Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 12.02.2016, Síða 30

Fréttatíminn - 12.02.2016, Síða 30
30 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016 HARPA silfuRbeRg Sunnudag 14. febrúar kl. 20:00 Miðaverð kr. 4.500 / 3.500 stóRsveit ReykjAvíkuR Styrkt af Miðar á harpa.is og í miðasölu Hörpu flytur far east suite eftir Duke ellington Duke ellington litrík og spennandi níu laga svíta sem Duke ellington samdi í samvinnu við sinn nánasta samstarfsmann; billy strayhorn. einstakt tækifæri til að heyra eitt af lykilverkum síðari hluta ferils ellingtons. stjórnandi og kynnir: sigurður flosason Lítið fólk, stórir draumar Mynd | Hari Steinunn er fegin að þurfa ekki að halda á túbunni á æfingu. Úlfhildur vildi heldur spila á selló en fiðlu því þá þarf hún ekki að standa. Freyja vildi læra á hörpu eins og systir hennar. Skorri æfir á selló og kontrabassa en vill ekki læra á litla fiðlu. Mynd | Rut Mynd | Rut Mynd | Rut Einu sinni opnaði ég töskuna og þá var hálsinn brotinn, ég tók sellóið sem sjálfsögðum hlut og fór ekki nógu vel með það. Úlfhildur Ragna Ég vildi ekki spila á lítið hljóðfæri eins og fiðlu heldur eitthvað stórt. Skorri Pablo Þau Freyja, Skorri, Daði, Úlfhildur og Steinunn eiga það sameiginlegt að spila á stór hljóðfæri. Litlir fingurnir ná ekki alltaf gripinu og stundum er erfitt að bera hljóðfærið á milli staða, en ástríðan og smá hjálp frá mömmu og pabba gerir allt mögulegt. Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildur@frettatiminn.is Taskan svolítið þung Tíu ára Úlfhildur Ragna Arnar- dóttir ætlaði sér alltaf að læra á strengjahljóðfæri og stóð valið á milli fiðlu og sellós. „Mér finnst betra að sitja en standa svo ég ákvað að læra á selló. Ég elska tónlist og finnst hljóðið úr sellói svo fallegt.“ Fyrir Úlfhildi er lítið mál að flytja sellóið milli staða þar sem hún býr í næsta húsi við tónlistarkennarann. „Taskan er stundum svolítið þung en ég er enga stund að labba yfir. Einu sinni opnaði ég töskuna og þá var hálsinn brotinn, ég tók sellóið sem sjálfsögðum hlut og fór ekki nógu vel með það.“ Úlfhildur er óákveðin hvort hún gerist selló- leikari en getur ekki ímyndað sér að hætta. „Bryndís, kennarinn minn, er svo skemmtileg, ég ætla að læra hjá henni þangað til ég verð 55 ára. Þá er hún orðin gömul og hætt að sjá hvort ég sé að gera villur.“ FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í DAG? HAFÐU ÞÁ SAMBAND VIРDREIFING@FRETTATIMINN.IS

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.