Fréttatíminn - 12.02.2016, Side 10
að þessi staða veikir samfélagið.
Flokkarnir hafa sveigt samfélagið
að þörfum sínum gegnum áratugi
við völd. Þeir fá styrki úr ríkissjóði
sem meginstoðir lýðræðislegs starfs
í samfélaginu. Flokkarnir hafa verið
gatnamót mismunandi hagsmuna
og skoðana og í gegnum þá hafa
verið dregin helstu álitamál sam-
félagsins og niðurstöðu þeirra leitað
innan vébanda flokkanna og milli
þeirra.
Það er því alvarleg staða þegar
þessar valdastofnanir hafa misst
stuðning meðal almennings. Um-
boð flokkanna veikist og þeir eiga
erfitt með að endurnýja stefnu sína
eða laða fólk til starfs og þátttöku.
Í raun má segja að allir flokkarnir
séu í sambærilegri stöðu. Þeir hafa
veikst svo mjög að innra með þeim
býr ekki lengur þróttur til að finna
leið út úr vandanum, endurnýjun-
arkrafturinn er horfinn.
Það sést vel þegar skoðuð er af-
staða aldursflokkanna til flokkanna.
Aðeins 34 prósent fólks undir þrí-
tugu treystir sér til að kjósa hefð-
bundnu flokkana, samkvæmt könn-
un MMR frá í janúar, en 66 prósent
segjast vilja kjósa Pírata eða eitt-
hvað annað en fjórflokkinn. Fjór-
flokkurinn er í tæpum minnihluta
meðal fólks frá þrítugu til fimm-
tugs; 49 prósent segjast vilja kjósa
einhvern fjórflokkanna en 51 pró-
sent Pírata eða eitthvað annað.
Það er ekki fyrr en meðal fólks yfir
fimmtugu sem fjórflokkurinn nær
meirihluta.
Það virðist augljóst að þessir
fjórir flokkar miði stefnu sína og
sjónarmið fyrst og fremst út frá
hagsmunum og afstöðu eldra fólks.
Fyrir yngra fólki virka þessar stofn-
anir sem andstæðingur; fyrirbrigði
sem vinnur gegn hagsmunum þess
og vill því illt.
Tekjur yngra fólks lækka
Hvað er hæft í því? Hafa hefð-
bundnu stjórnmálaflokkarnir svik-
ið unga fólkið?
Samkvæmt upplýsingum sem
Hagstofan vinnur upp úr skattfram-
tölum er augljóst að kjör yngra fólks
hafa versnað það sem af er þessari
öld á meðan kjör miðaldra og eldra
fólks hafa batnað. Munurinn er
mikill og sláandi.
Þannig höfðu atvinnutekjur ung-
menna, 24 ára og yngri, lækkað um
tæpar 37 þúsund krónur á mánuði
að meðaltali frá aldamótum fram til
2014. Ráðstöfunartekjur þessa hóps
eftir skatta höfðu lækkað nokkuð
minna eða um tæplega 27 þúsund
krónur á mánuði. Það er samt nokk-
ur upphæð eða 323 þúsund krónur
á ári. Það munar um minna.
Kjör ungs fólks á aldrinum 25 til
39 ára hafa versnað enn meira. At-
vinnutekjur þess hafa að meðaltali
dregist saman um tæplega 59 þús-
und krónur á mánuði og ráðstöfun-
artekjur eftir skatta um tæplega 50
þúsund krónur.
Tekjur allra annarra aldurshópa
hafa hækkað og því meira sem fólk
er eldra. Ungt miðaldra fólk á aldr-
inum 40 til 49 ára hafði þannig rúm-
lega 27 þúsund krónum meira í at-
vinnutekjur 2014 en um aldamótin
og tæplega 13 þúsund krónum meira
í ráðstöfunartekjur eftir skatta.
Eldra miðaldra fólk, 50 til 66 ára,
fékk rúmlega 46 þúsund krónum
meira í atvinnutekjur 2014 en um
aldamótin og tæplega 54 þúsund
krónum meira í ráðstöfunartekjur.
Fólk á ellilífeyrisaldri fékk tæp-
lega 117 þúsund krónum meira í
heildartekjur á mánuði 2014 en um
aldamótin og hafði rúmlega 79 þús-
und krónum meira á mánuði til ráð-
stöfunar eftir skatta.
