Fréttatíminn - 26.02.2016, Page 30
Rekstrarvörur til fjáröflunar
– safnaðu peningum með sölu á fjáröflunarvörum frá RV
RV
1015
Er æfingaferð,
keppnisferð,
útskriftarferð eða
önnur kostnaðarsöm
verkefni framundan?
Síðustu 30 árin hafa félagar í
íþróttafélögum, kórum og öðrum
félagasamtökum aflað sér fjár
á einfaldan hátt með sölu á WC
pappír, eldhúsrúllum, þvottadufti og
öðrum fjáröflunarvörum frá RV.
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
24/7
RV.is
FÓ
TB
O
LT
I
BA
DM
IN
TO
N
SU
N
D
HA
N
DB
O
LT
I
KÖ
RF
UB
O
LT
I
óreglulegan hjartslátt sem hann
hafði átt við að stríða öðru hvoru
síðan hann var unglingur.
Þvagleggur
Fyrir og meðan á hjartaaðgerðinni
stóð hafði Tryggvi veitt drippinu í
æð athygli sem honum fannst renna
allt of ört og gæti gert það að verk-
um að hann þyrfti að kasta af sér
þvagi fljótlega. Tryggvi var að jafna
sig eftir velheppnaða aðgerð og bað
um leyfi til þess að fara á klósettið.
Hann mátti fyrir enga muni standa
upp vegna aðgerðarinnar og þegar
honum tókst ekki að pissa í flösku þá
var engin undankomuleið, hjúkrun-
arfræðingurinn sá ekki annað í stöð-
unni en að setja upp þvaglegg. Fyrst
var einn settur upp og Tryggvi fann
nístandi sársauka og gat strax lesið í
andlitssvip hjúkrunarfræðingsins að
ísetningin hefði mistekist hrikalega
og það blæddi úr typpinu. Í fram-
haldinu var annar mjórri settur upp
sem heppnaðist og hann gat loksins
losað sig við meira en einn lítra af
vökva, meira en kemst í heila rauð-
vínsflösku.
Bunar út blóð
Hjartaðgerðin gekk annars vel
þennan fimmtudagsmorgun og
hann átti að fara heim næsta dag
og bjóst við að mæta til vinnu á
mánudagsmorgni. Kærasta hans
var ennþá hjá honum þegar Tryggvi
fékk loks leyfi til þess að fara á
baðherbergið: „Ég var inni í þessu
þokkalega stóra baðherbergi og
hafði læst að mér en þegar ég byrj-
aði að pissa þá bunaði út blóðið,
dökkt blóð en ekki blóðlitað þvag.
Það var óbærilegur sársauki og ég
fann að ég var að hníga niður út af
sársauka. Ég öskraði og rétt náði
að taka úr lás áður en það leið yfir
mig. Það var blóð út um allt, ég sá
flísarnar á gólfinu og fann sjúkra-
húslyktina.
Ég fór ekki heim en dvaldi á
spítalanum meira og minna í þrjár
vikur eftir þetta. Fyrir og eftir allar
klósettferðir var morfíni dælt í mig
og Stesolid, sem er bara valíum.
Þetta var á óheppilegum tíma, beint
ofan í verkfall hjá hjúkrunarkonum.
Ég er ekki að lasta neinn en það
kom upp atvik þar sem ég hringdi
hjálparhnappnum í einn og hálfan
tíma þangað til heyrðist í mér. Þá
var ég kominn í jafn krítískt ástand
og þegar þetta gerðist fyrst, piss-
aði blóði og lifrum. Verkirnir voru
ólýsanlegir, ég myndi glaður pissa
rakvélarblöðum frekar en þetta. Ég
get best lýst þessu eins og það væri
verið að draga hraunmola á girni
niður þvagrásina.
5 x 25 mm áverki
Læknastéttin lá yfir mér og skoðaði
typpið fram og til baka sem er út af
fyrir sig miður skemmtilegt. Ég var
látin prófa allskonar verkjastillandi
lyf. Þvagfæralæknirinn minn, sem
var alltaf mjög nærgætinn og studdi
mig óendanlega mikið og ég treysti
fullkomlega, hringdi síðan einn dag-
inn. Það var þungt í honum hljóðið
þegar hann tilkynnti mér að sárið
væri 5 mm x 25 mm áverki sem kom
út úr þvagrás og inn í vef og væntan-
lega gegnum æð og nálægt eitlum,
langt inn í skrokknum á mér. Og
allan þennan tíma hafði ég verið að
pissa með ógróið sár í þvagrás.
