Fréttatíminn - 26.02.2016, Side 24
Frá því að einkafyrirtæki
greiddi þrjá milljarða
króna fyrir stóran hlut í HS
veitum hefur fyrirtækið
greitt svipaða upphæð í
vasa eigenda. Bróðurpartur
upphæðarinnar kemur
til af kaupum HS veitna á
hlutabréfum eigenda sinna,
að stærstum hluta með
milljarða lántökum. Eigend-
urnir komast hjá hundraða
milljóna króna fjármagns-
tekjuskatti með aðferðinni,
samanborið við hefðbundnar
arðgreiðslur. Fullyrt er að
lífeyrissjóðir þrýsti á um
greiðslur út úr fyrirtækinu.
Ingimar Karl Helgason
ritstjorn@frettatiminn.is
HSV eignarhaldsfélag á 34,8 pró-
senta hlut í HS veitum. Heiðar
Guðjónsson fjárfestir er andlit
fyrirtækisins og situr í stjórn HS
veitna. Ásamt honum eiga lífeyr-
issjóðir bróðurpartinn í félaginu,
auk Tryggingamiðstöðvarinnar,
Miranda ehf sem er í eigu einstak-
lings, auk þess sem Íslandsbanki á
þar líka óbeinan hlut, sem og VÍS.
Það var á fyrri hluta ársins 2014
að Reykjanesbær seldi hluta af sinni
eign til HSV. Sama gerði Orkuveita
Reykjavíkur og smærri sveitarfé-
lög voru keypt út. Félagið greiddi
um þrjá milljarða króna fyrir hlut-
inn. Um milljarður króna hefur á
tveimur árum verið greiddur út úr
HS veitum til þessa félags.
Umdeild einkavæðing
Reykjanesbær er stærsti eigandi HS
veitna og á 50,1 prósent hlutafjár.
Hafnarfjarðarbær á um 15 prósent.
Sveitarfélögin hafa fengið greitt í
hlutfalli við eign sína, tvo milljarða
samtals síðustu tvö ár.
HS veitur sjá um rekstur grund-
vallarinnviða á Suðurnesjum.
Tryggja fólki neysluvatn, hitaveitu
og raforku. Það vakti því nokkra at-
hygli þegar fréttist af áformum um
einkavæðingu. Meðal annars í ljósi
laga um vatnsveitur sveitarfélaga
sem kveða á um að tilgangur slíkra
fyrirtækja sé að tryggja aðgang fólks
og fyrirtækja að vatni. Sömuleiðis er
í raforkulögum ákvæði um að opin-
berir aðilar verði að eiga meirihluta
í svona fyrirtæki.
Sagt ganga gegn lögum
Í eigendasamkomulagi sem gert var
samhliða einkavæðingunni er tekið
fram að samþykki 2/3 hluthafa þurfi
við meiriháttar ákvarðanir. Ákvæð-
ið veitir HSV eignarhaldsfélagi því í
reynd neitunarvald um ýmis mál,
þar sem félagið á ríflegan þriðjung.
„Orkustofnun telur þetta fyrirkomu-
lag því ekki samræmast ákvæðum
raforkulaga með hliðsjón af þeirri
samfélagslegu skyldu sem fyrirtækið
hefur,“ sagði í áliti Orkustofnunar.
Almenningseign?
„Með kaupum á eignarhlut í HS
Veitum er stórt skref tekið í átt að
aukinni fjárfestingu lífeyrissjóða
og annarra fagfjárfesta í innviðum
landsins. Aðkoma slíkra aðila tryggir
frekar eign almennings á innviðum
samfélagsins. Það er okkur sönn
ánægja að fá að taka þátt í áfram-
haldandi uppbyggingu félagsins og
traustri þjónustu þess við viðskipta-
vini þess,“ sagði Heiðar Guðjónsson
í fréttatilkynningu til Kauphallar-
innar um einkavæðinguna í febrúar
2014. Ekki verður séð hvernig eign
almennings sé tryggð „enn frekar“
með einkavæðingu á grunnþjón-
ustufyrirtæki sem er einrátt á starfs-
svæði sínu, til fyrirtækis með skýr
arðsemismarkmið. Hið gagnstæða
blasir við. Spyrja má um uppbygg-
ingu í ljósi þess að frá einkavæð-
ingunni hafa þrír milljarðar verið
greiddir út úr fyrirtækinu til hlut-
hafa. HS veitur juku að auki skuldir
sínar um á þriðja milljarð króna til
að borga hluthöfum, tvö síðustu ár.
Arðsemi hluthafa að leiðarljósi
„Félagið mun fjárfesta með arðsemi
hluthafa félagsins að leiðarljósi,“
segir í elstu stofngögnum HSV eign-
arhaldsfélags. Í drögum að eigenda-
samkomulagi sveitarfélaganna og
HSV sagði að stefna skyldi að því að
hámarka arðsemi félagsins. Hlut-
hafar ættu að fá „bestu mögulegu
ávöxtun“ af fjárfestingu sinni.
Sautján aðilar eiga HSV eignar-
haldsfélag, samkvæmt nýjasta árs-
reikningi félagins, fyrir árið 2014.
Flestir eru lífeyrissjóðir, en eigend-
ur eru fleiri.
Þannig á Ursus ehf. 12,8 prósent í
HS veitum. Eigandi félagsins er einn
maður, Heiðar Már Guðjónsson. Þá
á Miranda ehf. 4 prósent. Berglind
Björk Jónsdóttir er eini eigandi þess
félags.
Tryggingamiðstöðin hf. á síðan
tæplega 16 prósenta hlut. Hún er
skráð í Kauphöll og eru lífeyrissjóð-
ir áberandi meðal helstu hluthafa.
