Fréttatíminn - 26.02.2016, Blaðsíða 4
Ekki víst að Benedikt
og Þorsteinn trekki að kjósendur
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segist telja
að ESB málið sé dautt mál í bili. Kjósendur séu ekki
að hugsa um Evrópusambandsmálin og kosningarnar
muni ekki snúast um þau.
„Fyrrverandi kjósendur Samfylkingarinnar, Bjartrar
framtíðar og Sjálfstæðisflokksins gætu farið yfir til Við-
reisnar en það ræðst af fólkinu, þeir þurfa frambæri-
lega kandídata sem höfða til ungs fólks og spennandi
framtíðarsýn,“ segir Stefanía. Hún bendir á að fram-
boðið mælist ekki í skoðanakönnunum, talsmennirnir Benedikt og Þor-
steinn Pálsson njóti virðingar í samfélaginu en það sé alls ekki víst að þeir
trekki að kjósendur þótt þeir fari í framboð.
Stefanía segir þó ekki hægt að afskrifa Viðreisn. Hún verði samt fyrst
og fremst klofningsbrot úr Sjálfstæðisflokknum. Fylgið á miðjunni sé þó á
mikilli hreyfingu og helmingur kjósenda óákveðinn, Samfylkingin í frjálsu
falli, og Björt framtíð nær útdauð. Það sé ekki hægt að útiloka neitt.
Við kvefi og særindum í hálsi
Coldfri munnúði
• Vörn gegn sýklum
• Linar særindi í
hálsi
• Flýtir bata á kvefi
og endurnýjun
slímhimnu í hálsi
fæst í apótekum
Benedikt Jóhannesson segir
að kornið sem fyllti mælinn
hafi verið þegar stjórnar-
flokkarnir ákváðu að svíkja
loforð sitt um að þjóðin
fengi að kjósa um aðildar-
viðræður við ESB. Þeir séu
einfaldlega ekki traustsins
verðir.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Ákvörðunarvaldið í þessu máli á að
liggja hjá þjóðinni. Niðurstaðan verð-
ur mun sterkari ef þjóðin stendur á
bak við hana,“ segir Benedikt.
Hann segir að Viðreisnarflokk-
urinn sé frjálslynt afl sem horfi til
markaðslausna. Það verði að láta af
laumuspili eins og nýjum búvöru-
samningum og sölu aflaheimilda.
Verð fyrir veiðiheimildir eigi að taka
mið af markaðsverði, það eigi að opna
landbúnaðarkerfið, en trappa það
niður í áföngum svo bændur lendi
ekki á vonarvöl. Neytendur verði að
hafa raunverulegt val.
Benedikt segir að Viðreisn leggi
áherslu á að jafna atkvæðisréttinn. Þá
þurfi að hefjast handa við byggingu
nýs Landspítala strax. Og í náttúru-
verndarmálum megi ekki gleymast
að ósnortin náttúra sé líka gríðarlega
verðmæt auðlind.
Margir hafa verið nefndir sem
hugsanlegir frambjóðendur Viðreisn-
ar, auk Benedikts hefur verið rætt um
Hönnu Katrínu Friðriksson, Jórunni
Frímannsdóttur og svo auðvitað Þor-
stein Pálsson og Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur en hún hefur nú stað-
fest að hún hugleiði forsetaframboð.
Hún er flottur frambjóðandi, hvað
sem hún býður sig fram í.
Að fimm karlar færu í framboð til
forseta Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA, var viðbúið. En að
af þeim 205 sem greiða atkvæði séu
aðeins tvær konur segir margt um
kynjahlutföllin þar.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Tölurnar er mjög lýsandi fyrir stöðuna í fót-
boltanum. Þetta er karllægur og íhaldssamur
heimur,“ segir Geir Þorsteinsson, formaður
Knattspyrnusambands Íslands, sem er á leið
til Zürich á aðalfund FIFA. Kosið verður í dag,
föstudag, um arftaka Sepp Blatter, sem gegnt
hefur embætti forseta sambandsins í átján ár.
