinu og þurftu karlarnir í löndunargenginu margt að spyrja um þessa löngu og viðburðaríku sjóferð. Síðan fórum við næsta túr til Grænlands, tókum þar eitt hal af stórum en grindhoruðum þorski, trollið var nánast fullt. Það óhapp vildi til að fyrsta stýrimann tók út vegna einhverra mistaka við að taka inn trollið. Hann náðist þó lif- andi seint og um síðir. Annar stýri- maður batt sig í tóg, fór með enda á öðru tógi og batt um stýrimann og voru þeir svo dregnir um borð. Var hann orðinn stífur af kulda og mjög dasaður. Farið var með hann inn í matsal, hann klæddur úr hverri spjör, síðan var hann lagður á annað mat- borðið og nuddaður með grófum handklæðum þar til honum hlýnaði. Hann var svo kominn til vinnu eftir tveggja eða þriggja daga hvíld. Trollið var nú híft um borð. Svo var haldið heim á Vestfjarðamið og veitt þar um veturinn, aflanum land- að ýmist á Sauðárkróki, Húsavík eða Olafsfirði. Eitt sinn er við komum á Ólafsfjörð til löndunar, vorum við ekki byrjaðir að landa er sjó jós upp á örskömmum tíma og braut yfir bryggjuna. Við urðum að leysa land- festar í flýti og forða okkur út úr höfninni. Það var svo lítill gufuþrýst- ingur á vélinni að lengi mátti ekki milli sjá hvort við kæmumst út eða hrektumst upp í sandinn. Við fórum til Sauðárkróks og lönduðum þar, fengum versta veður á leiðinni. Búið var að fara með tóma mjólkurbrúsa út á dekk á Ólafsfirði til að taka mjólk, en í óðagotinu við að komast út úr höfninni á Ólafsfirði gleymdust þeir. Enginn mundi eftir þeim fyrr en einhver í brúnni sá fljótandi mjólkur- brúsa í kjölfarinu. Við þurftum inn á Akureyri í hvert sinn sem landað var til að taka ís og olíu. Annars staðar var þetta ekki af- greitt norðanlands. Einu sinni sem oftar er við vorum búnir að taka ís- inn, þurftum við að færa skipið að olíubryggjunni sem var gömul tré- bryggja. Olíulögnin var fest ofan á bryggjudekkið og dælan á endanum á leiðslunni í smáskýli. Skipið kom á of mikilli ferð og rann langt inn í bryggjuna, sópaði á undan sér olíu- leiðslu og dælu. Eftir á sagði stýri- maður að fúinn í bryggjunni hefði 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Skagfirðingabók

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skagfirðingabók
https://timarit.is/publication/1154

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.