Fréttatíminn - 26.02.2016, Blaðsíða 74
Veislan
Oft er búið að bóka sal fyrir veislu-
höld með löngum fyrirvara. Aðrir
kjósa að halda veisluna heima í
stofu. Ef veislan er fjölmenn getur
verið kostur að leita til nákominna
um aðstoð eða kaupa tilbúinn mat.
Fatnaður
Huga þarf að sparifötum fyrir
fermingarbarnið og myndatökuna.
Hárgreiðsla
Það getur verið gott að tryggja
sér tíma með góðum fyrirvara
fyrir fermingardaginn.
Gjafir
Hvers óskar fermingarbarnið sér í
gjöf? Gott að útbúa lista fyrir ætt-
ingja og vini.
Myndataka
Margir pússa upp fjölskyld-
una og skella sér í mynda-
töku í tilefni fermingar-
innar.
Skart
Verður fermingar-
barnið með sérstakt
hálsmen á fermingar-
daginn?
Boðskort
Prent- og ljósmyndaverslanir bjóða
upp á þægilega þjónustu þegar að
kemur að hönnun boðskorta.
Sálmabók
Margir láta skraut-
rita nafn ferming-
arbarnsins ásamt
dagsetningu.
Servíettur
Langar þig að prenta texta
á servíetturnar? Prentverslanir
og blómabúðir bjóða upp á slíka
þjónustu.
Fermingartertan
Það er gott að gefa sér tíma til að
skoða úrval og verð á fermingar-
tertum.
Skreytingar
Á að skreyta hlaðborðið með
blómum eða borðum? Blóma-
verslanir og föndurbúðir eru
með úrval af hugmyndum af
fylgihlutum fyrir skreytingar.
Kerti
Fermingarkertið er oft skreytt með
skrautskrift. Hægt er að föndra
eigið eða kaupa tilbúið.
Slöngulokkar og rjóma-
brúðargreiðslur á undan-
haldi.
Fréttatíminn sló á þráðinn norður
til Akureyrar og spjallaði við Arn-
eyju Ágústsdóttur á hárgreiðslu-
stofunni Zone og forvitnaðist um
tískustraumana í hárgreiðslum í ár.
Arney segir að undanfarin ár
2-3 ár hafi látlausar greiðslur verið
langvinsælastar hjá fermingarstúlk-
um. „Þá eru þær með náttúrulega
liði með jafnvel einhverjum fléttum
og hárið aðeins tekið frá andlitinu.
Þetta eru alls ekki miklar greiðslur,
þær eru alls ekki að fara út eins
og rjómabrúðir. Greiðslurnar eru
náttúrulegar og tímalausar,“ segir
Arney. Flétta sem heitir „waterfall
braid“ hefur verið afar vinsæl, þá er
hárið fléttað þannig að það minnir
á foss, og svo er það krullað í stóra
„Hollywood liði“.
Allar stúlkurnar sem koma í
greiðslu til Arneyjar eru með sítt
hár en margar þeirra hafa verið að
safna hári og ætla sér svo að klippa
það eftir fermingu. Sumar láta lita á
sér hárið en halda sig þó við nokkr-
ar strípur, engar „drastískar“ breyt-
ingar.
„Flestar stúlkurnar koma inn með
mjög ákveðnar hugmyndir og eru
búnar að gúggla og fara á Pinterest.
Margar koma með einhverja blóma-
kransa eða hárbönd sem hafa verið
vinsæl að undanförnu,“ segir Arney
og bætir við að annars konar skraut í
hárið, perlur og blóm sem einu sinni
tíðkaðist, sé á undanhaldi. Mesta lagi
sé einu blómi stungið með.
Hollywood liðir og
fléttur halda velli
Ljósmynd | Axel Darri Arney Ágústsdóttir segir að náttúrulegir liðir og fléttur
haldi velli í fermingargreiðslunum í ár.
Er allt að
verða klárt?
Það er að mörgu að hyggja
fyrir fermingar komandi
vors enda má helst ekkert
klikka á þessum mikilvæga
degi.
Við undirbúning fermingarveisl-
unnar er gott að vera með allt sitt
á tæru og passa að ekkert gleym-
ist. Hér er einfaldur tékklisti yfir
það sem algengt sé að huga að fyrir
fermingarveislur.
Falleg greiðsla sem Arney töfraði fram. Módel: Harpa Lind.
2 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
Fermingar