Fréttatíminn - 26.02.2016, Blaðsíða 48
Startaði bíllinn ekki í gang í morgunn?
Traust og fagleg þjónusta.
LITHIUM POWER STARTTÆKI
Það er ekkert mál með Lithium power boost starttækinu.
Fyrirferðalítill og einfaldur í notkun, bjargvættur sem nauðsynlegt er að hafa í bílnum
ef bíllinn verður rafmagnslaus í hlaðinu heima, á afskekktum stað eða bara hvar sem er.
Startar öllum bensín bílum og diesel bílum upp að 2,0 lítra vél, hleður snjallsímann,
ipadinn, fartölvuna og öll tæki með USB tengi. Innbyggt öflugt led ljós.
Straumur út: 5v 2A, 19v 3,5A, 12v 10A, start power 200A, hámark 400A.
Lithium rafhlaðan er 12.000 mAh. (12Ah)
Mynd | Hari Stundum mæta fimm og stundum
fimmtán vinir í hádeginu. Hefð grjóna
punganna hefur haldist í 50 ár.
Hádegisverðarhefð
vinahópsins hefur lifað af
lokanir að minnsta kosti
þriggja veitingahúsa.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
„Við byrjuðum að hittast fyrir
fimmtíu árum þegar við vorum
ungir og miðbærinn lítill og líf-
legur og allir unnu niðri í bæ.
Við byrjuðum á kaffihúsi sem hét
Tröð, færðum okkur svo á Hress-
ingarskálann þegar Tröð lokaði og
síðar á Torfuna, sem þá var og hét.
Nú hittumst við á kaffihúsinu Vík-
inni í Sjóminjasafninu,“ segir Bald-
vin Jónsson, einn úr gömlum vina-
hópi sem kallar sig Félag íslenskra
grjónapunga, eða FÍGP. Stundum
mæta fimm og stundum fimmtán
á Kaffihúsið Víkina í hádeginu.
Hefðin að hittast í hádeginu hefur
haldist í 50 ár og lifað lengur en
kaffihúsin sem þeir hittast á.
Aðspurðir hvað hafi helst verið
rætt síðustu hálfu öldina segja þeir
það lengi vel hafa verið íþrótta-
mennsku og kvenfólk, „en nú
erum við orðnir svo gamlir að
við tölum ekki lengur af neinni
reynslu um þau efni.“
Hópinn segja þeir haldast saman
á því að enginn sé skuldbundinn
til að mæta, þeir geri það bara af
löngun.
Á vegg við hliðina á borði þeirra
félaga á Víkinni hanga myndir af
látnum félögum úr hópnum, þeim
Hermanni Gunnarssyni sjónvarps-
manni og Bergi Guðnasyni lög-
fræðingi.
„Hemmi var svolítið límið í
hópnum og talaði langmest af öll-
um. Nokkrir hérna opnuðu varla
kjaftinn í hádeginu fyrr en hann
féll frá,“ segja vinirnir hlæjandi.
Guðföður hópsins vilja þeir
nefna Axel Sigurðsson póstfull-
trúa, enda hafi hann fundið upp á
nafni hópsins og samið reglur fyrir
hann. Hópurinn átti 50 ára stóraf-
mæli í fyrra, en aðspurðir hvað
hafi verið gert í tilefni þess segjast
þeir nú bara hafa fengið sér desert
eða koníaksglas eftir matinn en
ekki breytt meira út af vananum.
Límið í félagsskapnum segja
þeir þessa góðu, traustu vináttu.
„Vináttan er meira virði en allt
annað í veröldinni, enda eitthvað
sem maður eignast en getur ekki
keypt,“ segir Baldvin Jónsson, einn
úr hópnum. Þetta Félag íslenskra
grjónapunga sé jafnframt ávallt
reiðubúið að aðstoða ef einhver
þeirra þarf á stuðningi að halda.
Grjónapungar
í hálfa öld
Myndir af gengnum félögum
Hemma Gunn og Bergi Guðnasyni
hanga uppi á vegg á Víkinni.
www.thor.is
TÖLVUVERSLUN
ÁRMÚLA 11 - SÍMI 568-1581 ÞÓR HF - UMBOÐSAÐILI EPSON Á ÍSLANDI Í MEIRA EN 30 ÁR
EPSON WORKFORCE PRO WF-6590
EPSON WorkForce Pro eru ölnota skrifstofuprentarar
(fax, skanni, ljósritun, prentun og tölvupóstur).
Nettengdur/þráðlaus prentari með þægilegan
snertiskjá. Þessi nýja útgáfa prentarans prentar allt að
24 síður á mínútu bæði í svörtu og lit (miðað við góða
prentun). Enn stærri prenthylki en áður, allt að
10.þúsund útrentanir á 1 hylki (í svörtu). 500 blaða
skúa fyrir pappír, en hægt að fá 2 skúur til viðbótar!
STÆRRI, HRAÐARI, BETRI!
Einnig til án skanna á kr. 67.500.-
Viðbótar 500 blaða skúa: 30.000.-
EPSON WorkForce Pro er ný kynslóð umhversvænna
bleksprautuprentara sem leysir af hólmi gömlu laserprentarana.
20
ppm*
49.30
0
EPSO
N Wo
rkFor
ce
Pro W
F-562
0DWF
,-
99.50
0
EPSO
N Wo
rkFor
ce
Pro W
F-659
0DWF
,-
EPSON WORKFORCE WF5620
Prentar allt að 20 síður á mínútur og getur prentað
báðum megin á blaðið. Auðvelt að skipta um blek.
Hægt að prenta á umslög og þykkari pappír.
Stormzy spyr hvort
andlit hans sé of svart
fyrir bresku tónlistar
verðlaunin.
Er andlit mitt of svart?
Það hefur valdið miklu
fjaðrafoki að bresku tón-
listarverðlaunin, líkt og
Óskarinn, skortir allan fjöl-
breytileika í tilnefningum.
Brit Awards fóru fram á
miðvikudaginn og voru
aðeins tveir breskir tón-
listarmenn, sem eru ekki
hvítir, tilnefndir.
Það þótti sérstaklega fráleitt
þar sem Grime senan í Lond-
on, tegund af rapptónlist, hefur
rutt sér til rúms á vinsældalist-
um. Rapparar á borð við Skepta,
Stormzy og JME áttu mörg vinsæl-
astu lög ársins. Lady Leshurr töldu
margir að hefði einnig átt mynd-
band ársins skilið en hún var ekki
tilnefnd.
Skipuleggjendur hátíðarinnar
neyddust til að tjá sig um málið
eftir mikla pressu. Þeir lofa meiri
fjölbreytni á næsta ári og kenna
strúktúr hátíðarinnar um, þeir tón-
listarmenn sem eru efst á vinsælda-
listum séu einfaldlega tilnefndir.
Á næsta ári lofa þeir fleiri nýjum
flokkum til þess að auka fjölbreytni.
Stormzy botnar ekkert í þeim
rökum og rappaði „freestyle“ á tón-
leikum í Japan stuttu áður. Hann
spyr: „Er andlitið mitt of svart?“
Því lögin hans trónuðu á öllum vin-
sældalistum og segir hann tómar
lygar að halda að það sé nóg. | sgk
48 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016