Fréttatíminn - 12.02.2016, Blaðsíða 28
Ég ákvað að kíkja niður í bæ og
fá mér rauðvínsglas með vinkonu
minni, Alice, á kaffibarnum Le Car-
rillon. Þegar við heyrðum skothvelli
héldum við fyrst að þetta væru
flugeldar. En svo gerðist þetta æ há-
værara og ógnin þyrmdi yfir okkur.
Við vissum ekkert hvað var að gerast
fyrr en við sáum eldglæringarnar.
Þetta var fyrsti staðurinn sem var
ráðist á. Þarna hófust skotárásirnar
þetta kvöld. Svo fékk ég fyrsta skotið
og féll í götuna. Vinkona mín sömu-
leiðis. Fyrstu byssukúlurnar þeyttu
okkur niður og það hefur sjálfsagt
orðið okkur til lífs, að við féllum
niður svona snemma. Alls staðar í
kringum okkur lést fólk. Við vorum
ótrúlega heppnar. Við lifðum af.“
„Ég komst samt ekki á gjörgæslu-
deild fyrr en eftir þrjá tíma, það
voru svo margir særðir sem þurftu
hjálp. Það var farið með okkur í
fyrstu í sjúkrabíla út fyrir borgina,
enn verið að leysa ástandið á Ba-
taclan. Þetta voru alls þrír tímar sem
liðu, frá því að ég var skotin og þang-
að til að ég komst undir læknishend-
ur, þeir liðu hægt og sérkennilega á
meðan verið var að girða allt af, loka
öllum götum. Þetta virtist líða enda-
laust. En þrátt fyrir alla örvænting-
una fannst mér magnað að fylgjast
með öllu þessu fólki að störfum. Það
var mjög fallegt og manneskjulegt
að sjá það vinna svona hratt og vel
og gera alveg ótrúlega hluti undir
gríðarmiklu álagi.“
Fjandinn, er þetta að gerast!
Sástu aldrei árásarmennina?
„Nei, aldrei. Ég var skotin, féll
niður. Sá ekkert. Ég er ekki viss um
að nokkur maður á þessum kaffibar
hafi séð þá. Samt voru þeir einungis
í tveggja metra fjarlægð. Þeir voru
sennilega þrír eða fjórir. Við vitum
það ekki enn. Þeir sem sáu árásar-
mennina greinilega hafa líklegast
verið myrtir.“
Hvað fór í gegnum hugann þegar þú
lást þarna og hafðir áttað þig á að þú
vars varst stödd í miðri hryðjuverka-
árás?
„Ég bara bölvaði hressilega!
Merde, merde, merde! Fjandinn
þetta er þá að gerast. Svo fór ég
að hugsa um að fela mig, liggja á
jörðinni og láta lítið fyrir mér fara.
Hvernig get ég varið mig? En manni
dettur ekkert gáfulegt í hug á svona
stundu. Maður veit að þetta er að
gerast og það er ekkert sem breytir
því. Svo hringdi ég í Finnboga.“
„Ég sá bara skilaboðin í símanum
– að hún hefði verið skotin og ég
þyrfti að koma strax. Þannig að ég
kom samstundis með leigubíl,“ segir
Finnbogi.
Hvernig var aðkoman?
„Ég fékk ekki að sjá Caroline. Það
voru herlögreglumenn alls staðar.
Búið að girða allt af. Hvarvetna
mátti sjá sjúkraflutningamenn bera
út látna og særða. Það var mikil
spenna í loftinu og ég fékk ekkert að
vita. En það var þarna maður sem
var með Caroline sem leyfði mér
að heyra í henni gegnum síma og
þá vissi ég að hún væri á lífi og væri
á leið á spítala. Svo ég fór þangað
tveimur tímum seinna og hitti hana
þar.“
Að verða fyrir hryðjuverkaárás er
ekki venjuleg lífsreynsla. Hafa þessar
árásir breytt þér eitthvað Caroline?
