Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.07.2016, Side 17

Læknablaðið - 01.07.2016, Side 17
LÆKNAblaðið 2016/102 333 R A N N S Ó K N Fram til þessa hafa engar rannsóknir hérlendis beinst að hamlandi viðhorfum til mataræðis meðal fullorðinna Íslendinga, samkvæmt bestu vitund höfunda, en þó er vitað um nýlega rann- sókn sem sýndi samband milli efnishyggju og líkamsímyndar hjá ungum konum og körlum.17 Markmið rannsóknarinnar var að kanna algengi hamlandi viðhorfs til eigin mataræðis hjá fullorðnum Íslendingum, skoðað eftir kyni, aldri, hjúskaparstöðu, menntun, sátt við eigin líkams- þyngd og líkamsþyngdarstuðli. Efniviður og aðferðir Gögn þessarar þversniðsrannsóknar byggja á könnun Embættis landlæknis, Heilsa og líðan Íslendinga, frá árinu 2007.18 Spurninga- könnun var lögð fyrir um um 10.000 karla og konur á aldrinum 18-79 ára, sem voru valin með lagskiptu slembiúrtaki úr þjóðskrá árið 2007. Þar af svöruðu 5909 einstaklingar (um 60%), 3125 konur og 2784 karlar.19 Aflað var leyfis Vísindasiðanefndar og Persónu- verndar. Númer leyfis frá Vísindasiðanefnd er 07-081.19 Viðhorf til mataræðis Í könnuninni Heilsa og líðan voru 8 spurningar um viðhorf til mataræðis, hver með 5 svarmöguleikum. Spurningarnar byggja á nokkrum kvörðum, til að mynda á spurningalista Ranson og fleiri. The Minnesota eating behavior survey, eða MEBS-skalanum.20 Sá kvarði er samsettur úr nokkrum kvörðum og var þróaður til að skima fyrir óheilbrigðum viðhorfum til mataræðis og fæðuhegðunar í almennu þýði fólks á mismunandi aldri. Annar kvarði sem spurningarnar byggja að hluta til á er EAT-26 kvarðinn (Eating attitude test) sem er mælikvarði á viðhorf til mataræðis og hvort um átröskun sé að ræða.21, 22 Í þessari rannsókn var notast við 5 spurningar sem voru taldar varpa ljósi á hamlandi viðhorf til eigin mataræðis og jafnvel tengj- ast hugsanlegum einkennum um átröskun.9, 10 Spurningarnar voru þessar: a) ég fæ samviskubit ef ég borða sætindi, b) ég er sátt/ur við eigin matarvenjur, c) ég er hrædd/ur um að geta ekki hætt að borða þegar ég byrja á annað borð, d) mér líður vel eftir að hafa borðað góðan mat, e) mér finnst ég þurfa að hafa stjórn á því hvað ég borða. Svarmöguleikar við Tafla I. Upplýsingar um þátttakendur í Heilsa og líðan (N=5861). N (%) Konur (%) Karlar (%) P-gildi Aldursflokkar 5861 3121 2740 <0,001 18-29 804 (13,7) 469 (15,0) 335 (12,2) 30-39 878 (15,0) 492 (15,8) 386 (14,1) 40-49 991 (16,9) 552 (17,7) 439 (16,0) 50-59 1046 (17,8) 537 (17,2) 509 (18,6) 60-69 1078 (18,4) 526 (16,8) 552 (20,1) 70+ 1064 (18,1) 545 (17,5) 519 (18,9) Hjúskaparstaða 5827 3106 2721 <0,001 Einhleyp/ur eða fráskilin/n, ekkja/ekkill 1239 (21,3) 741 (23,9) 498 (18,3) Í föstu sambandi en ekki sambúð, í sambúð, gift/ur 4588 (78,7) 2365 (76,1) 2223 (81,7) Menntun 4997 2760 2237 <0,001 Grunnskóli 2327 (46,6) 1374 (49,8) 953 (42,6) Framhaldsnám 1558 (31,2) 713 (25,8) 845 (37,8) Háskóli 1112 (22,2) 673 (24,4) 439 (19,6) Líkamsþyngdarstuðull 5670 2998 2672 <0,001 ≤18,5-24,9 2049 (36,1) 1253 (41,8) 796 (29,8) 25-29,9 2366 (41,7) 1042 (34,8) 1324 (49,5) ≥30 1255 (22,1) 703 (23,4) 552 (20,7) Sátt við eigin líkamsþyngd 5794 3090 2704 <0,001 Sátt/ur við eigin líkamsþyngd 3337 (57,6) 1560 (50,5) 1777 (65,7) Ósátt/ur við eigin líkamsþyngd 2457 (42,4) 1530 (49,5) 927 (34,3) Tafla II. Spurningar og svör um viðhorf til eigin mataræðis. N Jákvætt svar n (%) Ég fæ samviskubit þegar ég borða sætindi 5653 1581 (28,0) Ég er hrædd/ur um að geta ekki hætt að borða þegar ég byrja á annað borð 5595 502 (9,0) Mér finnst ég þurfa að hafa stjórn á því hvað ég borða 5655 2926 (51,7) N Neikvætt svar n (%) Ég er sátt/ur við eigin matarvenjur 5700 2283 (40,0) Mér líður vel eftir að hafa borðað góðan mat 5745 597 (10,4) Sameinað – hamlandi fæðuviðhorf (3-5 stig) 5451 931 (17,1)

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.