Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 26.02.2016, Page 93

Fréttatíminn - 26.02.2016, Page 93
n Ef móðirin, fermingarbarnið eða einhver annar í fjölskyldunni ætlar að fara í litun, plokkun, brúnkusprautun eða annað í þeim dúr er gott að hafa í huga að gera það ekki sama dag og myndatak- an á sér stað. Stundum þarf litur og brúnkukrem að jafna sig. n Munið eftir að gera ráð fyrir birtuskilyrðum, myndir sem teknar eru í dagsbirtu eru alltaf skemmtilegastar. Ef myndatakan fer fram snemma árs þarf að gera ráð fyrir að það byrji snemma að dimma og seint að birta. Eftir því sem líður að vori þá fjölgar klukkustundum sem hægt er að taka fallegar myndir úti. n Veljið frekar hlutlaus föt til þess að klæðast í myndatökunni til þess að myndirnar standi af sér tískubylgjur. Eða ekki… Það væri nú líka ansi sniðugt að allir í fjölskyldunni myndu vera til fara nákvæmlega eins og er móðins á því augnabliki sem myndirnar eru teknar og á ýktan hátt jafnvel. Fanga þannig tíðarandann og búa til ódauðlega heimild. Þetta er allavega hugmynd! n Finnið ykkur stað sem skiptir fjölskylduna máli – sumarbústaðinn, einhverja gönguleið, garðinn. n Reynið að vera eins afslöppuð og þið getið og búið til heimilis- lega stemningu. Gefið myndatök- unni tíma, ekki vera í tímaþröng. Stress og spenna gerir ekkert fyrir ykkur. Passið líka að öll séu vel nærð og vel sofin. n Munið að leyfa fermingarbarn- inu að vera miðpunktur mynda- tökunnar og styðjið það með öll- um ráðum. Þetta kann að hljóma eins og versti hégómi en þessar myndir eiga eftir að hanga uppi á vegg um aldur og ævi. Gott að muna fyrir myndatökuna Fermingarmyndatökur standast tímans tönn – tja, það er ekki víst að allir séu sammála þeirri stað- hæfingu en flest fermingarbörn fara engu að síður í myndatöku hjá ljós- myndara. Stúdíómyndatökur með fjölskyldunni voru eitt sinn stand- ard og síðar var áhugamáli barns- ins oft bætt inn í myndatökuna – körfubolta, skautum, ballerínu- skóm eða fiðlu, til dæmis. Í seinni tíð hafa myndatökur orðið frjálslegri og margir nýtt umhverfið og nátt- úruna til þess að gera myndatökuna skemmtilega auk þess sem stúdíó- myndatökurnar halda alltaf velli. |21fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016 Fermingar commaIceland Smáralind FERMINGAR FALLEGT, FÁGAÐ, TÖFF OG ALLT FULLT AF KJÓLUM Lífrænt vottað og vegan brúnkukrem – náttúrulega Sölustaðir: Hagkaup Skeifunni– heimkaups.is - apótek – heilsuverslanir

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.