Þegar þetta er skoðað er aug-
ljóst úr hvaða jarðvegi hugtakið
Sjónarmið sjötugra er sprottið. Það
er sprottið úr þessum raunveru-
leika og lýsir upplifun ungs fólks
sem finnur á eigin skinni hvern-
ig lögmál samfélagsins eru sveigð
að hagsmunum hinna eldri og frá
hagsmunum ungs fólks.
Eldri eignast meira
Þegar eignabreytingar eru skoðaðar
birtist svipuð mynd. Heildareignir
yngri hópanna dragast saman og
þeir búa í ódýrari íbúðum en um
aldamótin. Af eignastöðu yngsta
hópsins má sjá að hann er nú ólík-
legri en áður til að hætta sér út í
íbúðakaup. Eignir ungs fólks á
Ungt fólk er
í vítahring
Guðrún Andrea Maríudóttir er
25 ára gamall nemi í félagsráð-
gjöf og vinnur meðfram náminu
á sambýli. Hún segir ungt fólk
komið í ákveðinn
vítahring. „Mín
kynslóð hefur ekki
færi á að kaupa
sér íbúð nema
safna milljónum í
útborgun og situr
því föst í leiguíbúð
sem kostar tvöfalt verð útborg-
unar á mánuði. Þetta setur manni
skorður og mín tilfinning er að
manni sé beinlínis gert erfitt fyrir
að fóta sig sem ung manneskja.“
Hún segir kynslóðirnar á undan
hafa sett viðmið um lífsgæði
sem er ekki séns fyrir ungt fólk
að fylgja: „Maður á til dæmis að
mennta sig í stað þess að fara
strax á vinnumarkað, en svo
fær maður ekki vinnu nema
hafa reynslu.“ Henni finnst ekki
furðulegt að ungt fólk styðji ekki
fjórflokkinn í ljósi stöðunnar: „Við
upplifum að ráðamenn líti bein-
línis niður á okkur. Það er skrýtið
að fjórflokkarnir reyni ekki að
halda í unga fólkið, því við erum
stærsti kjósendahópurinn. Ef ekk-
ert er í boði fyrir okkur nennum
við einfaldlega ekki á kjörstað!“
Tekjur ungra dragast saman
en kjör eldra fólks batnar
Það er sama hvort litið er til heildartekna, atvinnutekna, vaxta- og barnabóta, eigna
eða eigin fjár; allar línur liggja niður á við þegar breytingar á kjörum ungs fólks á
þessari öld eru skoðaðar. Á sama tíma hafa tekjur miðaldra og eldra fólks aukist
og eignastaða batnað. Fyrstu fimmtán ár aldarinnar hafa því ekki litast af almennri
kjararýrnun vegna Hrunsins 2008 heldur einkennast þau af aðskilnaði kynslóðanna
þar sem kjör yngra fólks versna en kjör eldra fólks batnar.
