Fréttatíminn - 26.02.2016, Blaðsíða 93
n Ef móðirin, fermingarbarnið
eða einhver annar í fjölskyldunni
ætlar að fara í litun, plokkun,
brúnkusprautun eða annað í þeim
dúr er gott að hafa í huga að gera
það ekki sama dag og myndatak-
an á sér stað. Stundum þarf litur
og brúnkukrem að jafna sig.
n Munið eftir að gera ráð
fyrir birtuskilyrðum, myndir sem
teknar eru í dagsbirtu eru alltaf
skemmtilegastar. Ef myndatakan
fer fram snemma árs þarf að gera
ráð fyrir að það byrji snemma
að dimma og seint að birta. Eftir
því sem líður að vori þá fjölgar
klukkustundum sem hægt er að
taka fallegar myndir úti.
n Veljið frekar hlutlaus föt til
þess að klæðast í myndatökunni
til þess að myndirnar standi af
sér tískubylgjur. Eða ekki… Það
væri nú líka ansi sniðugt að allir í
fjölskyldunni myndu vera til fara
nákvæmlega eins og er móðins
á því augnabliki sem myndirnar
eru teknar og á ýktan hátt jafnvel.
Fanga þannig tíðarandann og búa
til ódauðlega heimild. Þetta er
allavega hugmynd!
n Finnið ykkur stað sem skiptir
fjölskylduna máli – sumarbústaðinn,
einhverja gönguleið, garðinn.
n Reynið að vera eins afslöppuð
og þið getið og búið til heimilis-
lega stemningu. Gefið myndatök-
unni tíma, ekki vera í tímaþröng.
Stress og spenna gerir ekkert fyrir
ykkur. Passið líka að öll séu vel
nærð og vel sofin.
n Munið að leyfa fermingarbarn-
inu að vera miðpunktur mynda-
tökunnar og styðjið það með öll-
um ráðum. Þetta kann að hljóma
eins og versti hégómi en þessar
myndir eiga eftir að hanga uppi á
vegg um aldur og ævi.
Gott að muna
fyrir myndatökuna
Fermingarmyndatökur standast
tímans tönn – tja, það er ekki víst
að allir séu sammála þeirri stað-
hæfingu en flest fermingarbörn fara
engu að síður í myndatöku hjá ljós-
myndara. Stúdíómyndatökur með
fjölskyldunni voru eitt sinn stand-
ard og síðar var áhugamáli barns-
ins oft bætt inn í myndatökuna
– körfubolta, skautum, ballerínu-
skóm eða fiðlu, til dæmis. Í seinni
tíð hafa myndatökur orðið frjálslegri
og margir nýtt umhverfið og nátt-
úruna til þess að gera myndatökuna
skemmtilega auk þess sem stúdíó-
myndatökurnar halda alltaf velli.
|21fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
Fermingar
commaIceland
Smáralind
FERMINGAR
FALLEGT, FÁGAÐ, TÖFF
OG ALLT FULLT AF KJÓLUM
Lífrænt vottað og
vegan brúnkukrem
– náttúrulega
Sölustaðir: Hagkaup Skeifunni– heimkaups.is - apótek – heilsuverslanir