Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.2016, Qupperneq 44

Læknablaðið - 01.07.2016, Qupperneq 44
360 LÆKNAblaðið 2016/102 Sé sá þáttur stríðslíkinganna sem snýr að læknunum tvíbentur er sömu sögu að segja um þann sem snýr að sjúklingum. Eins og oft hefur verið bent á leggja slíkar líkingar gjarna megináherslu á andstæðinginn, það er að segja sjúkdóminn en ekki manneskjuna sjálfa, samhengið sem hún er í, veikindi hennar – og allt það sem þessu fylgir. Ef sjúkdómur reynist ólæknandi kann sjúklingurinn líka að kenna sjálfum sér um; svo ekki sé minnst á að stríðslík- ingar fela í raun í sér að sjúklingurinn er í stríði við sjálfan sig þar eð sjúkdómurinn er hluti af hans eigin kroppi.15 Vegna þessa hafa ýmsir talið að við meðferð sjúkdóma ætti fremur að nota ferðalagslíkingar en stríðslíkingar; í opinberum breskum gögnum eins og 2007 NHS Cancer Reform Strategy er engin tilvísun í styrjaldir, orrustur eða bardaga. Þar er hins vegar talað um krabbameinsferðalag og klínískar „leiðir“ í meðhöndl- un.16 Málið er þó allt annað en einfalt. Mörgum finnst eflaust notalegri tilhugsun að leggja upp í ferðalag en stríð svo ekki sé talað um að kynnast ferðafélögum fremur en að vera í bland við stórskotaliða. Kannski finnst líka einhverjum að hann geti ráðið meiru um ferðalag en styrjaldarrekstur, til dæmis hafnað ein- hverjum útsýnistúrum, það er að segja meðferðum sem leiðsögu- maðurinn eða læknirinn stingur upp á. En það má hafa sömu orð um sjúklinga og um Garðar Hólm í Brekkukotsannál, þeir „lenda í ferðalögum“ en velja sér þau ekki.17 Málfræðingurinn Elina Semino stjórnaði nýlega rannsókn þar sem greindar voru líkingar í stóru gagnasafni sem sótt var á netið, annars vegar á vefsvæði þar sem krabbameinssjúklingar í Bretlandi tala saman, hins vegar á áþekkt svæði fyrir heilbrigðis- starfsmenn. Niðurstöðurnar voru skýrar: Ofbeldis- eða stríðslík- ingar geta verið alveg jafn uppbyggilegar og ferðalagslíkingar sem geta svo aftur verið óheppilegar ekki síður en stríðslíkingar. Rannsóknin bendir semsé til að það sé mýta að önnur líkingin sé heppilegri en hin.12 Og þá verður staða lækna síst auðveldari en fyrr: Þeir geta ekki valið ákveðinn flokk líkinga fremur en annan heldur verða þeir að fylgjast með hlutverki líkinganna á munni sjúklingsins og bregðast við í samræmi við hvort þeim finnst þær styrkja hann eða íþyngja honum. Það er semsé lykilatriði að læknar átti sig á hvaða ramma líkingamálið setur hugsunum um veikindin; hvaða atriði eru sett á oddinn, hverjum sleppt og hvaða áhrif líkingarnar hafa.15 Rannsókn Semino og félaga leiddi líka í ljós að heilbrigðis- starfsfólk notar ofbeldis- og ferðalagslíkingar miklu síður en sjúklingar en aðrar líkingar jafnmikið og þeir. Skýringin er kannski sú að ófáir læknar og hjúkrunarfólk geri sér þrátt fyrir allt grein fyrir að blöndurnar sem rísa upp í þessum líkinga- flokkum geta verið bæði jákvæðar og neikvæðar.12 En þar með er ekki sagt að það séu rétt viðbrögð að sneiða hjá líkingunum. Svo lengi sem þær gagnast sjúklingi virðist ástæða til að nota þær en jafnbrýnt að kveða þær niður ef þær draga mátt úr honum, valda samviskubiti og svo framvegis. Þessutan væri kannski ráð að spyrja: Af hverju berjast menn sífellt við krabbamein en ekki til dæmis hjartaáfall? Er það sjálft heitið krabbamein sem vekur upp vígahug í mönnum? Og ef svo er, væri þá ástæða til að breyta því alveg eins og heiti „blóðeitrunarinnar“ gömlu. Orðið „krabba- mein“ var mönnum tungutamt strax á 18. öld ef marka má ALMENNT RÚM BLANDAÐ RÚM ÍLAGSRÚM 1 ÍLAGSRÚM 2 gerandi sá sem gengst undir beitt áhald vinnurými verklag (Markmið, Aðferðir) Hlutverk: skurðlæknir Samsemd skurðlæknis Hlutverk: sjúklingur (manneskja) Samsemd sjúklings Skurðhnífur Skurðstofa Markmið: lækning Aðferð: uppskurður Hlutverk: slátrari Hlutverk: vara (dýr) Kjötsax Sláturhús Markmið: að skera kjöt Aðferð: slátrun Net blöndunar/hugtakasamþættingar: Skurðlæknirinn er slátrari. Samsemd skurðlæknis – Hlutverk: slátrari Samsemd sjúklings – Hlutverk: sjúklingur (manneskja) Kjötsax? Skurðhnífur? (Ótilgreint) skurðstofa Markmið: lækning Aðferð: slátrun Vanhæ Mynd 2. Tekið skal fram að það er orðið identity sem þýtt er á teikningunni með "samsemd" svo sem venja er í rökfræði. Teikningin og útfærsla blöndunarinnar tekur mið af fram- setningu hjá Grady, Oakley og Coulson. "Blending and Metaphor", Metaphor in Cognitive Linguistics: Selected Papers from the 5th International Cognitive Linguistics Conference, Amsterdam, 1997. John Benjamins Publishing, 1999. U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Net blöndunar/hugtakasamþættingar: SKURÐLÆKNIRINN ER SLÁTRARI.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.