Læknablaðið - 01.07.2016, Side 4
320 LÆKNAblaðið 2016/102
F R Æ Ð I G R E I N A R
7.-8. tölublað, 102. árgangur, 2016
323
Þórarinn Tyrfingsson
Innlagnir unglinga
á Vog helmingi
færri nú er árið
2002
Þegar SÁÁ var stofnað
1977 var unglingadrykkja
vel þekkt vandamál á
Íslandi og unglingar 15-
19 ára byrjuðu snemma
að koma til meðferðar.
Á 9. áratugnum fjölg-
aði þeim í meðferð og
kannabisneysla þeirra
varð algengari. Innlagnir
urðu flestar 200 en síðan
hefur dregið úr nýgengi
innlagna yngri en 20 ára.
326
Þórdís Kristinsdóttir, Sveinn Kjartansson, Hildur Harðardóttir, Þorbjörn Jónsson,
Anna Margrét Halldórsdóttir
Mótefni bundin við rauðkorn nýbura;
orsakir og klínískar afleiðingar
Tilfelli greind í Blóðbankanum 2005-2012
Lengst af voru mótefni gegn Rhesus D mótefnisvaka á rauðkornum fósturs algeng-
asta orsök fóstur- og nýburablóðrofs en með tilkomu fyrirbyggjandi meðferðar gegn
myndun anti-D ónæmisglóbúlíns er ABO-blóðflokkamisræmi nú algengasta orsökin
á Vesturlöndum. Mótefnaskimun í meðgöngu og fyrirbyggjandi meðferð með Rhesus
D ónæmisglóbúlíni (RhIg) var innleidd á Íslandi árið 1969 (Rhesus varnir) og beinist
að RhD-neikvæðum konum eftir fæðingu RhD-jákvæðs barns og ef hætta er á að
blóðblöndun hafi orðið milli móður og fósturs í meðgöngu, til dæmis eftir fósturlát,
legvatnsástungu eða áverka. Víða í nágrannalöndum okkar fá allar RhD-neikvæðar
mæður auk þess RhIg á síðasta þriðjungi meðgöngu í fyrirbyggjandi skyni.
332
Ólöf Dröfn Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Eyrún Torfadóttir, Anna Sigríður Ólafsdóttir,
Laufey Steingrímsdóttir
Hamlandi viðhorf til eigin mataræðis
- algengi og forspárþættir á Íslandi
Líðan og viðhorf fólks í tengslum við eigið mataræði hafa lítið verið rannsökuð á Ís-
landi. Í vestrænum samfélögum er lögð mikil áhersla á grannan og stæltan líkama en
á æ fleiri þyngjast. Slíkar aðstæður geta alið á kvíða og stuðlað að hamlandi viðhorf-
um til matar og fæðuvals. Þau mældust algengari meðal kvenna en karla og ungur
aldur, óánægja með eigin líkamsþyngd og hár líkamsþyngdarstuðull sýndu slík tengsl
hjá báðum kynjum.
339
Guðrún Mist Gunnarsdóttir, Arna Guðmundsdóttir, Per Hellman, Peter Stålberg
Endurtekin krampaköst hjá ungri konu – sjúkratilfelli
18 ára hraust stúlka kom endurtekið á slysadeild á 6 vikna skeiði vegna
krampakasta. Hún hafði ekki verið flogaveik og tók engin lyf. Myndrannsóknir og
heilalínurit bentu ekki til flogaveiki. Hún mældist með lækkaðan blóðsykur í tvígang
á slysadeild, 1,3 mmól/L og 1,7 mmól/L (4,0-6,0 mmól/L). Þá vaknaði grunur um að
hún væri með insúlínmyndandi æxli.
325
Hrólfur Brynjarsson
Fóstur- og ný-
burablóðrof, hver
er staðan?
Saga fóstur- og ný-
burablóðrofs er dæmi
um góðan árangur í
nútímalæknisfræði. Frá
því að birtingarmyndum
sjúkdómsins var fyrst lýst
um 1600, þar til eðli hans
var skýrt og meðhöndlun
og forvarnir lágu fyrir á
okkar tímum.
L E I Ð A R A R
Skrifstofur LÍ og Læknablaðsins
í Hlíðasmára verða lokaðar
frá 15. júlí til 2. ágústs.