Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 26.02.2016, Side 36

Fréttatíminn - 26.02.2016, Side 36
Ég heiti Hildur Guðbjörnsdóttir og á heima í Erbil, höfuðborg Kúr- distan í Írak. Starfa sem verkefnis- stjóri hjá Qandil, sænskum hjálp- arsamtökum. Qandil framkvæmir verkefni fyrir Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem ég stýri. Þetta felst bæði í því að skrá flóttafólk og að vernda réttindi þeirra með því að bjóða þeim lög- fræðiþjónustu og félagsráðgjöf, ásamt því að úthluta fjárstyrkjum og nauðsynjavörum til þeirra sem mest þurfa á því að halda. Við heimsækjum flóttafólk til að safna gögnum um stöðu þeirra, svo hægt sé að koma betur til móts við það, veita því aðstoð og/eða vísa því til annarra samtaka eftir þörfum. Í augnablikinu erum við með fimm hópa sem heimsækir sýrlenska flóttamenn, fjóra hópa sem heimsækja íraska flóttamenn og einn hóp fyrir flóttamenn frá öðrum löndum (aðallega Tyrk- landi, Íran og Palestínu), en hvert teymi samanstendur af svoköll- uðum verndarliða (e. protection assistant), lögfræðingi og félags- ráðgjafa. Þegar ég er búin að gera það sem ég get hér langar mig að starfa einhvers staðar í Afríku, sunnan Sahara. Annars er ég opin fyrir að starfa hvar sem er. Ég sakna fólksins sem mér þykir vænt um. Ég sakna þess að geta drukkið dökkan Kalda og dansað fram á nótt. Ég sakna hafsins, hreins lofts og grænna engja. Ég sakna þess að geta labbað um án þess að fólk stari á mig. Ég er hinsvegar feginn að vera laus við slabbið á Íslandi. Ég vildi að sumir Íslendingar myndu endurskoða viðhorf sín til fólks sem á uppruna sinn að rekja til annarra landa, eða sem aðhyll- ist önnur trúarbrögð en kristni. Íslendingar mættu tileinka sér þakklæti. Íslendingar eiga mikið fyrir að þakka. Hreint drykkjar- Póstkort Kúrdistan Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-15 Torino Bali Havana Basel Nevada Roma Með nýrri AquaClean tækni er nú hægt að hreinsa nánast alla bletti aðeins með vatni! Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu, léttvín, kaffi, te, meira að segja kúlupenna, nást á auðveldan hátt úr áklæðinu. OG DRAUMASÓFINN ÞÍNN ER KLÁR GERÐ (90 mismunandi útfærslur) STÆRÐ (engin takmörk) ÁKLÆÐI (yfir 3000 tegundir) ÞÚ VELUR ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir ferðaðist til Keníu og Eþíópíu til að ráð- stafa í hjálparstarf tugmillj- óna króna arfi eftir Lilju, ömmusystur sína. Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildur@frettatiminn.is „Það er ekki oft sem fólk biður mig um að taka mynd af sér að fyrra bragði. En þarna pikkaði í mig kona og vildi mynd af sér að gefa barninu brjóst, stolt af eigin líkama. Þetta fallega augnablik er mér minnisstætt, sérstaklega í allri umræðunni um kvenlíka- mann á Íslandi, Free the Nipple, brjóstagjöf og fleira,“ segir Saga Sigurðardóttir ljósmyndari. Saga er nýkomin heim úr mán- aðarferðalagi um Eþíópíu og Keníu með fjölskyldu sinni. Tilefni ferðarinnar voru þeir tugir millj- óna króna sem ömmusystir Sögu, skáldið Lilja Sólveig Kristjánsdótt- ir, skildi eftir sig þegar hún lést. „Lilja fól pabba að ráðstafa arfi sínum til góðgerðamála í Afríku. Hún hafði alla tíð gefið peninga til trúboðastarfs og kærði sig ekki um auðæfi. Hún var ótrúleg kona og allt í kringum hana var sveipað glæsileika. Hún var fyrsta listakonan sem ég þekkti og hafði mikil áhrif á mig.“ Styrkja konur til menntunar Arfinn kalla þau Liljusjóð og ferðaðist fjölskyldan saman að kanna hvaða verkefni þau ættu að styrkja í Eþíópíu og Keníu. „Þetta eru menningar- heimar sem við þekkjum ekki og erum ekki í stöðu til að ákvarða hvernig fjármagnið nýtist best. Systir mín er arkí- tekt og fór að skoða byggingu á heimili fyrir munaðarlausar stúlku. Þá sáum við hvernig hugmyndir okkar um hús og heimili eru ólík. Því er mikil- vægt að fara á staðinn, kynnast samfélaginu og í samráði við íbúa ákvarða hvað er best til uppbyggingar.“ Verkefnin sem Saga vill helst að Liljusjóður styrki snúa að menntun kvenna. „Við viljum styðja við verkefni þar sem upp- bygging er þegar hafin. Eitt þeirra er kvennamenntaskóli í Propoi í Keníu sem er stýrt er af ótrúlegri konu. Kerfið er þannig að nemend- ur þurfa að fá B- í einkunn til þess að ríkið styrki þá til háskólanáms. Hún vekur stelpurnar klukkan 4 á nóttunni til þess að læra því Fór með arfinn til Afríku Fegin að vera laus við slabbið Hildur Guðbjörnsdóttir. menntun er það eina sem gefur þeim tækifæri til betra lífs.“ Myndaði allt ferðalagið Saga festi ferðalagið á filmu og segir framandi umhverfið ótrúlegt myndefni fyrir ljósmyndara. Lífs- gleði og sjálfsöryggi fólksins snerti við henni og hyggst hún gera ljós- myndabók frá ferðalaginu. „Ólíkt Íslendingum voru brosin breið, hláturinn hávær og dansinn alls- ráðandi. Fólkið var svo ánægt í eig- in skinni. Mér var einnig hugsað til þess hvernig ég ólst upp á Þing- völlum umvafin náttúru með frelsi til þess að hlaupa um. Fólkið ber virðingu fyrir náttúrunni og þykir Kona af Dassanech ætt- bálknum sem bað Sögu um mynd af sér að gefa brjóst. Ljósmyndarinn Saga Sig vill styrkja konur til menntunar í Afríku. 36 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.