Blásið var til sérstaks aðalfundar FIFA um
helgina til að bregðast við þeirri stöðu sem
upp er komin eftir að stórfellt misferli og spill-
ing æðstu ráðamanna var afhjúpuð. Fimm
karlmenn gefa kost á sér til forseta FIFA og
hefur Geir lýst stuðningi við Gianni Infantino,
en hann hefur verið framkvæmdastjóri UEFA
frá 2009. Infantino var náinn samstarfsmaður
Platini.
„Staðan er ekkert mikið betri á ársþingi
Knattspyrnusambands Íslands. Þar eru oftast
svona fimm konur meðal rúmlega hundrað
fulltrúa. Engar róttækar breytingar hafa orðið
á þessum málum á Íslandi. Það er hinsvegar
erfitt að greina hvað veldur stöðunni, hvort
hún sé tilkomin vegna þess að konur bjóði sig
ekki fram eða vegna þess að þær eru ekki til-
nefndar í stöðurnar.“
Geir óttast að FIFA muni ekki breyta miklu
í jafnréttismálum í fótboltaheiminum ef
sheikinn Salman Bin Ibrahim Al-Khalifa sigrar
í kjörinu en Geir telur hann sigurstranglegast-
an. „Það þarf ekki annað en að skoða hvernig
knattspyrnumálum kvenna er háttað í araba-
heiminum. Á þessu landsvæði eru jafnréttis-
mál öldum á eftir okkur.“
Er kominn tími á konu sem formann Knatt-
spyrnusambands Íslands? „Já, ætli það gerist
ekki bráðum?
Stjórnmál ESB svikin voru kornið sem fyllti mælinn
Viðreisn ætlar í
framboð til Alþingis
Benedikt Jóhannesson segir að það þurfi að láta af laumuspili
eins og búvörusamningi og samningum við útgerðarmenn.
Mynd | Hari
Stefanía
Óskarsdóttir.
Knattspyrna Karlaheimur Alþjóða knattspyrnusmbandsins lætur ekki að sér hæða
205 karlar og tvær konur kjósa arftaka Blatter
Fimm karlmenn gefa kost á sér til forseta
FIFA og hefur Geir Þorsteinsson lýst stuðn-
ingi við Gianni Infantino, en hann hefur
verið framkvæmdastjóri UEFA frá 2009.
Hlín Einarsdóttir sem er til rann-
sóknar hjá lögreglu eftir að hafa
reynt að fjárkúga Sigmund Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra í
maí í fyrra hefur verið ráðinn rit-
stjóri Sykur.is.
Gengið var frá ráðningunni í
síðustu viku en Hlín hóf störf sem
blaðamaður á vefmiðlinum í des-
ember. „Ég er einstæð móðir og
fjölmiðlakona, ég hef starfað við
þetta í mörg ár,“ segir Hlín þegar
hún er spurð hvort hún hafi fengið
einhver viðbrögð við ráðningunni
í ljósi þess að hún hefur verið
mikið í fréttum vegna fjárkúgun-
armálsins. „Ég þarf að lifa eins og
aðrir og vinn tvöfalda vinnu, sem
ritstjóri og markaðsstjóri, til að
hafa í mig og á.“
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir,
ritstjóri Kvennablaðsins, sem held-
ur úti vefsíðunni Sykur, segir að
Hlín Einarsdóttir sé frábær starfs-
maður, með ótrúlega reynslu af
dægurmiðlum eins og Sykri. „Það
skiptir mestu máli. Við erum fjöl-
miðill ekki dómstóll,“ segir hún.
Ríkissaksóknari hefur ekki tekið
ákvörðun um það hvort Hlín og
Malín Brand, systir hennar, verði
ákærðar fyrir tilraunir til fjárkúg-
unar. Systurnar eru einnig grun-
aðar um að hafa sakað mann um
nauðgun og kúgað af honum 700
þúsund krónur. þká
Sakamál Ekki enn ákært í fjárkúgunarmálinu
Hlín er ritstjóri vefmiðils
Hlín Einarsdóttir.
