Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 26.02.2016, Síða 20

Fréttatíminn - 26.02.2016, Síða 20
Markaðsvirði hlutafjár HB Granda hækkaði um 13,3 milljarða í fyrra. Fyrir- tækið skilaði 5,1 milljarði í hagnað og af honum ætla eigendurnir að greiða sér 3 milljarða í arð. Saman- lagður hagur þeirra af arð- greiðslum og hækkun hluta- bréfa er 16,3 milljarðar. Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is Eigendur HB Granda ætla að borga sér 3.038 milljón krónur í arð í vor vegna góðrar afkomu fyrirtækisins í fyrra. Þá skilaði HB Grandi 5.133 milljón krónum í hreinan hagnað, um 17 prósent af veltu. Til saman- burðar þá greiddi fyrirtækið um 1.057 milljónir króna í veiðigjöld á síðasta ári. Eigendurnir fá því í arð- greiðslur næstum þrisvar sinnum hærri upphæð en þeir borga til þjóðarinnar sem endurgjald fyrir auðlindina sem fyrirtækið nýtir. Ef þetta dæmi er notað má segja að arðurinn af auðlindinni skiptist í grófum dráttum þannig að þjóðin fær 25 prósent en kvótakóngarnir 75 prósent. Gróði vegna lág gengis krónu En arðgreiðslurnar eru ekki eini mælikvarðinn á hag eigenda sjávar- útvegsfyrirtækja. Í fyrra hækkaði markaðsvirði hlutabréfa í Granda úr 61,6 milljarði króna í 74,9 millj- arða króna. Hækkunin nemur um 13,3 milljörðum króna. Þessi mikla hækkun ræðst af nokkrum þáttum. Ódýr aðgangur að auðlindinni er vissulega einn þeirra, en núverandi stjórnvöld hafa lækkað veiðigjaldið á undan- förnum árum og gefið sterklega í skyn að þau ætli sér alls ekki að hækka þau. Af öðrum ástæðum má nefna lækkun olíuverðs á heims- markaði, hóflegar launahækkanir á atvinnumarkaði, vísi að eigna- bólu vegna innilokunar fjár í fjár- magnshöftum og fleiri slík atriði. En veigamesti þátturinn er lágt gengi íslensku krónunnar, sem hefur ekki aðeins dregið mikinn fjölda ferða- manna til landsins heldur skilað eigendum sjávarútvegsfyrirtækja gríðarlegum hagnaði. Það mætti því kalla stóran hluta af auknum hag kvótakónga gengishagnað, þeir njóta lækkunar gengis krónunnar á sama tíma og lækkunin skerðir hag meginþorra almennings vegna hækkunar á innfluttum vörum. Fimm eiga mest Stærstu hluthafar HB Granda eru fyrirtæki í eigi tveggja systkina- hópa; Kristjájn og Birnu Loftsbarna og Kristínar, Sigríðar og Árna Vil- hjálmsbarna. Hlutur þeirra í gegnum nokkur félög er um 39 prósent. Sam- anlagt munu þau því fá í sinn hlut 1.185 milljónir króna í arð. Hlutdeild þessara fimmmenninga í virðisaukn- ingu hlutafjár HB Granda á síðasta ári er um 5.185 milljónir króna. Sam- anlagður arður og hækkun hlutafjár fimmmenninganna vegna ársins 2015 er því um 6.370 milljónir króna. Það er um 1.275 milljónir króna á mann, að því gefnu að hlutur fimm- menninganna sé jafn; rétt tæplega 3,5 milljón króna á dag. Til samanburðar þá voru laun og launatengd gjöld HB Granda um 8.845 milljónir króna í fyrra. Af því má ætla að tæplega 7 milljarðar króna hafi verið laun. Fimmmenningarnir í eigenda- hópnum högnuðust því sem nemur rúmum 90 prósent af öllum launa- greiðslum til 920 starfsmanna HB Granda. Ef miðað er við allan eig- endahópinn þá nam arður og hækk- un hlutabréfa hans tvisvar sinnum hærri upphæð og einum þriðjungi betur en heildarlaun 920 starfs- manna. Þannig skiptist arðurinn af auð- lindinni milli starfsmanna og eig- enda sjávarútvegsfyrirtækja. Miðað við 2,1 milljarð króna í veiðigjöld og tekjuskatt til ríkisins, 7 milljarða króna til starfsmanna og 16,3 milljarða króna til eigenda má segja að af þessari köku hafi ríkið fengið 8 prósent, starfsmennirnir 28 prósent en eigendurnir 64 pró- sent eða næstum tvö þriðju. Ríkið og starfsfólkið skiptir með sér ein- um þriðjungi. HB Grandi Eigendur fá þreföld veiðigjöld í sinn hlut Einn milljarður til þjóðarinnar en þrír milljarðar til eigenda Árið 2015 hjá HB Granda Ef þetta dæmi er notað má segja að arðurinn af auðlindinni skiptist í grófum dráttum þannig að þjóðin fær 25 prósent en kvótakóngarnir 75 prósent. Golfsettið ferðast frítt! + Skráðu þig í Icelandair Golfers á www.icelandairgolfers.is Aðild að Icelandair Golfers er innifalin fyrir korthafa Premium Icelandair American Express® ÍS L E N S K A S IA .I S IC E 66 19 3 10 /1 3 Veiðgjöld til ríkisins 1.057 milljónir tekjuskattur 1.057 milljónir arður til hluthafa 3.038 milljónir Verðmætaaukning hlutafjár 13.302 milljónir laun og launatengd gjöld 8.845 milljónir Árið 2015 hjá HB Granda Kristján Loftsson, stjórnarformaður HB Granda og einn af helstu eigendum fyrirtækisins, getur búist við að fá um 235 milljónir króna í arð ofan á þann rúma milljarð króna sem eign hans í Granda hækkaði í fyrra. 20 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.