„Nei, það held ég ekki. Það á samt
eftir að koma í ljós. Ég er auðvitað
nýskriðin upp úr hjólastól, ég er
farin að ganga á ný. Ég er ekki búin
að fara á kaffihús, bar eða veitinga-
hús eftir að þetta gerðist. Kannski á
ég eftir að verða hrædd. Ég veit það
ekki ennþá. En að öðru leyti er ég
sama manneskjan, en ég á örugg-
lega eftir að upplifa einhver eftir-
köst, einhverja hræðslu sem ég hef
aldrei fundið fyrir áður. Ég er með-
vituð um þetta og það er eðlilegt
að upplifa slíkt eftir svona áfall. En
mér finnst ég ekki hafa breyst – og
ég ætla ekki að láta þessa atburði
breyta mér. Ég má ekki láta það
gerast.“
En þú Finnbogi, hafa þessar árásir
breytt þér? Ertu tortryggnari?
„Já, en kannski bara í fyrstu. Ég
varð eftir í París og hélt áfram að
gera það sem ég er að gera. Maður
var afskaplega varfærinn svona
fyrstu dagana. Svo kemur þetta
alltaf yfir mann öðru hvoru, þetta
óöryggi, mjög sjaldan að vísu. Ég
labba mikið um París og er mikið úti
á kaffihúsum og ég hef ekkert dregið
úr því. Mestu áhrifin í fyrstu voru
þessi mikla óvissa. Hvað hafði eigin-
lega gerst? Eftir því sem tíminn leið
og maður skildi betur alla þessa at-
burðarás, leið manni betur.“
Finnst þér hryðjuverkaárásirnar
hafa breytt stemningunni í París?
„Eins og er, já. Þetta voru stórar
árásir sem hafa vissulega sett mark
sitt á borgina. En þetta er tímabund-
ið ástand. París hefur áður gengið í
gegnum annað eins, hryðjuverk og
stríð. Þetta var stór árás sem hafði
stór og mikil áhrif, en París er bara
svo miklu stærri. París er STÓRT og
mikið fyrirbæri sem er ekki auðvelt
að eyðileggja. Fyrir langflesta hér
heldur því lífið bara áfram.“
Friðsæl og yfirveguð viðbrögð
En hvað finnst þér þá um viðbrögð
stjórnvalda? Stríðsyfirlýsingar, loft-
árásir í Sýrlandi, neyðarlögin, allar
þessar handtökur?
„Mér finnst eðlilegt að ríkisstjórn-
in bregðist við. Mér finnst líka eðli-
legt að þjóðin spyrji sig spurninga.
Það er enn að gerast. Það er svo
stutt síðan þetta gerðist. Við eigum
eftir að sjá hvort þessar aðgerðir
stjórnvalda séu réttmætar. Við
höfum auðvitað ágætis fordæmi frá
Bandaríkjunum þar sem menn fóru
sannarlega yfir strikið í viðbrögðum
við hryðjuverkum. Mér sýnist samt,
og ég held, að viðbrögð franskra
stjórnvalda séu þaulhugsuð. Þau
voru greinilega vel undirbúin fyrir
svona árásir, þau brugðust við hratt,
það var greinilega til áætlun, strax
frá byrjun.“
Caroline, óttast þú að árásirnar eigi
eftir að breyta frönsku samfélagi?
„Nei, ekki raunverulega. Fylgi
Front National var mikið fyrir
þessar árásir og ég held að þær hafi
ekki aukið fylgi hægri-öfgamanna.
Mér fannst raunar jákvætt að sjá hin
almennu viðbrögð, þau voru friðsæl
og yfirveguð. Maður hefur auðvitað
vissar efasemdir með þessi neyðar-
lög en ætli maður verði ekki bara að
treysta stjórnvöldum í þessu. Þetta
eru mjög flóknar og erfiðar kring-
umstæður, það er því erfitt að gagn-
rýna viðbrögð stjórnvalda. Hvað
eiga þau að gera? Ég held þau séu að
reyna að gera það besta í stöðunni.“
Ætla að læra arabísku
En framtíðin? Hvað tekur við hjá
ykkur?
