Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 26.02.2016, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 26.02.2016, Blaðsíða 40
Nolan var ráðinn til hugbúnaðar- fyrirtækisins Hugvits GoPro. Litla dóttir þeirra, hún Olivia, samein- aði fjölskyldurnar og batt þau öll saman. Synir Nolans héldu áfram að búa hjá móður sinni í London en koma reglulega til Íslands í frí. Aldrei verið atvinnulaus áður Nolan er opinskár og ófeiminn og gekk vel að aðlagast á Íslandi. Hans sérsvið hefur verið að fyrir- byggja og rannsaka efnahagsbrot, innherjasvik og peningaþvætti sem og aðra rekstraráhættu. Eftir eitt og hálft ár hjá GoPro bauðst honum ný staða hjá Credit Info, þar sem tækifæri fólust í samruna tveggja fyrirtækja. Nolan átti að leiða það verkefni en þegar á leið varð ekkert af samruna fyrirtækj- anna og Nolan endaði atvinnulaus í fyrsta sinn í áratugi. „Það var alveg ný staða að þurfa að leita mér að vinnu. Ég hafði alltaf haft nóg að gera.“ „Flest fyrirtækin sem hann leit- aði til voru uppnumin yfir starfs- ferli hans en á einhvern hátt þótti reynsla hans sérhæfð og fram- andi,“ segir Þóra. „Ég myndi ekki segja að ég væri mjög sérhæfður en ég komst að því að það er ekki algengt hjá íslenskum fyrirtækjum að vinna með fyrirbyggjandi hætti gegn fjársvikum. Mögulega er það við- kvæmt í litlu samfélagi. Fyrirtæk- in voru ekki með forvarnarstefnu eða viðbragðsáætlun í þessum málum og voru rög við að sýna starfsmönnum sínum tortryggni með því að leita sér þekkingar um fjársvik,“ segir Nolan. „En málið er að fyrirtæki og stofnanir verða að hafa fyrir- byggjandi stefnu svo þau þurfi ekki að kynnast vandamálinu af eigin raun. Þau þurfa að hafa verklagsreglur og eftirlit í lagi. Mín nálgun er því alltaf að hvetja til fyrirbyggjandi úrræða.“ Stefið er kunnuglegt úr um- ræðunni um efnahagsglæpina sem framdir voru í aðdraganda bankahrunsins, þegar inn- herjaviðskipti voru stór hluti af vandamálinu. Og það hljómar kaldhæðnislega að maður með sérfræðikunnáttu í rannsóknum fjárglæpum hafi ekki fengið vinnu á Íslandi eftir bankahrun. Í atvinnuleitinni rak Nolan sig á að fyrirtækin væru rög við að ráða hann vegna þess að hann tal- aði litla íslensku. „Og hann fékk nokkrum sinnum að heyra það, að honum hefði boðist starfið ef hann bara talaði málið. Samt fara nú samskipti fólks hjá stórum fyrirtækjum oft fram á ensku,“ segir Þóra. Aðspurður um hvort litarháttur hans gæti mögulega hafa verið hindrun í atvinnuleitinni, kemur hik á Nolan. „Ég þori ekki að full- yrða um það því litur og uppruni fólks ætti auðvitað ekki að hafa nein áhrif á það hvort það fær að iðka það fag sem það hefur sér- hæft sig í.“ Þóra bætir við að Nolan hafi þó fengið nokkrar undarlegar athugasemdir um litarhaft sitt. „Einn maður sem hann fundaði með fullyrti að hann teldi hann sennilega vera hæst setta svarta einstaklinginn á Íslandi.“ „Ég get samt ekki sagt að litar- haftið sé sérstök hindrun því ég hef líka kynnst írskum manni sem var að glíma við samskonar vandamál og ég á íslenskum vinnumarkaði. Mín upplifun er að útlendingar séu kannski framandi og að hindranirnar fyrir að ráða þá til starfa séu frekar af menn- ingarlegum ástæðum en vegna litarháttar.“ Nolan telur þó að slík viðhorf séu á algjöru undanhaldi og mögulega algengari hjá eldri kynslóðinni. Yngra fólk hafi í rík- ari mæli haft tækifæri á að stunda nám og vinnu í útlöndum og þar af leiðandi kynnst fólki úr ólíkum menningarheimum. Stórundarleg meðganga En þó atvinnuleitin gengi hægar fyrir sig en hann hafði vonað, þá var margt til að gleðjast yfir. Þau Þóra höfðu rætt um að það gæti verið gaman að eignast annað barn saman. Dóttir þeirra var komin á annað aldursár og hjónin ákváðu að reyna að eignast eitt í viðbót og þar af leiðandi sjötta barnið í fjölskyldunni. Þá ættu þau öll eitt alsystkini og það væri gott fyrir Oliviu að alast upp með barni á svipuðum aldri. „Það tók ekki langan tíma áður en Þóra varð ólétt aftur. Við urðum