Læknablaðið - 01.07.2016, Síða 46
362 LÆKNAblaðið 2016/102
Ópíóíðum er almennt ávísað við svæsnum
eða meðalsvæsnum verkjum. Mest notuðu
lyfin á Íslandi sem innihalda ópíóíða eru
blöndur parasetamóls og kódeins en árið
2014 fengu ríflega 22.000 einstaklingar
ávísað Parkódín forte. Skammtur á hvern
sjúkling af ávísunum af Parkódín forte á
fyrstu fjórum mánuðum ársins 2016 jókst
um 17,5% samanborið við sama tímabil
árið 2006 og er umhugsunarefni. Allra
síðustu ár hefur hlutur Parkódíns haldist
svipaður en aðrir ópíóíðar hafa verið að
sækja á. Vegna þessarar þróunar hefur
verkjalyfjanotkun á Íslandi verið að stíga
í samanburði við aðrar þjóðir en árið 2013
voru ávísanir ópíóða í fyrsta sinn orðnar
mestar á Íslandi af Norðurlöndunum.1 Á
síðustu árum hefur aukning orðið mest í
notkun oxýkódons og búprenorfíns, sem
er visst áhyggjuefni vegna vaxandi mis-
notkunar þessara lyfja erlendis. Ef litið
er til lengri tíma kemur í ljós að heildar-
notkun ópíóíða hefur meira en tvöfaldast
á síðustu 20 árum, var um 7 DDD/1000
íbúa/dag árið 1995 en var komin yfir 18
árið 2014. Þessi mikla aukning kallar á
skýringar.
Aukin notkun sterkra verkjalyfja hef-
ur einnig átt sér stað hjá öðrum þjóðum
sem hefur valdið ýmsum vandamálum
þar sem hafa kallað á aðgerðir til að hefta
óhóflegar ávísanir sterkra verkjalyfja. Í
mars voru kynntar leiðbeiningar og gát-
listi fyrir almenna lækna í Bandaríkjunum
sem meðhöndla fullorðna einstaklinga
sem þjást af langvinnum verkjum.2 Ástæð-
an fyrir því að Bandaríkjamenn eru að
reyna að hefta ávísanir þessara lyfja er
bæði misnotkunin á lyfjunum sjálfum
en einnig sú staðreynd að einstaklingar
sem misnota ópíóíða eins og oxýkódon
eða búprenorfín, eru í aukinni hættu á að
leiðast út í misnotkun enn hættulegri efna
eins og heróíns. Þeir sem eru háðir sterk-
um verkjalyfjum eru 40 sinnum líklegri en
aðrir til að verða heróínsprautufíklar og
er óhóflegum ávísunum verkjalyfja meðal
annars kennt um þann mikla heróínfar-
aldur sem geisar í Bandaríkjunum í dag.
Árið 2011 létust þar í landi 1,4 á hverja
100 þúsund íbúa vegna heróínfíknar en
voru árið 2013, aðeins tveimur árum síðar,
komnir í 2,7 sem er tæplega tvöföldun.2
Heróín hefur ekki náð fótfestu á Ís-
landi en þeir einstaklingar sem glíma við
sprautufíkn velja flestir metýlfenídat sem
fyrsta kost samkvæmt nýlegri rannsókn.3
Engar rannsóknir eru til hér á landi sam-
bærilegar við þær sem eru til fyrir Banda-
ríkin sem benda til að ópíóíðafíkn auki
líkur á sprautufíkn. Lyfjateymi Embættis
landlæknis hafði 36 dauðsföll til skoðunar
á árinu 2015 þar sem grunur leikur á að
einstaklingar hafi látist vegna lyfjaeitr-
unar. Flestar banvænar lyfjaeitranir eru
blandaðar þar sem nokkur lyf koma við
sögu, oft ásamt áfengi. Ópíóíðar fundust
í 19 af þessum 36 einstaklinga hópi eða
rúmlega helmingi tilfella. Í hópnum voru
9 sem í fannst metýlfenídat en aðeins einn
hafði fengið lyfinu ávísað á árinu fyrir
andlát. Einnig fundust sterk verkjalyf í 6 af
þeim 9 sem höfðu notað metýlfenídat fyrir
andlátið.
Þegar þróun í ávísunum verkjalyfja
á Íslandi er skoðuð vaknar sú spurning
hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur af því
að vaxandi hlutfall lyfjanna rati í hend-
urnar á öðrum en fengu þeim ávísað, fari
á flakk. Í dag hafa allir læknar á Íslandi
aðgang að lyfjagagnagrunni þannig að
erfiðara er fyrir einstaklinga að fara á
milli lækna og verða sér úti um sömu lyf
á sama tíma. Gátlistinn sem var kynntur
í Bandaríkjunum á fyllilega við um slíka
meðferð hér á Íslandi. Þá er rétt að nefna
að í mörgum tilfellum þegar fólk er að
glíma við tilfallandi verki ætti að tak-
marka skammta ópíóíða eða velja vægari
verkjalyf í stað ópíóíða. Fyrir einstaklinga
sem glíma við krabbamein, miklar þján-
ingar vegna annarra alvarlegra sjúkdóma
eða eru í líknandi meðferð eru ópíóíðar
oft eini lyfjakosturinn. Það ber að hafa í
huga að gagnsemi ópíóíða til verkjastill-
ingar í skammtímameðhöndlun mikilla
verkja, af öðrum toga en krabbameini, er
vel staðfest í rannsóknum en aftur á móti
hefur gagnsemi ópíóíða í langtímameðferð
við verkjum ekki verið staðfest.4 Meðferð
langvinnra verkja getur verið mjög flókin
og til að fást við það verkefni er verkja-
teymi starfandi á Landspítala. Mikil þörf
er á úrræðum fyrir einstaklinga með
langvinna verki utan spítalans sem mögu-
lega væri hægt að sinna ef komið væri á
fót verkjateymi á vegum heilsugæslunnar.
Heimildir
1. Nomesco 2014.
2. stacks.cdc.gov/mmwr/preview/mmwrhtml/mm6426a3.
htm
3. Bjarnadottir GD, Haraldsson HM, Rafnar BO, Sigurdsson
E, Steingrimsson S, Johannsson M, et al. Prevalent intra-
venous abuse of methylphenidate among treatment-seek-
ing patients with substance abuse disorders: a descriptive
population-based study. J Addict Med 2015; 9: 188-94.
4. Franklin GM, American Academy of Neurology. Opioids
for chronic noncancer pain: a position paper of the
American Academy of Neurology. Neurology 2014; 83:
1277-84.
Ávísanir á ópíóíða og alvarleg fíkn
Magnús Jóhannsson
læknir
magnus@landlaeknir.is
Anna Björg Aradóttir
sviðsstjóri
Lárus S. Guðmundsson
lyfjafræðingur
Ólafur B. Einarsson
verkefnisstjóri
F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 1 4 . P I S T I L L