Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 26.02.2016, Side 88

Fréttatíminn - 26.02.2016, Side 88
Unnið í samstarfi við MS Senn líður að fermingum um land allt og er áfangans beðið með mikilli spennu og eftirvæntingu hjá væntan- legum fermingarbörnum. Foreldrar og fjölskylda fermingarbarnsins taka þátt í spennunni sem byggist upp í aðdraganda stóra dagsins og tilhlökk- unin vex jafnt og þétt, enda fylgir þessum skemmtilega degi jú mikil gleði þar sem stór hópur fólks kemur saman til að gleðjast með fermingar- barninu. Fermingarveislur nú til dags eru af ýmsum stærðum og gerðum og þær eru eins ólíkar og þær eru margar – rétt eins og fermingarbörnin sjálf. „Áður en undirbúningur að sjálfri veislunni hefst er gott að hafa það hugfast að það er ekki til nein ein rétt uppskrift að fermingarveislu heldur skiptir mestu máli að fermingar- barnið og foreldrar þess setji niður á blað hvað þau vilja og vinni saman út frá því,“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS. Fyrir þær fjölskyldur sem vantar smá aðstoð og innblástur við ferm- ingarundirbúninginn er upplagt að skoða uppskriftasíðuna gottimatinn. is en þar er að finna ýmsar hug- myndir að bæði mat og skreytingum. Á síðunni er heill flokkur uppskrifta tileinkaður veislum og fermingum þar sem finna má margskonar uppskriftir sem henta fullkomlega fyrir þetta stóra tilefni. Það getur verið sniðugt að reyna að útfæra veitingarnar út frá uppáhaldsmat fermingarbarnsins en þá er strax komin persónuleg tenging við fermingarbarnið sem stundum vill glatast í öllum hamaganginum sem fylgir. Ef fermingarbarnið veit ekkert betra en pasta, pítsu eða ís, hví ekki að ganga út frá því og hafa ítalskt þema með pastaréttum, smápítsum, snittum og ístertu? „Hvort sem ykkur langar að bjóða upp á smárétti og ljúffenga osta, brauðsnittur og kon- fekt, heitt matarhlaðborð eða dýrindis kökuveislu er valið ykkar og heimasíða Gott í matinn getur án nokkurs efa aðstoðað við undirbúninginn,“ bætir Guðný við. Á undanförnum árum hefur það færst í vöxt að skreyta veislusali eða heimahús á þessum stóra degi til að gera veislurnar bæði litríkari og persónulegri. Á Pinterest-síðu Gott í matinn eru hugmyndirnar óþrjótandi og er gaman að stefna að því að leyfa persónuleika fermingarbarnsins að skína í gegn í veislunni, t.d. með því að hafa uppáhaldslitinn í forgrunni eða með því að gera aðaláhugamál- inu hátt undir höfði, hvort sem það er lestur góðra bóka, einhver íþrótt, hljóðfæri eða hvað annað. Eins vekur það lukku að hafa gamlar myndir af fermingarbarninu í bland við nýjar á veisluborðinu, upp á veggjum eða hangandi niður úr blöðrum. „Hug- myndirnar eru endalausar og Gott í matinn hjálpar ykkur við undirbúning- inn, sem er ekki síður skemmtilegur en sjálfur fermingardagurinn,“ segir Guðný að lokum að óskar fermingar- börnum ársins og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn. Hugmyndirnar eru endalausar og Gott í matinn hjálpar ykkur við undirbúninginn, sem er ekki síður skemmtilegur en sjálfur fermingardagurinn. Gott í matinn aðstoðar ykkur við fermingarundirbúninginn Fjölbreyttar hugmyndir að bæði mat og skreytingum á gottimatinn.is Á gottimatinn.is er að finna heilan flokk tileinkaðan veislum og fermingum þar sem er fjölbreytt úrval uppskrifta. Þrjár á Priki og Súfistinn leiða saman hesta sína Unnið í samstarfi við Þrjár á Priki Súfistinn í Hafnarfirði og veisluþjónustan Þrjár á Priki hafa tekið höndum saman og bjóða nú upp á girnilegt fermingarhlaðborð beint heim að dyrum. Allt er í boði sem hugurinn girnist, frá heitum mat og pinnamat upp í tertuveislu með nýristuðu kaffi frá kaffibrennslu Súfistans. Þrjár á priki Þrjár á Priki er veisluþjónusta sem hefur verið starfandi síðan nóvem- ber 2015 en það eru þau Rakel Lárusdóttir og Guðjón Þór Guð- mundsson sem eiga fyrirtækið og reka það. Meginstarfsemi Þriggja á Priki í dag er að þjónusta mötu- neyti fyrirtækja með ferskum og bragðgóðum heimilismat þar sem allt er gert frá grunni. „Við leggjum mikla áherslu á rétti þar sem megin hráefni er kjúklingur en einnig erum við komin með vörulínu af græn- metisréttum. Það er ekkert sem við getum ekki gert og við reynum ávallt að koma til móts við við- skiptavininn með þeirra þarfir og óskir,“ segir Rakel. Súfistinn Súfistinn er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi síðan 1994 í Girnilegt fermingarhlaðborð og nýristað kaffi beint heim að dyrum. hjarta Hafnarfjarðar. Súfistinn er í dag rekinn af Hjördísi Birgisdóttur og Steinarri Guðmundssyni. Sér- staða hans hefur ávallt verið kaffið þeirra sem er ristað í Kaffibrennslu Súfistans en einnig terturnar sem eru ekta heimagerðar hnallþórur. „Terturnar okkar eru gerðar með ekta íslenskum rjóma og súkkul- aði og eru bakaðar á staðnum. Við leggjum mikla ást og alúð í terturnar okkar,“ segir Hjördís. Rakel og Hjördís fengu þá hug- mynd að bjóða fólki allan pakkann beint heim að dyrum, mat, tertur og nýristað kaffi. „Við erum miklar áhugamanneskjur um góðan mat og gott kaffi og sáum okkur leik á borði að taka saman höndum og bjóða upp á hið fullkomna matar- og kaffi- hlaðborð,“ segja þær. 16 | Kynningar | Fermingar AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is fréttatíminn | HELGin 26. FEBRúAR–28. FEBRúAR 2016

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.