Fréttatíminn - 12.02.2016, Blaðsíða 36
Mynd | Júlía Runólfsdóttir
Mikil dulúð er yfir ögrandi
rapparanum Lexa Picasso.
Hann ferðast í þyrlum, gistir
á hótelsvítum og veifar tíu
þúsund króna búntum á
samfélagsmiðlum. Hann var
rekinn úr grunnskóla, flutt-
ist til Atlanta og kynntist þar
808 mafia.
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildurgreta@frettatiminn.is
Lexi Picasso hefur svo sannarlega
verið á milli tannanna hjá fólki.
Hann hefur ögrað með rapptón-
listinni sinni og myndböndum
þar sem byssur, bílar, eiturlyf og
þyrlur koma við sögu. Á Instagram
birtir hann bunka af tíu þúsund
króna seðlum, reykir gras, drekk-
ur hina margrómuðu Actavis
hóstasaft og hangir með frægum
röppurum í Atlanta. Aðdáendur
rapparans vilja vita hver er Lexi
Picasso? Hvaðan koma pening-
arnir? Og hvernig endaði hann í
Atlanta með 808 mafia?
Á veitingastaðnum Satt á Ice-
landair hótel mælum við Lexi
Picasso og umboðsmaður hans,
Selma, okkur mót. Öll okkar sam-
skipti fram að þessu voru í gegn-
um umboðsmanninn og að ósk
þeirra beggja fór viðtalið fram á
ensku. Ég er smá hissa að sjá hann
– bjóst allt eins við að hann myndi
ekki mæta. En þarna er hann
að drekka cappuccino, klæddur
leðurbuxum og gullskóm, kurteis
og auðmjúkur yfir að vera fenginn
í viðtal.
Hver er Lexi Picasso?
„Ég er þúsundþjalasmiður, geð-
hvarfasjúkur og bý yfir mörgum
persónum. Ég er listræn mann-
eskja þó ég beri það ekki endilega
með mér. Ég fór mikið á listasöfn
þegar ég bjó í Frakklandi, þá sér-
staklega Louvre. Ég er sjálfur
málari og uppáhalds listamaður-
inn minn er Picasso, þaðan kemur
listamannsnafnið mitt. Ég er líka
hvetjandi og veiti fólki innblástur.“
Lexi Picasso, eða Alex Þór Jóns-
son, ólst upp í miðbæ Reykjavíkur
og gekk í Austurbæjarskóla þar til
Hver
er Lexi
Picasso?
honum var vísað úr námi í sjöunda
bekk. Þar með lauk hans skóla-
göngu þegar allir skólar höfuð-
borgarsvæðisins meinuðu honum
aðgang að hans eigin sögn. „Ég á
erfitt með að vera í margmenni og
var lagður í einelti í barnaskóla. Ég
brást illa við eineltinu og olli tjóni
með þeim afleiðingum að ég var
rekinn. Þá vildi enginn skóli neitt
með mig hafa.“
Frá sextán til átján ára aldurs
var Lexi einn á flakki um heiminn
og þótti Ísland of lítið fyrir sína
drauma. „Ég átti ekki heima í ís-
lensku samfélagi, ég varð að slíta
mig frá þessu landi. Ég var ákveð-
inn að gera eitthvað við líf mitt þó
skólakerfið hefði brugðist mér.“
Lexi ætlar ekki að fara nánar
út í ferðalag sitt en segir það hafa
mótað sig sem listamann. „Ég var
blankur og lenti í allskyns rugli
sem ég ætla ekki að telja upp. Það
góða var að ég kynntist öllum
týpum af fólki. Fólki af ólíkum
uppruna, á ólíkum stöðum í lífinu,
á öllum aldri. Það er ekki til vottur
af fordómum í mér eftir þessa lífs-
reynslu.“
Þegar Lexi sneri heim stofnaði
hann hljómsveitina b2b ásamt
félaga sínum Cody Shaw og gáfu
þeir út umdeilt myndband þar
sem ófáum fimmþúsundköllum
var kastað í loftið með sportbílum
í bakgrunni. Myndbandið rataði
inn á vefsíðu World Star Hip Hop
þar sem upprennandi tónlistar-
menn eru gjarnan uppgötvaðir. Í
kjölfarið segir Lexi að rapparinn
og tónlistarframleiðandann Sout-
hside hafi hringt í sig og boðið sér
takt undir lögin sín. „Hann sagðist
fíla lagið okkar og spurði hvort við
vildum kaupa af þeim takt fyrir
fleiri lög. Ég millifærði á hann
peninga en ákvað að taka þetta
skrefinu lengra og kaupa mér miða
til Atlanta í ágúst 2014. Ég held að
Southside hafi dáðst að drifkraft-
inum í mér því hann var mættur til
að taka á móti mér á flugvellinum.
Hann bauð mér lítinn samning
sem fól í sér aðstoð hans og með-
lima 808 mafia. Ég fékk að búa hjá
einum þeirra, TM 88, fyrstu þrjá
mánuðina mína í Atlanta.“
808 Mafia tók Lexa opnum
örmum og kynntu hann fyrir
drykknum lean, þar sem Sprite
er blandað í hóstasaft. Götuverð
hóstasaftar hefur snarhækkað
eftir að Actavis tók vöruna sína af
markaði vegna misnotkunar og
segir Lexi þá hafa borgað 2500
dollara fyrir flöskuna. „Ég var
staddur í höll rapparans Waka
Flocka kvöldið sem ég prófaði
lean í fyrsta skiptið. Þeir vöruðu
mig við því að þetta væri sterkt.
Ég er hins vegar með gott þol fyrir
lyfjum því ég hef þurft að taka þau
inn síðan ég var lítill vegna geð-
hvarfasýki, kæfisvefns og fleira. Ég
endaði á að standa einn eftir þegar
allir hinir voru rotaðir. Morguninn
eftir stóðu þeir yfir mér, veifuðu
tómri flöskunni, og voru gáttaðir
á að ég væri enn á lífi eftir að hafa
klárað hana alla.“
Dvölin í Atlanta tók sinn toll
en Lexi segir sig hafa búið í einu
hættulegasta hverfi Bandaríkj-
anna, svokölluðu Zone 6 í Austur-
Atlanta. Þar eru skotárásir algeng-
ar og mikil klíkustarfsemi við lýði.
„Ég var vitlaus fyrst þegar ég kom
og hélt að ég, hvítur maður, gæti
gengið einn um götur bæjarins.
Vinir mínir spurði hvort ég væri
klikkaður og sögðu mér að fara
ekki út óvopnaður eða án fylgdar.
Þar með hætti ég á að vera tekinn
Tilboðsverð kr. 159.615,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta
Fullt verð kr. 199.518,-
Vitamix Pro 750 á sér
engann jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og
hraðastillir sjá til þess
að blandan verður
ávallt fullkomin og
fersk!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Lexi Picasso fluttist til Atlanta í Zone 6 þar sem
fann sig knúinn til þess að ganga með byssu.
Lexi Picasso
Aldur: 24 ára
Atvinna: Tónlistarmaður
Drauma samstarf: Childish
Gambino
Lögleiða kannabis? Algjörlega
Íslendingur sem þú vilt vinna
með: Bubbi
Uppáhalds frumsamda lína:
„I’m becoming the best just
by believing that I can be it.“
Uppáhalds tónlistarmaður:
Childish Gambino, Drake og
the Weeknd
Besta svítan á landinu: Hótel
Rangá
Uppáhalds matur: Nautalund
Hættulegasta sem þú hefur gert:
Pass
36 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016