Engin úrræði
Allra leiða hefur verið leitað, fjöl-
skylda mín nær og fjær og vinir mín-
ir lögðust á eitt. Einnig var verkja-
teymi á Reykjalundi sem reyndi að
lina kvalirnar og ég fór á Miami Pain
Clinic til að leita hjálpar. Sumt hefur
auðvitað hjálpað en ekkert sem
tekur frá mér sársaukann.
Þegar karlmenn fara í kyn-
skiptiaðgerðir er passað upp á allt
sem er þarna niðri og passað upp
á allar taugar og æðar og að ekkert
sé skaðað. Þegar ég er spurður um
það hvort það sé ekki bara hægt að
klippa typpið af þá myndi það ekki
breyta neinu, sársaukinn minn er
ekki bara niður typpið heldur lengst
inni í mér. Eins með stómapoka, það
gæti tekið af mér hræðsluna við að
fara á klósettið en það tekur ekki
verkina.
Missti allt á tveimur árum
Kærastan mín gat þetta ekki lengur.
Hún stóð með mér í þessu í eitt ár,
studdi mig og svaf á gólfinu á spítal-
anum og horfði upp á allt þetta blóð.
Við erum góðir vinir í dag og hún
passar kanínuna okkar. Ég reyndi
að rembast við að vinna þangað til
að þeir gáfu mér reisupassann og
þökkuðu mér fyrir samveruna. Ég
fékk tvisvar nýrnasteinakast á þessu
tímabili, sem var ótrúlegur sársauki
ofan á hitt. Ég missti allt, vinnuna,
heilsuna og kærustuna á tveimur
árum. Mér voru dæmdar 18,2 millj-
ónir króna í bætur en Sjúkratrygg-
ingar eru með þak sem nemur 9
milljónum og meira fæ ég ekki frá
þeim. „Þú þarft bara að fara í mál,“
var mér sagt. Ég borgaði íbúðar-
skuldir og reyndi að ganga frá öllu í
kringum mig og ákvað að gera eitt-
hvað skemmtilegt. Við pabbi fórum
saman til Flórída á Monster Truck
sýningu sem er sameiginlegt áhuga-
mál okkar og ég reyndi að gera það
sem ég gat til þess að lyfta mér upp.
En það var kannski einn og hálfur
dagur í þeirri ferð sem var bærilegur
og ég gat notið til fulls.
Ýtt yfir á geðsviðið
Í nokkur ár var og hef ég glímt við
áfallastreituröskun og fengið að-
stoð sálfræðings og geðlækna. Það
var verið að prófa lyfjabreytingar
og ýmislegt á manni. Sumt hjálpaði,
annað gerði ekki neitt og enn annað
hræddi líftóruna úr mér. Eins og
berskjöldunarvinna, að fara yfir at-
vikið aftur og aftur. Þá dett ég oftast
út, ég aftengi mig ég fæ bara hellu
og ég sit þarna, fullorðinn einstak-
lingur, gjörsamlega lamaður af ótta
og ásaka mig fyrir að hafa ekki getað
dílað við þvaglegg eða meiri verki.
„Ég grét út af verkjum og ég
leyfði mér að segja að ég vildi ekki
lifa lengur svona. Þarna fór mér
að finnast eins og það ætti að ýta
mér út á geðsviðið eins og verkirnir
væru bara í hausnum á mér. Ég sé
enga lausn til þess að stoppa verkina
nema að fremja sjálfsmorð. „Fyrst
þú ert í svona ástandi þá höldum
við að það sé best að þú leggist inn á
geðdeild,“ var svarið hjá heilbrigðis-
starfsfólkinu. Ég var lagður inn, svo
sem ekki mikill mótþrói, ég vildi
vera samvinnuþýður og þá varð ég
að vera hreinskilinn og segja frá
hugleiðingum mínum. Mér var gerð
grein fyrir því að ef maður væri í
sjálfsmorðshugleiðingum þá væri
hægt að taka af manni sjálfræðið
en það væri óskandi að það þyrfti
ekki að ganga svo langt. „Þú ert í
hættulegu ástandi og við teljum að
það þurfi að hafa eftirlit með þér.“
Þá hugsaði ég með mér að það væri
betra að fara sjálfur inn á deild í
góðu frekar en að láta taka mig með
valdi.“
Pillukokteill í bankahólfinu
Geðheilbrigðisstarfsfólkið vildi vita
hvernig ég hugðist taka líf mitt og
gaf í skyn að það væri ekki einfalt.
