Fréttatíminn - 26.02.2016, Blaðsíða 32
„Dauði eða andlát eru endalok virkrar starfsemi lif-
andi veru,“ segir skilgreining wikipediu á fyrirbærinu.
Eftir því sem árum fjölgar og reynslan af virkri tilvist,
lífi, bætist í sarpinn þá hvarflar hugur okkar flestra á
stundum að endalokunum. Eða eru það endalok? Ég
heyrði af „endalokum“ einnar mannveru um daginn.
„Ljósið“ slokknaði óforvarandis við dagleg störf. Var
á „besta“ aldri. Hafði verið heil og væn mannvera
sem gaf ríkulega til alls lifandi í kring. Óvænt. Áfall
fyrir ástvini og aðra nákomna. „Ljósið“ var hluti af
samfélagi „ljósa“ í sveitarfélagi úti á landi.
„...þegar allt kemur til alls er það skilningur
okkar á dauðanum sem ákveður svörin við öllum
þeim spurningum sem lífið leggur fyrir okkur.
Af þessu leiðir nauðsyn þess að búa sig undir
hann.“ Þessi orð eru höfð eftir Dag Hammar-
skjöld. Dag var sænskur hagfræðingur og
diplómat sem gegndi síðustu ár ævi sinnar
starfi framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna. Hann lést í flugslysi árið 1961,
aðeins 54 ára. Hann var á leiðinni að
„miðla málum“ í deilum í Norður-
Ródesíu, nú Zambíu. Flestir eru á
því að „ljós“ hans hafi verið skotið
niður ásamt fimmtán öðrum sem
voru um borð í Douglas DC-6 vélinni.
Ljós Dags var andlegt og fallegt, menn
eru almennt sammála um að hann hafi
verið harmdauði fyrir heiminn. Ljós hans
slokknaði við dagleg störf. Daglega þjón-
ustu við aðra.
Á þeim árum sem ég starfaði fyrir Sameinuðu þjóð-
irnar minnist ég þess hversu mikil áhersla var lögð á
það hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) að bæta
fremur lífi við árin en árum við lífið. Að „ljósið“ megi
lýsa sem best á meðan logar. Að hvetja „eldinn“ svo
bruni hans megi leiða gott eitt af sér á meðan tírir.
Deildinni, sem hafði með áhrifaþætti „ljóssins“ að
gera, var á þeim árum stýrt af auðmjúkum og góðum
íslenskum manni, Guðjóni Magnússyni. Hann,
líkt og Dag, var í þjónustustörfum fyrir
okkur öll.
„Ljósin“ okkar eru einungis hverfulir
neistar af sama báli. Hvernig eldstæði
okkur er valið er ekki okkar val en hvað
við setjum á eld okkar, hvernig við rækt-
um hann og hvert við beinum honum
er á okkar valdi. Hvernig við þjónustum
bálið. Hann logar, heimsloginn.
Utan hringsins
Héðinn Unnsteinsson
Dauðinn
Myrkur í ljósi
Tilfinningin tær sem lind
tendrar glóð í hjarta.
Hugi hvatur málar mynd
af mannúð heimsins; bjarta.
Ef lifað er með ljósri brá
og löngun góðra verka,
snúast syndir þrungnar þrá
þvert í dyggðir sterkar.
Dauðinn hvata lífi ljær
og leggur drög að tilvist.
Í ljósri dimmu lífið grær
í myrkur dagsins þyrstir. (hu)
Lyftan #7
Spessi
Birgitta Jónsdóttir er stödd í lyftunni
hans Spessa, ljósmyndara í gömlu
Kassagerðinni. Á ferðalaginu upp
fjórar hæðir hússins segir Birgitta
frá þeim lægðum sem hún upplifði í
kjölfar hvarfa á eiginmanni sínum,
föður og föðursystur. Trúin á að erf-
iðleikar styrki manninn gerði henni
kleift að upplifa sínar hæstu hæðir.
„Þeir eru margir botnarnir í mínu
lífi. Ætli sá dýpsti hafi ekki verið
þegar pabbi lét sig hverfa árið 1987
og fannst aldrei. Sú óvissa var skelfi-
lega erfið og hræðilegt að horfa upp
á fjölskylduna sína ganga í gegnum
slíkt.“ Í gegnum tíðina hefur Birgitta
upplifað þrjú mannshvörf og var
það fyrsta þegar Birgitta var 12 ára.
„Systir pabba fór fram af bryggju í
bifreið og drukknaði. Það var um-
fangsmikil leit sem reyndist mar-
tröð.“
„Ég varð að trúa því að ef lægð-
irnar dræpu mig ekki þá styrktu þær
mig, þá helst þegar ég upplifði þriðja
mannshvarfið.“ Eiginmaður Birgittu
hvarf sporlaust árið 1993 á Snæfells-
nesi og fannst lík hans fimm árum
síðar. „Við vorum að ganga í gegnum
skilnað á þessum tíma og ég upplifði
mikla sektarkennd. Leitin að honum
var sú umfangsmesta í sögunni.“
Í gegnum allt hefur Birgittu alltaf
tekist að finna jákvæðan vendipunkt
í lífinu. „Ég var heppin með félags-
skap sem kynnti mig fyrir reynslu-
sporunum 12 fyrir meðvirka. Eitt
það dýrmætasta sem mér hefur
hlotnast er eiginleikinn að geta sett
mig í spor annarra.“ Birgitta segir
toppinn á tilverunni vera augna-
blikin þegar hún upplifir skilyrðis-
lausa hamingju. „Augnablikið þegar
þú getur horft á tré og séð töfrana í
því, þá er ég á toppi tilverunnar. Að
sjá fegurðina í hversdagsleikanum
og finna að maður lifir í núinu, ham-
ingjusamur óháð öðrum.“
„Ég varð að trúa því að ef lægðirnar dræpu mig ekki þá styrktu þær
mig, þá helst þegar ég upplifði þriðja mannshvarfið.“
Þrjú sporlaus mannshvörf
32 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
Tangarhöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 533 1020 • aman@aman.is
Við erum fluttir í nýtt og glæsilegt húsnæði
að Tangarhöfða 2, 110 Reykjavík.
Hlökkum til að sjá þig.
Áman – víngerðarverslunin þín!
www.aman.is
Áman flytur!
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Drive ryksuga í bílskúrinn
• 1200W
• 20 lítra
• sogkraftur > 16KPA
• fjöldi fylgihluta
7.590
6.990
Spandy heimilisryksugan
• 1600W
• mikill sogkraftur > 18KPA
• Hepa filter
• margnota poki
Spandy 1200W Cyclone
heimilsryksuga
10.890
Spandy pokalaus 500w
heimilsryksuga
6.990
Ryksugur!
FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í DAG?
HAFÐU ÞÁ SAMBAND VIÐ DREIFING@FRETTATIMINN.IS