Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 26.02.2016, Page 52

Fréttatíminn - 26.02.2016, Page 52
Heilsa Omar Di Felice hjólar nú hringinn í kringum Ísland. Hjólar hringinn á sex dögum Ítalski ofurhjólreiða- maðurinn Omar Di Felice æfir fyrir WOW Cyclothon. „Ég elska Ísland og hef heim- sótt landið fimm sinnum áður og nú langar mig að prófa að hjóla hringinn að vetri til á 6 dögum. Ísland er frábært land þar sem allt getur gerst og það heillar mig,“ segir ítalski ofurhjólreiðamaður- inn Omar Di Felice. Á miðvikudagsmorgnun lagði Ítalinn af stað í hringferð um Ís- land á hjólinu sínu og markmiðið er að hjóla hringveginn á aðeins sex dögum. Omar Di Felice er vel þekktur í hjólreiðaheiminum en hann er meistari í ofurhjól- reiðum á Ítalíu og hefur tekið þátt í fjölda ofurhjól- reiðakeppnum um alla Evrópu. Omar mun snúa aftur til Ís- lands í júní til að taka þátt í WOW Cyclothon. Omar hefur áður hjólað hring- inn í kringum Ísland, í apríl árið 2012, og þá voru myndatöku- menn frá ítölsku Sky TV sjón- varpsstöðinni með í för en síðar var heimildamynd um ferðina sýnd á stöðinni. Hann er heldur ekki ókunnugur hjólreiðum í hörðum vetrarskilyrðum en ný- verið lauk hann hjólreiðaferð frá Lofoten eyju til Nordkapp í Finn- mörku í Norður-Noregi. Með Om- ari í för núna eru aðstoðarmaður hans og bílstjóri Alessio Bonetti og Sara De Simoni sem tekur upp efni fyrir kvikmynd um hjól- reiðaævintýri Omars og sér um að uppfæra fréttir og setja inn myndir frá ferðinni á facebook- síðu hans. Hægt er að fylgjast með ferð- um Omars á facebooksíðu hans, www.facebook. com/omar.difelice. 5 leiðir til að fá sem mest út úr æfingunni Ef þú vilt að ferðin í ræktina skili einhverju skaltu hætta að hanga í símanum og glápa á fallegt fólk. 1 Slökktu á símanumEf týpísk æfing hjá þér í líkams- ræktarstöðinni samanstendur af því að skiptast á að gera æfingar og að tjatta við einhvern í gegnum sím- ann þinn ættirðu að spyrja þig hvort ekki sé einhver skekkja í þessu. Þú ert að eyða mikilvægum lyftinga- tíma í rugl. Ef þú getur ekki haldið puttunum frá lyklaborðinu ættirðu að stilla símann á flugham um leið og þú labbar inn í búningsklefann. 2 Fáðu þér æfingafélagaAlgengt er að fólk eyði næst- um tíu prósentum af tímanum í ræktinni í bið og tilfærslur á lóðum. Besta ráðið til að spara tíma er að fá sér æfingafélaga. Þegar þú klárar þitt sett er hann eða hún að gera til- búið fyrir næstu æfingu við hliðina eða finnur annað laust tæki. Og öf- ugt. Svo er ágæt regla að vera með tvö handklæði – annað til að þurrka eigin svita og hitt til að þurrka svita ókunnugra af tækjunum. 3 Hættu að glápaÞað er ekkert að því að fylgjast með öðru fólki í ræktinni, að njóta útsýnisins. En þú skalt gera það á kurteisan hátt. Ekki láta taka þig í landhelgi við að glápa, það er bara „krípí“ og skilar engu. 4 Notaðu heyrnartólNotaðu heyrnartól, jafnvel þó þú sért ekki að hlusta á tónlist. Það sendir skýr skilaboð um að þú sért ekki að fara að spjalla um daginn og veginn. 5 Skipulegðu þigSkipulegðu settin og hvíldina á milli. Það er ekkert vit í að klára settin á mettíma og hanga svo þar á milli. Finndu þér frekar gott app sem heldur þér á tánum svo þú fáir sem mest út úr æfingunni. Heimild | Men’s Health. Best er að sofa á milli sjö til átta tíma á hverri nóttu. Mynd | NordicPhotos/Getty Betra að sofa of lítið en of mikið Fólk sem sefur sjö til átta tíma á hverri nóttu er ólíklegra til að fá hjartaáfall heldur en fólk sem sefur annað hvort minna en það, eða meira. Þetta er niðurstaða bandarískrar rannsóknar sem 290 þúsund manns tóku þátt. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar Í Los Angeles í síð- ustu viku og greint var frá þeim í breska blaðinu Daily Mail. Sam- kvæmt rannsókninni eru þeir sem hlusta ekki á vekjaraklukkuna, og velta sér yfir á hina hliðina til að sofa meira, í meiri hættu á að fá hjartaáfall. Alls eru þeir sem sofa meira en átta tíma taldir 146 pró- sent líklegri til þess en hinir. Þá kom einnig í ljós að þeir sem sofa minna en sjö tíma á nóttu voru 22 prósent líklegri til að fá hjartaáfall en þeir sem sofa sjö til átta tíma. Við rannsóknina var litið til heilsufars, lífsstíls, aldurs og uppruna og fylgst með svefni fólk og hversu duglegt það var við að hreyfa sig. Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu. FYRSTU SNJALL- HEYRNARTÆKIN Apple, Apple merkið, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki Apple Inc, skráð í BNA og öðrum löndum. App Store er þjónustumerki Apple Inc. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is 52 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.