Læknablaðið - 01.10.2016, Side 12
428 LÆKNAblaðið 2016/102
sjúkdóm. Þeir sem voru með fylgisjúkdóm voru því að meðaltali
með 4,5 fylgisjúkdóma (tafla I). 60% sjúklinga voru með stoðkerfis-
vandamál (lið- og bakverki); 196 sjúklingar voru á fastri meðferð;
147 tóku verkjalyf, 156 tóku NSAIDs-lyf og 115 tóku lyf úr báðum
lyfjaflokkum. 38% sjúklinga voru á meðferð vegna háþrýstings,
þriðjungur á meðferð vegna þunglyndis og 17% á meðferð vegna
sykursýkis af tegund tvö.
Aðgerðartíminn styttist marktækt með tímanum. Á tímabilinu
2002-2005 var meðalaðgerðartíminn 72,6 mínútur (±15,1) saman-
borið við 32,2 mínútur (±5,7) á tímabilinu 2010-2014 (p<0,001).
Miðgildi legutíma eftir aðgerð voru tveir dagar (spönn 1-85).
Skipulagður legutími voru þrír dagar fyrstu þrjú árin, tveir dagar
næstu 5 árin á eftir en einn dagur frá árinu 2009. Sá sjúklingur sem
lengst lá inni eftir aðgerð fékk leka og röð fylgikvilla og lá inni í
85 daga.
Snemmkomnir fylgikvillar (≤30d)
4,8% sjúklinga fengu snemmkomna fylgikvilla (tafla II). Tuttugu
sjúklingar (2,6%) fóru í bráðaaðgerð; 9 vegna leka á magastúf eða
mjógirni, 9 vegna blæðingar og tveir vegna garnastíflu.
Eftirfylgni
30 sjúklingar voru erlendir ríkisborgarar (Bandaríkin, Noregur,
Færeyjar) sem hafa ekki verið í eftirliti hérlendis og ekki búsettir á
Íslandi. 16 sjúklingar (2%) voru látnir við lok rannsóknartímabils-
ins (tafla VII). Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í 24 af 726
sjúklingum vegna rannsóknarinnar. Flestir þeirra voru búsettir
erlendis. Eftirfylgnin náði því til 702 af 772 sjúklingum (91%), sjá
flæðirit mynd 2. Meðaltalseftirfylgnitími var 7,4 ár (±3,5) frá aðgerð.
Árangur aðgerðar
Áhrif á líkamsþyngd
Mynd 3a sýnir hlutfallslegt yfirþyngdartap (%EBMIL) sem er skil-
greint sem tap á þyngd umfram BMI 25 kg/m2. %EBMIL var að
meðaltali 80% eða 56,9 kg (±14,7) eftir eitt og hálft ár, 70% eða 49,6
kg (±14,6) eftir 5 ár og 64% eða 48,4 kg (±14,4) eftir 10-13 ár (mynd
3b). Af þeim 589 sjúklingum sem fylgt var eftir í meira en þrjú ár
höfðu 92 sjúklingar (16%) þyngst tölvert aftur eftir aðgerð og 15
þeirra (2,5%) sem misstu minna en helming af yfirþyngdinni og
töldust með ófullnægjandi þyngdartap (%EBMIL ≥50 eða BMI>33).
Þyngdartap þessa hóps var að meðaltali 39,1% af yfirþyngd eða 18,2
kg (±10,2).
Áhrif á fylgisjúkdóma
Áhrif aðgerðar á fylgisjúkdóma eru sýnd í töflu III. 71,2% sjúklinga
með sykursýki af tegund tvö fyrir aðgerð fóru í fullt sjúkdómshlé
eftir aðgerð. 17,2% sjúklinga fækkuðu föstum lyfjum um meira en
helming. 11,3% eru á óbreyttri lyfjameðferð eða á fleiri lyfjum. Einn
sjúklingur greindist með sykursýki sem ekki var til staðar fyrir að-
gerð. Sá hafði náð góðum árangri og haldið fyrstu fjögur árin en
síðan þyngst um 21 kg á 5 árum úr 25 kg/m2 í 34 kg/m2.
R A N N S Ó K N
Tafla I. Fylgisjúkdómar tengdir offitu (n=772).
Fylgisjúkdómar Fjöldi n (%)
Langvinnir liðverkir 486 (63,0)
Háþrýstingur* 293 (38,0)
Bakverkir 275 (35,6)
Þunglyndi* 262 (33,9)
Vélindabakflæði* 165 (21,4)
Kæfisvefn 145 (18,8)
Skert sykurþol* 133 (17,2)
Astmi* 110 (14,3)
Þvagleki (við áreynslu) 77 (10,0)
Blóðfituraskanir* 63 (8,2)
Hjarta- og æðasjúkdómur 48 (6,2)
Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni 40 (5,2)
Enginn fylgisjúkdómur 293 (38,0)
*Sjúklingar sem eru á meðferð
Tafla II. Snemmkomnir fylgikvillar (n=772).
Fylgikvillar (≤ 30 dagar) Fjöldi n (%) Enduraðgerð n (%)
Blæðing 19 (2,5) 9 (1,2)
Samtengingarleki 11 (1,4) 9 (1,2)
Sárasýking 2 (0,26) 0 (0,0)
Garnastífla 2 (0,26) 2 (0,26)
Lungnavandamál 2 (0,26) 0 (0,0)
Blóðsegarek 1 (0,13) 0 (0,0)
Dánartíðni 0 (0,0)
Einungis fylgikvillar sem þörfnuðust virkrar meðferðar eða aðgerðar eru skráðir.
Mynd 2. Flæðirit sem sýnir eftirfylgd.