Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 26.02.2016, Qupperneq 16

Fréttatíminn - 26.02.2016, Qupperneq 16
Mynd | Hari Alta2 heyrnartækin frá Oticon búa yfir einstakri tækni sem kallast BrainHearingTM. Þessi tækni hjálpar heilanum að vinna betur úr hljóði þannig að þú upplifir það eins eðlilega og hægt er. Með Alta2 heyrnartækjum verður auðveldara fyrir þig að heyra og skilja, hvort heldur sem um lágvært samtal er að ræða eða samræður í krefjandi aðstæðum. Bókaðu tíma í fría heyrnar mælingu Sími 568 6880 www.heyrnartaekni.is Ofurnett - ósýnileg í eyra eða falin á bak við eyra Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta Einstök tækni – frábær hljómgæði Prófaðu þessi heyrnartæki í 7 daga 61% kvenna og 56% karla upp- lifa streituálag Ásta Snorradótt- ir, sérfræðing- ur hjá Vinnu- vernd, segir þónokkrar rannsóknir hafa verið gerðar á upp- lifun Íslend- inga af álagi og þá komi fram að konur upplifa álag sterkar en karlar. Í langtímarann- sókn sem Vinnueftirlitið gerði árið 2012 var fólk spurt hvort það upplifði sig undir miklu eða litlu álagi. Þar kom í ljós að 61% kvenna upplifðu sig undir miklu álagi og 56% karla. Ásta segir mismunandi upplifanir kynjanna af streitu að einhverju leyti tengjast því að konur og karlar stundi ólík störf á vinnumarkaði. Karlar eru frekar í störfum þar sem hætta er á vinnuslysum á meðan konur eru í störfum þar sem er mikið andlegt álag. Hætta á kulnun í starfi er lang- mest í stéttum sem enn í dag eru kallaðar kvennastéttir; í kennslu, heilbrigðisstéttum og öðrum þjónustu- og umönnunar- störfum. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að konur eiga erfið- ara með að samræma atvinnu og fjölskyldulíf en íslenskar mæður vinna 80 til 90 stundir á viku þegar allt er tekið saman en feður um 70 stunda vinnu- viku. Það sama kemur fram í rannsókn sem gerð var á meðal æðstu stjórnenda, karlmenn eru líklegri til að hafa einhvern heima við sem sinnir heimilis- störfunum á meðan konurnar eru líklegri til að eiga maka sem er í jafn krefjandi starfi. Ásta Kristín Andrésdóttir hjúkrunarfræðingur var sýknuð af manndrápi af gáleysi í desember. Aldrei fyrr hefur heilbrigðisstarfs- fólk verið sótt til saka sam- kvæmt hegningarlögum. Ásta byrjaði á Land- spítalanum stuttu eftir að kreppan skall á og segir álagið hafa aukist jafnt og þétt. „Það var svakalegur léttir að fá loks niðurstöðu. Það var bara svo gott að skilja loks hvað hafði gerst. Það er eiginlega hægt að lýsa þessu eins og ég hafi tekið tonn af bakinu á mér og skilið það eftir á gangstéttinni,“ segir Ásta sem hafði lifað í stöðugum ótta í þrjú ár þegar hún var sýknuð af mann- drápi af gáleysi í desember. Ásta var á vakt þann 3. októ- ber árið 2012 þegar sjúklingur á gjörgæsludeild Landspítalans lést. Í ákærunni kom fram að sjúkling- urinn hefði kafnað skömmu eftir að hann var tekinn úr öndunar- vél og að hjúkrunarfræðingnum hafi láðst að tæma loft úr belg barkaraufartúbu þegar tengingu við öndunarvél var skipt út fyrir talventil. Ásta var sýknuð af ákær- unni þar sem ekki þótti sannað að rekja mætti andlátið til mistaka. Álagið ekki metið til sakar Í dómnum var einnig tekið tillit til þess að Ásta hafði unnið erfiða dagvakt á svæfingadeild Land- spítalans og eftir hana hafði hún verið beðin um taka kvöldvakt á gjörgæsludeild. Auk þess kom fram í dómi að á gjörgæsluvakt hafi vantað margt starfsfólk og að vaktin hafi verið „mjög tætt“. Í niðurstöðu dómsins segir meðal annars: „Vinnulag og vinnuhraði sem krafist var af Ástu Kristínu og sundurslitin umönnun hennar með sjúklingnum, sem var vegna mikil álags og undirmönnunar deildarinnar, verður ekki metið henni til sakar.“ „Ég flutti heim frá Danmörku rétt eftir að kreppan skall á og fór að vinna á Landspítalanum. Um leið og ég kom inn þá var sett ráðningarbann þannig að upp- lifði mig sem nýja starfsmann- inn í tvö ár á deildinni. Vaktirnar tóku breytingum með tímanum. Þegar ég byrjaði unnum við þriðju hverju helgi en svo kom niður- skurðurinn og þá vorum við sett á vakt aðra hverja helgi. Það í sjálfu sér er streituvaldandi í svona starfi. Maður var alltaf upptekin og álagið jókst jafn og þétt,“ segir Ásta sem á sama tíma var að hlúa að börnunum sínum og hjóna- bandinu. Kulnun eftir dóminn Rannsóknir sýna að starfsfólk heilbrigðisstofnana er í mikilli hættu á streitu og ýmis verkfæri eru notuð til að koma í veg fyrir að starfsfólk kulni í starfi. Ásta segist hafa verið undir miklu álagi þó hún hafi ekki séð það sjálf á þeim tíma. „Það er svo merki- legt að þó ég hafi lesið fræðin og eigi að þekkja einkenni streitu þá gerði ég mér ekki grein fyrir því hvað álagið var mikið. Ég var sennilega farin að nálgast kulnun en vissi það ekki þá. Það var ekki fyrr en eftir dóminn sem ég upp- lifði kulnun og vildi fara í annað starf. En það voru kannski frekar viðbrögð við atvikinu og tilfinn- ingalegt sjokk.“ Ásta segir alla mjög meðvitaða um gegnsæ samskipti í dag. „Það er svo mikilvægt að samskiptin á milli allra séu góð því það bæði minnkar streitu og öryggi sjúklinga. Spítalinn þarf auðvitað alltaf að manna allar vaktir en við berum sjálf ábyrgð á því hvort við tökum tvöfaldar vaktir eða ekki og ég ákvað eftir atvikið mitt að taka aldrei aftur tvöfalda vakt.“ | hh Álagið jókst jafnt og þétt Ásta Kristín Andrésdóttir hjúkrunarfræðingur. 16 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.