Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 26.02.2016, Qupperneq 26

Fréttatíminn - 26.02.2016, Qupperneq 26
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir Bankarnir þrír skiluðu í vik­unni ársuppgjörum sínum og sýndu samanlagðan 105 milljarða króna hagnað. Það er óheyrilega há upphæð og illskiljanleg venjulegu fólki. Þessi hagnaður er meira en 4,8 prósent af landsframleiðslunni í fyrra. Með öðrum orðum þá rann tuttugasta hver króna sem fór um íslenska hag­ kerfið í gegnum bankana og alveg niður í neðstu línu í rekstri þeirra; þar sem hagnaðurinn sest. Það kann að vera að í einhverju litlu hagkerfi með ofvöxnu banka­ kerfi sé hagnaður banka stærra hlutfall af landsframleiðslu, í lönd­ um þar sem alþjóðlegir bankar hafa höfuðstöðvar sínar og stunda við­ skipti um allan heim. En við getum ekki borið íslensku bankana saman við banka á slíkum svæðum. Ís­ lensku bankarnir eru blessunarlega lokaðir inni í íslensku hagkerfi. Það fór ekki vel síðast þegar þeir hættu sér út fyrir það. Bankarnir eru nú aftur teknir að leita til útlanda til að ávaxta sitt pund og það hefur ekki byrjað vel. Um tíu milljarða afskriftir vegna tapaðra lána til fyrirtækja sem tengjast norska olíu­ iðnaðinum setja svip sinn á uppgjör bankanna. Í Bandaríkjunum er samanlagður hagnaður bankakerfisins um 0,9 prósent af landsframleiðslu. Ef ís­ lensku bankarnir tækju til sín jafn mikinn hagnað úr sínu hagkerfi eins og þeir bandarísku úr sínu; myndu þeir láta sér nægja að skila um 19 milljörðum króna í hagnað. Það má því segja að íslensku bank­ arnir taki til sín um 86 milljörðum krónum meira en þeir myndu gera ef þeir hegðuðu sér eins og þeir bandarísku. Og eru þeir bandarísku öngvir englar. Fyrirferð bankakerfisins hefur verið gegnumgangandi um­ ræða í bandarískum stjórnmálum alla þessa öld og líka þá síðustu. Það er því ekki annað hægt að segja en að íslenskur almenningur sýni sínum bönkum langlundargeð. Í hittiðfyrra, þegar norskir bankar sýndu hagnað eftir hálft ár sem nam um 88 þúsund krónum á íbúa, varð allt vitlaust í norsku samfélagi. Verkalýðshreyfingin reis upp á afturlappirnar, þingið fjallaði um málið dögum saman og fjölmiðlar loguðu. Samanlagður hagnaður bankanna þriggja í fyrra var um 320 þúsund krónur á hvert mannsbarn, eða nærri tvöfalt meiri en hagnaðurinn sem gekk fram af norsku þjóðinni. Í kjölfar reiðiöldunnar sem reis í norsku samfélagi lækkuðu norsku bankarnir vexti til almennings og lofuðu í bak og fyrir að taka aldrei aftur til sín viðlíka hagnað. Auðvitað er stór hluti hagnaðar íslensku bankana tilkominn vegna endurmats á eignum og lýsir ekki venjubundnum rekstri. Hagnaður er engu að síður óheyrilegur og lýsir brengluðu ástandi í ramm­ skökku hagkerfi. Stærð bankakerfisins hefur verið viðvarandi vandamál í íslensku samfélagi áratugum saman. Sam­ kvæmt Alþjóðabankanum eru 40 bankaútibú á hverja 100 þúsund íbúa á Íslandi en aðeins 28 í Dan­ mörku, 21 í Svíþjóð, 12 í Finnlandi og 8,6 í því dreifbýla landi Noregi. Hvers vegna þurfa Íslendingar svona mörg bankaútibú? Ekki spyrja mig, líklega vegna þess að bankarnir eru svo ríkir að þeim finnst engin ástæða til að spara við sig útibúin. Í ársreikningum bankanna þriggja kemur fram að samanlagð­ ur launakostnaður þeirra er 42,5 milljarðar króna. Til samanburðar þá mun búvörusamningurinn kosta ríkissjóð um 14 milljarða á næsta ári. Jafnvel slíkar upphæðir verða sem dvergar við hliðina á launa­ kostnaði bankanna. Ef kostnað­ inum er deilt niður á manns­ börn kemur í ljós að hver fjögurra manna fjölskylda þarf að bera rúmlega hálfa milljón króna á ári til að greiða bankamanni laun. Eiginfjárhlutfall íslensku bank­ anna er það hæsta í heimi. Eigin­ fjárhlutfall Arion banka er 24,2 prósent, Íslandsbanka 30,1 prósent og Landsbankans 30,4 prósent. Til samanburðar er meðal eigin­ fjárhlutfall danskra banka um 7,3 prósent, norskra banka um 6,8 prósent, sænskra um 5,1 prósent og finnskra um 5 prósent. Samanlagt eigið fé bankanna er um 660 milljarðar króna. Það hefur vaxið frá Hruni um 237 milljarða þrátt fyrir að bankarnir hafi greitt út rúmlega 98 milljarða króna í arð á núvirði. Það mætti án efa greiða út úr bönkunum 200 til 250 milljarða króna í arð án þess að gera þá of veikbyggða. Það má án efa finna þessu fé betri stað en í kistum bankanna þriggja. Það má til dæm­ is lækka skuldir ríkissjóðs með því og lækka þar með vaxtakostnað. Eða verja þeim til að bæta heil­ brigðis­ og velferðarkerfið. Sem eru mikilvægari kerfi íslensku samfé­ lagi en bankakerfið. Gunnar Smári Kominn tími til að minnKa banKana Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. 26 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016 travel 93.900 kr.Verð á manní tvíbýli frá Innifalið er flug með sköttum, íslensk fararstjórn, 20 kg taska, gisting með morgunverði á Mercure Grand**** og akstur til & frá flugvelli. Einstök ferð til Varsjár með fararstjóra sem gjörþekkir þessa fallegu og áhugaverðu borg. Á meðan á dvölinni stendur er í boði að fara í 3 klst. skoðunarferð með Óttari um helstu sögustaði borgarinnar og allar markverðar byggingar, stofnanir og lystigarðar skoðaðir. Verð er 30 evrur á mann. Einnig er í boði að fara í gönguferð um helstu söguslóðir borgar- innar. Benda má á, að Varsjá er þekkt fyrir hagstætt verðlag. Flogið er út sumardaginn fyrsta og heim aftur sunnudaginn 24 apríl. VARSJÁ HELGARFERÐ 21.-24. APRÍL 2016 FARARSTJÓRI: ÓTTAR GUÐMUNDSON LÆKNIR Fyrir bókanir og frekari upplýsingar: lilja@wowtravel.is & sandraros@wowtravel.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.