Ungmenni (< 24 ára)
Heildartekjur -31.212 kr. (-16%)
Atvinnutekjur -36.370 kr. (-21%)
Skattar -6.055 kr. (-24%)
Vaxta- og barnabætur -1.721 kr. (-56%)
Heildareignir -107.408 kr. (-7%)
Fasteignir -364.359 kr. (-44%)
Skuldir -512.013 kr. (-44%)
Eigið fé +404.606 kr. (+129%)
Ráðstöfunartekjur á mánuði
-26.880 kr. (-16%)
Ungt fólk (25–39 ára)
Heildartekjur -54.580 kr. (-10%)
Atvinnutekjur -58.719 kr. (-12%)
Skattar -12.078 kr. (-10%)
Vaxta- og barnabætur -7.305 kr. (-34%)
Heildareignir -1.635.499 kr. (-12%)
Fasteignir -761.345 kr. (-7%)
Skuldir -27.626 kr. (-0,25%)
Eigið fé -1.607.853 kr. (-39%)
Ráðstöfunartekjur á mánuði
-49.813 kr. (-11%)
Ungt miðaldra fólk (40–49 ára)
Heildartekjur +42.992 (+6%)
Atvinnutekjur +27.198 kr. (+4%)
Skattar +22.404 kr. (+12%)
Vaxta- og barnabætur -4.196 kr. (-27%)
Heildareignir +4.083.564 kr. (+16%)
Fasteignir +4.855.955 kr. (+27%)
Skuldir +6.602.347 kr. (+52%)
Eigið fé -2.518.783 kr. (-20%)
Ráðstöfunartekjur á mánuði
+12.847 kr. (+2%)
Eldra miðaldra fólk (50–66 ára)
Heildartekjur +83.520 (+11%)
Atvinnutekjur +46.147 kr. (+8%)
Skattar +30.023 kr. (+17%)
Vaxta- og barnabætur +64 kr. (+1%)
Heildareignir +8.304.662 kr. (+27%)
Fasteignir +8.855.753 kr. (+44%)
Skuldir +6.644.983 kr. (+83%)
Eigið fé +1.659.656 kr. (+7%)
Ráðstöfunartekjur á mánuði
+53.561 kr. (+10%)
Eldra fólk (67+ ára)
Heildartekjur +116.581 (+30%)
Atvinnutekjur +14.692 kr. (+17%)
Skattar +37.557 kr. (+58%)
Vaxta- og barnabætur +251 kr. (+19%)
Heildareignir +14.746.068 kr. (+57%)
Fasteignir +11.004.755 kr. (+73%)
Skuldir +3.225.805 kr. (+144%)
Eigið fé +11.520.262 kr. (+49%)
Ráðstöfunartekjur á mánuði
+79.267 kr. (+24%)
< 24 ára 25–39 ára 40–49 ára 50–69 ára
Ungum
atvinnulausum
fjölgar mest
Atvinnulausir sem hlutfall
af hverjum aldurshópi.
2010 2014
0,
9%
0,
9%
1,5
%
2,
4%
2,
4%
1,7
%1,2
%
4,
2%
„Ég upplifi okkur sem kynslóðina sem lendir
einhversstaðar á milli. Eldri systkini okkar
gátu keypt sér húsnæði þó það væri kannski
ekki á bestu kjörunum en það er svo miklu
erfiðara fyrir okkur að eignast eitthvað.
Margir stúdentar hafa áhyggjur af því hvað
taki við eftir foreldrahús,“ segir Aron Óskars-
son, formaður stúdentaráðs. Aron er nemi á ferða-
málabraut og leigir í stúdentagörðunum. „Auðvitað
vilja flestir búa nálægt fjölskyldu sinni en svo er maður
að heyra hvað lífið sé miklu auðveldara fyrir ungt fólk
annarsstaðar í Evrópu, eins og t.d. í Danmörku þar sem
fólk fær styrk til að vera námi í stað þess að
safna skuldum. Kjör okkar fara bara versnandi.
Könnun sem Félagsvísindastofnun gerði í árið
2014 sýndi að ráðstöfunartekjur íslenskra
stúdenta eru 100 þúsund krónum lægri á mán-
uði en árið 2004.“
Aron segir lélega kosningaþátttöku ungs
fólks vera áhyggjuefni. „Þegar staðan er svona þá
ættum við unga fólkið að láta okkur málin varða. En ég
held að lítill áhugi sé að hluta til vegna skorts á samtali
við ungt fólk. Núna er t.d. verið að endurskoða Lána-
sjóðinn en það er enginn nemandi í stýrihópnum.“ -hh
Vantar samtal við ungt fólk
10 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016
NÝJAR
SUMAR
VÖRUR
Dæmi m 2x160 glýsingu
Lógó er hel ingurinn af breiddinni
miðjusett - tagline ekki minna en 6 pt
Lógó svart með hvítu eða hvítt með svörtu
Litaður flötur (80% transparent) kemur yfir
neðri helming myndar en hæð ræðst af
mynd og magni af texta. Skálína í öfuga átt
miðað við lógó (sami halli)
Fyrirsögn í sama lit og litaflötur (litur dreginn
úr myndinni)
Letur: Cooper Hewitt Light hástafir
(áhersluorð mega vera í Medium)
Ef bakrunnur er hvítur þá á að vera svartur
rammi, 0,5 pt.
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
60% afsláttur
af öllum fatnaði og skóm!
Verðhrunið
er hafið!