auðvitað himinlifandi. Hún sagði reyndar strax að það væri eitthvað óvenjulegt við þessa meðgöngu,“ segir Nolan. Þóra glottir og útskýrir að morgunógleðin og syfjan hafi verið margföld á við það sem hún upplifði á fyrri meðgöngum. Þegar hjónin fóru að hitta fæð- ingalækni til að fara í snemm- sónar, tók ung kona á móti þeim sem var að þreyta frumraun sína í sónarmyndatöku. Sú var undar- leg á svipinn þegar hún skoðaði Þóru og ákvað að kalla á sérfræð- ing til að athuga hvort það gæti mögulega verið að börnin væru tvö. Þóru og Nolan var eðlilega Ástin Þóra, Nolan og börn mynda tíu manna fjölskyldu Eignuðust fjögur börn á þremur árum Þóra og Nolan ásamt dætrum Þóru, þeim Birtu Maríu og Júlíu Ósk og þríburunum, Leó, Ísabellu og Lorenzo. Á myndina vantar syni Nolans, þá Jordan og Dylan en þeir búa í London. Synir Nolans, þeir Dylan 14 ára og Jordan sem er 18 ára, ásamt Oliviu litlu systur. Mynd | Hari Þegar bankastarfsmenn- irnir Þóra Leifsdóttir og Nolan Williams hittust á bar í London fyrir fimm árum voru þau bæði fráskilin með tvö börn. Bankahrunið hafði tekið sinn toll og hremmingar í einkalífinu gáfu ekki tilefni til mikillar bjartsýni. Í dag eiga þau saman fjögur börn og njóta hverrar stundar eftir kúvendinguna sem líf þeirra tók þetta örlagaríka kvöld. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Nolan Lorenzo Williams hafði unnið hjá Goldman Sachs bank- anum í London í sextán ár en handan við hornið voru skrif- stofur Landsbankans, þar sem Þóra Leifsdóttir var starfsmaður. Þau höfðu aldrei hist fyrr en ósköp hversdagslegt kvöld fyrir fimm árum þegar þau álpuðust óvart inn á sama bar í hverfinu. „Ég var ekki á leiðinni í sam- band og reyndi að hrista hann af mér,“ segir Þóra en tilraunir hennar báru bersýnilega ekki ár- angur. „Ég gerði honum það ljóst að ég væri með algjöran pakka á bakinu, væri nýskilin og ætti tvö börn. Honum fannst það nú ekki mikið mál,“ segir hún og Nolan hlær. Þóra fullyrðir að eftir fyrstu kynnin hafi hún ákveðið að láta hann eiga sig, hún þyrfti að jafna sig eftir sambandsslitin og ekkert vera að líta í kringum sig. Hún hafði búið með fyrrum sambýlis- manni sínum í 12 ár og átti með honum dæturnar Birtu Maríu og Júlíu Ósk. Sambandinu lauk skyndilega og við það varð mikil óvissa með hvernig framhaldið yrði þarna úti í London. „Mánuði síðar varð ég samt svo forvitin að ég sendi Nolan skila- boð. Við hittumst aftur og höfum verið óaðskiljanleg síðan.“ Nolan segir samband þeirra hafa þróast mjög hratt eftir það. „Okkur leið strax vel saman. Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessu og efaðist aldrei um að lífið væri að taka rétta stefnu. Maður finnur það svo sterkt þegar eitt- hvað er rétt. Eitt leiddi að öðru og skömmu síðar vorum við farin að búa saman,“ segir hann. Ástin var kærkomin Nolan hafði flutt frá Karíbahafinu til London 20 árum áður til þess að spila sem atvinnumaður í krik- ket. Hann eignaðist síðan dreng- ina Dylan og Jordan með fyrri eiginkonu sinni. Áður en hann flutti til London vann hann sem lögreglumaður í Karíbahafinu og við það kviknaði áhugi hans á rannsóknum. Áhuginn þróaðist þegar hann fetaði sig inn í banka- geirann en þá voru það efnahags- brot og fjársvik sem hann eltist við að uppræta. Þóra vann hjá Landsbankanum í London á sviði útlánaeftirlits og áhættustýringar. Eftir hrunið urðu talsverðar breytingar á vinnuhögum hennar. Bankinn var tekinn yfir af ríkinu en hún starf- aði áfram fyrir slitastjórnina. Ástin var kærkomin inn í líf Þóru og Nolans og það var mikið gleðiefni þegar þau komust að því að þau ættu von á barni. Eftir stutt samband voru þau trúlofuð og héldu til Íslands til að giftast. „Í Íslandsferðinni fór Nolan í at- vinnuviðtal og var boðin vinna,“ segir Þóra. Nýgiftu hjónin voru full bjartsýni og létu verða af því að flytja til Íslands aðeins mán- uði síðar. Þóra starfaði áfram fyrir slitastjórn Landsbankans en 40 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.