Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 26.02.2016, Side 37

Fréttatíminn - 26.02.2016, Side 37
 Fleiri myndir á frettatiminn.is Njóttu þess Kjarngóð ávaxtafylling í léttum kexhjúp – gott á milli mála. *Aðeins 57 kcal per kex Go Ahead Létt í bragði „Ég var að drífa mig í skólann enda alltof seinn, það var þoka og ég var með tónlist í eyrunum. Þegar ég var næstum kominn að skólanum gekk ég yfir götuna, leit til hliðar og sá sporvagninn á fullri ferð, minna en metra frá mér,“ segir Valdemar Árni Guðmundsson myndlistarnemi, sem slasaðist illa þegar hann varð fyrir sporvagni í Amsterdam. „Ég hélt reyndar meðvitund þegar sporvagninn keyrði á mig og man eftir að þeytast marga metra og finna rosalegan sársauka. Sporvagn- stjórinn hljóp út úr vagninum en í stað þess að hafa áhyggjur af mér byrjaði hún að skamma mig fyrir að hafa verið fyrir sér. Ég held hún hafi aðallega haft áhyggjur af því að ég hefði skemmt sporvagninn eitt- hvað,“ segir Valdemar og hlær. Hann segir þó fjölmarga veg- farendur hafa komið sér strax til hjálpar og hringt á sjúkrabíl. „Þetta var allt svo hádramatískt að það er fyndið núna. Á leið á spítalann var ég til dæmis einn í sjúkrabílnum með sjúkraliðum sem töluðu óðamála á hollensku og ég skildi ekkert. Þau voru svo háalvar- leg að ég spurði þau á ensku: „Er ég að fara að lifa þetta af?“ Og þau svöruðu alvarleg: „Við vitum það bara ekki ennþá.““ Valdemar lifði slysið aldeilis af en hnéskeljar hans voru þó brotnar, hann viðbeinsbrotnaði og var með innvortis blæðingar. „Hnén eru í lagi í dag en detta reglulega úr liði,þá eru þau viku aftur í lag.“ Valdemar veigrar sér ekki við að fara allra sinna ferða með sporvagni þrátt fyrir þessa reynslu. „Ég kem náttúrlega frá Hvera- gerði, þar sem er engin hjólamenn- ing, í þetta hjólabrjálæði í Amster- dam. Týpískt að ég yrði strax fyrir sporvagni!“ | sgþ vatn/sjóðheitt baðvatn beint úr krananum og ódýr kynding er lúx- us sem ég held að fyrirfinnist jafn- vel hvergi annars staðar. Á Íslandi er ótrúlega góður matur. Loftið er hreint og ferskt, ekki of heitt, eng- in skordýr, og það mikilvægasta af öllu, ekkert stríð, ekkert óöryggi. Í stað þess að kvarta yfir rigningu, ætti fólk frekar að kvarta yfir spill- ingu og því niðurbroti sem á sér stað núna í velferðarkerfinu. Vel- ferðarkerfið er ekki sjálfsagt. Við þurfum að berjast fyrir því. Sönn vinátta slitnar ekki, en hversdagsleg samtöl hverfa þegar maður er langt í burtu að heiman. Það slitnar samt eitthvað annað, innra með manni, eða breytist, frekar. Maður saknar heimahag- anna og kann mun betur að meta ýmislegt þar. En samt er hluti af manni núna búinn að setjast að annars staðar. Þegar komið er heim á ný er það ekki lengur alveg eins, einhvern veginn. Það er eins og partur af manni verði eftir á hverjum stað sem maður býr. vænt um umhverfi sitt. Okkur skortir þessa tengingu, þess vegna förum við svona illa með jörðina.“ Saga segir ótrúlegt hvað hægt sé að gera fyrir litla peninga. „Mánaðarlaun kennara eru rúmar 12.000 krónur og það er hægt að byggja heimili fyrir börn fyrir nokkrar milljónir. Liljusjóðurinn gerir það líka að verkum að við fjárfestum tilfinningalega í þessu verkefni. Að sjá afraksturinn og geta fylgt honum eftir er ómetan- legt.“ Ung þjónustustúlka í Addis Ababa í Eþíópíu. Vegfarandi í Omo dal í Eþíópíu. Krakkar kæla sig á landamærum Keníu og Úganda. Lífsreynslan Varð fyrir sporvagni á leið í skólann Valdemar Árni á verslun- argötu í Amsterdam. Mynd | Dýrfinna Benita |37fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.