Tvö fyrirtæki sem
heita Gamma kaupa
og selja fasteignir á
Íslandi. Gamma ehf
er eignarhaldsfélag
um hótelrekstur og
fjárfestingar, stofnað
fyrir meira en áratug og er
með fyrirtækjanafnið Gamma.
Hitt fyrirtækið, Gamma Capital
Managment, er öllu umsvifa-
meira fjármálafyrirtæki og
er með um 60 milljarða í
fjárstýringu fyrir lífeyris-
sjóði, tryggingafélög og
banka. Tveir sjóðir á vegum
Gamma, kaupa og selja fast-
eignir.
Hannes Hilm-
arsson, stjórnar-
formaður Gamma
ehf, segir þetta
óheppilegt. Fyrir-
tækið líti svo á að það
eigi nafnið og muni
jafnvel kanna réttar-
stöðu sína. Stjórnendur
Gamma Capital, sem var
stofnað árið 2008, segja að
það sé engin leið að ruglast á
starfsemi fjármálafyrirtækis
og eignarhaldsfélags, það
séu sjóðir fyrirtækisins sem
hafi fjárfest í húsnæði og það
sé því engin hætta á að þeim
verði ruglað saman. | þká
Gammar í hár saman
Smári McCarthy segist ekki
halda að hreyfing Pírata sé
að klofna, þetta sé ekki mjög
djúpstæður ágreiningur
í raun, einungis vaxtar-
verkir þótt upphrópanir og
æsingur fylgi umræðunni.
Smári McCarthy, einn stofnenda
Pírata, segist þeirrar skoðunar
að enginn þingmaður ætti
að sitja lengur en tvö kjör-
tímabil á þingi. Meirihluti
þingsins ætti í rauninni að
fara og taka þátt í samfé-
laginu. Hann segir að þar
sem engar reglur séu um
það, sé ósanngjarnt að Birgitta
Jónsdóttir ætti að víkja frekar en
aðrir. Hann segist telja að reynsla
Birgittu muni nýtast Pírötum vel.
Smári, sem er búsettur í Bosníu
og vinnur um alla Austur-Evrópu
og Mið-Asíu, segir líklegt að hann
muni gefa kost á sér til setu á Al-
þingi, en íslensk stjórnmál freisti
hans þó álíka mikið og farsótt í
augnablikinu.
„Ég er í mjög góðri og árangurs-
ríkri vinnu hér úti, og þarf að gera
upp við mig fljótlega hvort ég fórni
þeirri vinnu í veikri von um að
geta hjálpað við að koma ís-
lenskum stjórnmálum í
betri farveg.“
Varðandi ágreining um
stjórnarskrármálið segir
Smári að Píratar hafi tek-
ið mjög sterka afstöðu með
þeirri stjórnarskrá sem Íslend-
ingar hafa þegar samþykkt í þjóðar-
atkvæðagreiðslu. „Við höfum ein-
sett okkur að koma henni í gegn.
Núverandi ríkisstjórn hefur einsett
sér að vanvirða vilja almennings.
Þannig að það er ljóst að nýja stjórn-
arskráin fari ekki í gegn á þessu
kjörtímabili. Píratar hafa þá tvo
valkosti. Að vera með uppsteyt og
mótlæti við jafnvel jákvæðum breyt-
ingum í millitíðinni, eða að reyna að
vinna að jákvæðum endurbótum.
Ég hallast að síðari nálguninni. | þká
Smári segist telja að enginn
eigi að sitja lengur en tvö kjör-
tímabil á þingi.
Stjórnmál Einn stofnenda Pírata telur ágreining ekki djúpstæðan
Hreyfingin ekki að klofna
4 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016