Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.2016, Qupperneq 24

Læknablaðið - 01.07.2016, Qupperneq 24
340 LÆKNAblaðið 2016/102 ≥0,2nmól/L samtímis sykurfalli gefur til kynna innræna insúl- ínofframleiðslu.1 Enn var sterkur grunur um insúlínæxli og voru því gerðar myndrannsóknir til að staðsetja það. Engin þeirra rannsókna sem hægt er að gera hérlendis sýndu hnút í brisi, þar með talin tölvusneiðmynd af kvið, segulómun af brisi og ómun af kviðarholi með holsjá (endoscopic ultrasound). Í kjölfarið var sjúklingurinn því sendur á Háskólasjúkrahúsið í Uppsölum í Svíþjóð til rannsóknar með jáeindaskanna. Þar var gert stutt sveltipróf (8 klukkustundir) þar sem blóðgildi insúlíns mældist 65,3 pmól/L, pro-insúlín var 33 pmól/L og C-peptíð var 0,36 nmól/L. Eins og áður voru insúlín og C-peptíð-gildi lýsandi fyrir innræna insúlínframleiðslu. Ennfrem- ur var pro-insúlíngildið styðjandi við það, en nýlegar rannsókn- ir hafa sýnt fram á að pro-insúlíngildi ≥ 22pmól/L eftir föstupróf sé mjög sértækt fyrir innræna insúlínframleiðslu.2 Teknar voru tölvusneiðmyndir af brjóstholi og kviðarholi með skuggaefni í æð ásamt 11C-5HTP-jáeindaskanni. Einnig var endurgerð ómun af brisi með holsjá. Niðurstöður úr þessum rannsóknum voru eðlilegar og sáust engin merki um æxli eða óeðlilega upptöku í líkamanum. Mælt var með sérhæfðri æðamyndatöku (selective angiography with celiacography), örvunarprófi með kalsíum (intraarterial calcium stimulation test) og endurteknu sveltiprófi. Sjúklingurinn var því sendur aftur út til Svíþjóðar nokkrum mánuðum síðar í þessar rannsóknir. Æðamyndataka með kalsíumörvun var gerð á þann máta að kalsíum var sprautað í 6 meginstofnæðarnar sem næra brisið. Kalsíum örvar seytingu insúlíns á þeim svæðum sem hver æð nærir og er þá hægt að mæla magn framleiðslunnar þar á fjórum mismunandi tímapunktum. Ef mikil hækkun verður á seytingu insúlíns á stuttum tíma er það merki um að insúlínæxli sé til staðar. Niðurstöðurnar voru born- ar undir innkirtlasérfræðinga í Bandaríkjunum og Þýskalandi. Sameiginleg niðurstaða var sú að um offramleiðslu á insúlíni væri að ræða en ekki hefði fundist afmarkaður hnútur innan brissins sem væri valdur þess. Hér kom upp grunur um sjaldgæfan sjúk- dóm sem veldur ofvexti brisfrumna en erfitt er að greina þann sjúkdóm nema með vefjasýni. Því var ákveðið að taka sjúkling til aðgerðar, sem hún undirgekkst í Uppsölum. Fjarlægur (distal) 2/3 hluti brissins var fjarlægður ásamt miltanu eftir að myndrann- sókn (68Ga-DOTATOC- jáeindarannsókn) sýndi ekki fram á nein ákveðin offramleiðslusvæði. Slík aðgerð er talin vera varanlegasta meðferðin við ofvexti brisfrumna.3,4 Aðgerðin gekk vel og voru engir fylgikvillar eftir útskrift. Vefjagreining var framkvæmd á sýni frá aðgerðinni og var greiningin staðfest sem nesidioblastosis eða Noninsulinoma pancreatogenous hypoglycemia syndrome (NIPHS). Fyrir aðgerð var framkvæmd vikulöng blóðsykursmæling með sírita til að geta fylgst með þróun blóðsykursfallanna. Blóðsyk- ur sjúklingsins reyndist vera að meðaltali 4 mmól/L og hækk- aði lítið við máltíðir (sjá mynd 1). Gerð var samskonar vikulöng blóðsykurs mæling tveimur mánuðum eftir aðgerð (sjá mynd 2). Þar sést að blóðsykur helst í hærra og stöðugara gildi en áður og er hún alveg laus við blóðsykursföllin. Sjúklingur hefur nú verið laus við einkenni blóðsykursfalla í 9 mánuði. Mynd 1. Vikulöng blóðsykursmæling með sírita fyrir aðgerð. Hver lína táknar einn sólar- hring og punkta- lína táknar með- altalsgildi. Eðlileg mörk blóðsykurs eru innan bláa svæðisins en blóð- sykurfall er innan rauða svæðisins. Blóðsykur sjúk- lingsins reyndist vera að meðaltali 4 mmól/L og hækkaði lítið við máltíðir. Mynd 2. Vikulöng blóðsykursmæling með sírita eftir aðgerð þar sem hluti brissins var fjarlægður. Blóðsykur sjúk- lingsins reyndist vera að meðaltali 6,3mmól/L. Blóð- sykur sjúklingsins helst því innan við- miðunarmarka með eðlilegri hækkun eftir máltíðir. S J Ú K R A T I L F E L L I

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.