„Ég ætla að taka verkjatöflu rétt
nóg til þess að vera verkjastilltur og
Afipran til þess að varna því að ég
æli, og heilt spjald af Stilnoct töflum
til þess að rotast og þegar þetta fer
að virka ætla ég að taka restina af
Propanolol Beta blocker, sem var í
mínum fórum út af hjartatruflunum,
en Propanolol stöðvar á manni
hjartað og mun drepa mig svona átta
sinnum með það magn sem ég á.
Geðsviðsstarfsfólkið vildi taka lyfin
af mér sem ég neitaði að afhenda og
þá var ég lagður aftur inn. Það gerð-
ist í fimm skipti þangað til ég samdi
við þá við þá að geyma lyfin í banka-
hólfi sem ég hefði aðeins aðgang að
á opnunartíma og gæti því illa svipt
mig lífi í einhverju bráðræði. Sem ég
myndi aldrei gera.
„Peaceful pill“
Ég á bókina The Peaceful Pill
Handbook, sem er gefin út af Exit
hópnum og er aðallega skrifuð fyrir
gamalt fólk sem vill enda líf sitt á
snyrtilegan og hljóðlátan hátt. Þegar
ég var að lesa mig til um aðferð til
þess að fara og var að leita að upp-
lýsingum um Nembutal eða Pen-
tobarbital þá fann ég Dignitas í Sviss
á netinu en þeir nota lyfið. Það geta
allir sótt um líknardauða hjá Digni-
tas sem eru sjálfráða. Hjá þeim eru
umsækjendur allir heimsborgarar.
80% af öllum þeim umsækjendum
sem fá græna ljósið frá Dignitas
klára ekki ferlið. Það nægir sumum
bara að vita að þetta sé val og að það
geti sjálfir valið að deyja. Dignitas
er með teymi af sérfræðingum sem
fara yfir sjúkraskýrslurnar sem um-
sækjandinn sendir inn og þeir reyna
alltaf að finna bót á meinum um-
sækjanda, ef það er mögulegt. Ég er
að ímynda mér að hugsanlega þekki
þeir bót á mínum vanda.
Mamma
Ég veit ekki hvernig mamma tekur
þessu hún er stofnandi Siðmenntar
en samtökin tala fyrir líknardauða
á Íslandi og hefur málefnið verið til
umræðu undanfarið hér á landi. En
hvernig mamma bregst við líknar-
dauða þegar hennar eigið barn á í
hlut á eftir að koma í ljós.
Ég er alinn upp við það að mega
velja, velja á milli fermingar í kirkju
eða borgaralegrar, til dæmis. Með
mitt uppeldi og bakgrunn þar sem
valfrelsi er til grundvallar, með
mína móður, víðsýni og ferðalög út
um allan heim, kynni af allskonar
menningu og trúarbrögðum, þá
finnst mér það alveg rökrétt að ég
eigi kost á því að bera upp málið við
heilbrigðisstarfsfólk, um það hvort
hægt sé að fá aðstoð til þess deyja.
Ég veit ekki hvort að ég myndi ganga
alla leið, en ég vil eiga valið.
Ef ég er ég og ég er sjálfstæður
maður og ég á rétt á því að vera ég,
af hverju má ég þá ekki bara, ef ég
tek upplýsta ákvörðun, eiga rétt á
því að hætta að vera ég.
Tryggvi og Gormur, sem er á Facebook, ólíkt eiganda sínum.Mynd | Alda
Ég grét út af
verkjum og ég
leyfði mér að segja
að ég vildi ekki lifa
lengur svona.
Jeppaferðir eru áhugamál
Tryggva. Á efri myndinni stendur
hann við vél sem hann smíðaði í
Bronco afa síns.
30 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016