Fréttatíminn - 26.02.2016, Blaðsíða 61
Ég | er búinn að vera að horfa á
aðra þáttaröðina af Broadch-
urch, þeir eru æðislegir. Svo
horfi ég á sakamálaþættina
Happy Valley.
Ég horfi reyndar á allt
mögulegt og mikið á heim-
ildarmyndir, er algjör alæta
á efni eftir því í hvaða fílingi
ég er.
| 61fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
Sófakartaflan
Ólafur Darri Ólafsson
Ólafur Darri mælir
með sakamálaþáttum
Ólafur Darri Ólafsson, stjarna
sakamálaþáttanna Ófærðar.
Fílalagið
Alvarpið á Nútímanum. Hlaðvarp
vikunnar er Fílalagið í stjórn grínist-
ans Bergs Ebba og tónlistarmanns-
ins Snorra Helgasonar. Félagarnir
taka eitt lag fyrir í hverjum þætti og
ræða í allt að klukkustund, hljómar
sem kvöð en þeim tekst að gera að
frábærri skemmtun. Hlið við hlið
með Frikka Dór, Killing in the Name
og Er líða fer að jólum eru dæmi
um lög sem tvíeykið tekur fyrir og
brýtur til mergjar.
Hvað er gott í bíó?
Bíó Paradís. Ekki missa af bíómyndinni Idol sem nú er sýnd á Stockfish-kvik-
myndahátíðinni. Ungur palestínskur strákur flýr af Gaza-svæðinu til að taka þátt í
arabíska Idolinu. Sjá nánar bls. 64.
Bróðir í
bróður stað
SkjárEinn Brothers, laugardaginn 27.
febrúar kl. 21.55. Bíómyndin Brot-
hers er endurgerð myndar hinnar
dönsku Susanne Bier, Brødre. Þegar
ungur maður fer í herþjónustu til
Afganistan verður bróðir hans eftir
hjá konu hans og börnum. Hvað
gerist þegar hann snýr aftur heim úr
stríðinu og bróðir hans hefur tekið
hans stöðu í fjölskyldunni?
Frumhvöt manns-
ins að matreiða
Netflix Íslandsvinurinn og matar-
fræðingurinn Michael Pollan er
mörgum kunnur fyrir umfjöllun
sína um matarmenningu. Nú hefur
Netflix framleitt nýja þætti þar sem
Pollan rannsakar þessa, að því er
virðist eðlislægu, hvöt mannsins að
matreiða fæðuna okkar. Þættirnir
Cooked eru fjórir og er þemað í
hverjum þeirra eitt frumaflanna
fjögurra: Eldur, vatn, loft og jörð.
Kaffitár óskar Tryggva Þór Skarphéðinssyni innilega til hamingju með sigurinn
á Íslandsmóti kaffibarþjóna 2016. Auk þess óskum við honum til hamingju með
árangurinn fyrir að eiga besta expressóinn og besta frjálsa drykkinn á mótinu.
Við erum stolt af því að Tryggvi Þór verður fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti
kaffibarþjóna á Írlandi í sumar og óskum við honum góðs gengis.
Kaffitár þakkar keppendum Kaffitárs, þeim Guðjóni Andra, Tryggva Þór og Jóni
Axel sem og öðru starfsfólki fyrir frábær störf þar sem þau leggja heiminn að
vörum landsmanna á degi hverjum.
Fáðu Þér Kaffitár í notalegu umhverfi
hjá landsins bestu kaffibarþjónum.
kaffitar.is
Íslandsmeistari!
Bankastræti • Borgartúni • Kringlunni • Smáralind
Reykjanesbæ • Safnahúsinu • Þjóðminjasafni
ÞÚ FINNUR OKKUR Í:
Guðjón Andri, Tryggvi Þór og Jón Axel