Lífeyrissjóðirnir eru sömuleiðis
eigendur að ríflega 2/3 hlutafjár
HSV eignarhaldsfélags.
Gildi lífeyrissjóður á 19 prósent.
Samlagshlutafélagið Akur fjárfest-
ingar, með 13,5 prósent, er í eigu
lífeyrissjóða að mestu. Íslandsbanki
og VÍS eiga raunar innan við fimmt-
ung þess samanlagt. Akur á einnig
ríflega 30 prósenta hlut í fyrirtæk-
inu Fáfnir offshore.
Þrýsta á um greiðslur
Tveir og hálfur milljarður króna
voru greiddir út úr félaginu til HS
veitna í fyrra. 500 milljónir voru
arðgreiðsla, en HS veitur keyptu
hlutabréf eigenda sinna fyrir tvo
milljarða. Til þess tók fyrirtækið lán.
HS veitur voru reknar með um
800 milljóna króna hagnaði í hitt-
iðfyrra, og öðru eins í fyrra. Í stað
Minnkandi
eigið fé
Eigið fé HS veitna hf nam 8,5
milljörðum króna um áramótin
og var eiginfjárhlutfallið 42
prósent. Minnkaði um tæpa 2
milljarða milli ára, þegar hlut-
fallið var 53 prósent. „Ástæða
lækkunar eign fjár eru kaup á
eigin hlutabréfum fyrri 2.000
m.kr. og arðgreiðsla að upphæð
450 m.kr.,“ segir í tilkynningu
um afkomu HS veitna.
HS Veitur Eigendurnir komast hjá hundraða milljóna króna fjármagnstekjuskatti
Milljarðagreiðslur til eigenda
arðs var í ár samþykkt að félagið
keypti hluti eigenda sinna fyrir
hálfan milljarð í viðbót.
Málið var rætt í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar á dögunum. Þar sagði Ein-
ar Birkir Einarsson, bæjarfulltrúi
BF og varamaður í stjórn HS veitna,
að mjög væri þrýst á greiðslur út úr
fyrirtækinu: „Ég veit að lífeyris-
sjóðirnir gera mikla kröfu á ávöxt-
un á sínu fé inni í félaginu. Og ég
hugsa að það hafi kannski áhrif á
hver talan varð endanlega. Og mér
skilst að þeir hafi farið fram á mun
hærri arðgreiðslu en hér er verið
að ræða.“ Ekki væri endalaust hægt
að minnka eigið fé til að borga eig-
endum fyrir hlutabréf.
500 milljónir framhjá skatti
Einnig var á fundinum rætt hvers
vegna greiðslur til eigenda HS
veitna væru ekki í formi arðs.
„Ástæða þess er sú að endurkaup
hlutabréfa eru skattfrjáls til eigenda
en arðgreiðslur eru með 20% fjár-
magnstekjuskatti,“ segir í minnis-
blaði Skarphéðins Orra Björnsson-
ar, fulltrúa Hafnarfjarðar í stjórn
HS veitna.
Orð Einars Birkis í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar á dögunum sýna að
litið er á þessar greiðslur sem arð.
Júlíus Jónsson, forstjóri HS veitna,
hefur jafnframt sagt hið sama í
fjölmiðlum. Aðferðin sé valin til
að sleppa við skatta. Þannig hafa
Reykjanesbær og Hafnarfjarðarbær
– sveitarfélög sem sjálf grundvalla
rekstur sinn á innheimtu skatta –
auk einkafyrirtækis í eigu einstak-
linga og lífeyrissjóða, komist hjá því
að greiða um 500 milljónir króna til
ríkisins, síðustu tvö ár.
„Vart efni til fordæmingar“
Fjallað var um skattaþátt þessara
mála í Reykjavík vikublaði fyrir ári.
Þar var meðal annars rætt við há-
skólamenn sem ekki komu fram
undir nafni. Þeir sögðu að aðferðin,
þótt lögleg væri, vekti spurningar,
væri jafnvel óeðlileg. Einn vakti
raunar máls á 11. gr. skattalaga sem
er svona:
„Til arðs af hlutum og hlutabréf-
um í félögum, […], telst auk venju-
legrar arðgreiðslu sérhver afhend-
ing verðmæta til hlutareiganda
með takmarkaða eða ótakmarkaða
ábyrgð eða hluthafa er telja verður
sem tekjur af hlutareign þeirra í fé-
laginu.“
Í þessu ljósi ætti að líta greiðslur
HS veitna til eigenda sömu augum
og útborgun arðs. Skúli Eggert
Þórðarson ríkisskattstjóri sagðist
í sömu umfjöllun ekki ræða um
einstaka skattaðila, en staðfesti að
sveitarfélög þyrftu að borga fjár-
magnstekjuskatt eins og aðrir.
Í fyrirspurn sama miðils til Hafn-
arfjarðarbæjar var spurt hvort það
væri eðlilegt að opinber aðili kæmi
sér hjá því að borga skatta. Lög eru
skýr, svaraði bærinn. Sé eftir þeim
farið „eru vart efni til fordæmingar
á framgangi hluthafanna.“
Willum Þór Þórsson, Framsókn-
arflokki, sagðist vera hugsi yfir
málinu. Enda þótt lög heimiluðu
aðferðina, yrði að fást svar við því
hvort hún teljist vera samfélagslega
ábyrg.
Mynd | NordicPhotos / Getty
HS veitur sjá um rekstur grundvallarinnviða á Suðurnesjum. Tryggja
fólki neysluvatn, hitaveitu og raforku.
Mynd | HS Veitur
24 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
Einar Birkir
Einarsson.
Heiðar
Guðjónsson.
Haraldur Líndal
Haraldsson.