Fréttatíminn - 26.02.2016, Page 38
GAMLI NEXUS
Teiknimyndasögubúðin
Nexus var og er sérvöru-
verslun nördanna. Þar
sem fæst einstakt úrval
teiknimyndasagna,
spila, bóka og leikfanga.
Í átján ár stóð búðin
við Hlemm en vék fyrir
byggingu Skugga Hótels
árið 2013 og flutti upp í
Nóatún.
Hverju fórnum
við fyrir hótel?
HJARTAGARÐUR
Hjartagarðinum var lýst af
ferðamönnum sem hann
heimsóttu sem vin í borg-
areyðimörkinni. Borgarbúar
sáu alfarið um uppbyggingu
í garðinum, steyptu hjóla-
brettarampa og skreyttu
veggina í kringum hann. Á
reitnum er nú í byggingu 142
herbergja hótel sem verður
hluti af Icelandair hótel-
keðjunni.
FAKTORÝ
Faktorý var lokað eftir
mikla baráttu þeirra
sem ráku staðinn við
fasteignafélagið Regin
sem á lóðina. Þar er nú
verið að byggja hótel.
Bæjarmynd Reykjavíkur
hefur breyst hratt síðustu ár.
Salka Gullbrá Þórarinsdóttir
sgþ@frettatiminn.is
Þróunin virðist vera þannig að
smásalar og litlir skemmtistaðir
hverfa og í staðinn koma hótel eða
bankar. Er fórnarkostnaður hótel-
uppbyggingar raunveruleg menn-
ingarverðmæti? Fréttatíminn
rýndi í það sem vikið hefur fyrir
nokkrum af hótelum miðborgar-
innar.
Fógetagarðurinn hét áður Víkurgarður og var grafreitur. Talið er að um 30 kynslóðir Íslendinga
hvíli í garðinum. Síðustu misseri hefur skotið upp kollinum matarmarkaður á torginu, sem gæddi
það nýju lífi. Nú er verið að byggja hótel á Landsímareitnum og mun inngangur hótelsins liggja að
Fógetagarðinum. Hótelgestir munu því draga ferðatöskur sínar yfir garðinn á hverjum degi.
FYRIR / EFTIR
EFTIR / FYRIR
FYRIR / EFTIR
38 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
STÓRI TÍSKU - &
SNYRTIVÖRUKAFLINN
4. mars
Meðal efnis í blaðinu er:
• Náttúrulegir liðir í hárinu græjur, góð ráð og næring.
• Augnförðun og eyeliner –
með nýjum vorlitum
• Highlighter
• Mattir varalitir • Augabrúnir
• Íslensk hönnun – fatnaður
• Vorilmir
Nánari upplýsingar veitir Kristi Jo í síma 531 3307 eða á tölvupósti á
kristijo@frettatiminn.is
Þú vilt ekki missa af þessu !
FUCINO HRINGAR
Silfur með zirkon steinum, 18 kt rauðagullshúð
Frá 16.900 kr
sifjakobs.com
ATTRACTIVE & FASHIONABLE JEWELLERY