„Nú er það endurhæfing. Koma
löppunum í gang sem fyrst. Ég get
ekki ferðast mikið eins og er. Við
erum föst hér í Montmartre, sem
er svo sem ekki slæmt. Ég má samt
ekki fara í flugvél en ég get tekið lest.
Ég er farin að sakna þess að vera
frjáls, geta farið um, gert það sem ég
vil. Eins og er þarf ég manneskju til
að hjálpa mér hvert sem ég fer.“
„Hún er vanalega alltaf með eitt-
hvað á prjónunum,“ segir Finnbogi,
„hún er alltaf að gera eitthvað. Þetta
bindur hana niður eins og er. Mann-
eskja sem er alltaf í fimmta gír og er
allt í einu sett í handbremsu. Hún er
samt sem áður óstöðvandi!“
„Það fyrsta sem ég ætla að gera er
að læra arabísku og sjá Atlantshaf-
ið,“ segir Caroline. „Finnbogi talar
arabísku og ég fer á fullt eftir tvær
vikur hjá Arabísku menningarstofn-
uninni í París og svo kannski bara að
flytja til Mið-Austurlanda. Það gæti
verið spennandi! En fyrst er það Atl-
antshafið. Við þurfum að komast til
Bretaníu eða Normandí, finna fyrir
hafinu, fá kraftinn þaðan. Svo væri
gaman að fara til Íslands í sumar.“
Þið eruð uppfull af krafti og bjart-
sýni – jafnvel eftir svona hrylling –
hvernig farið þið að því?
„Hvað annað?,“ spyr Finnbogi.
„Lífið er gott, uppfullt af tæki-
færum. Við erum umkringd góðu
fólki, vinum og fjölskyldu, við erum
enn með íbúðina okkar hér í Mont-
martre.“
„Við erum gæfurík,“ segir Caro-
line. „Það fylgir okkur einhver gæfa,
Ég finn það sterkt. Svo hef ég aldrei
kunnað að stoppa. Maður verður
bara að halda áfram, sama hvað
gerist.“
Árásirnar hafa
ekki breytt okkur,
við erum enn sama
fólkið. Kannski
vegna þess að við
erum stöðugt um-
kringd góðum vinum
og fjölskyldu.
Caroline Courriouix
28 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016
„Ég verð með svona 5% örorku sem á ekki eftir að hamla mér mikið.
Sem betur fer er ég ekki ballettdansari eða skíðakona!“
KRINGLUNNI | SKEIFUNNI | SPÖNGINNI | SMÁRALIND
dagar!
AFSLÁTTUR
GROHE Start Edge
eldhústæki.
15.995kr.
15331369
Almennt verð 17.995 kr.
AuðvelT að versla á byko.is
sendum út um allt land
TAKTU ÞÁTT OG VERTU MEÐ Í AÐ TRYGGJA
901-5001 - 1000 kr
901-5002 - 2000 kr
901-5005 - 5000 kr
Styrktu Reykjadal
með því að hringja
eða senda sms:
20.02 - WORLD CLASS LAUGAR
12:00 - Spinning
12:45 - Tabata
Dj, happdrætti með vinningum, drykkir og
stuð. Þátttakendur þurfa ekki að vera
korthafar í World Class. Frjáls framlög.
20.02 - ÆVINTÝRAGARÐURINN
14:00-18:00 Dagskrá fyrir krakka.
Íþróttaálfurinn, töframaður og íþróttamaður
mæta og skemmta börnunum.
1500- krónur inn
ALLUR ÁGÓÐI RENNUR
TIL REYKJADALS
Sólgleraugu með styrkleika
Kringlunni, 2. hæð - 103 Reykjavík | S: 568 9111 | www.augad.is