Fréttatíminn - 12.02.2016, Page 38
Með hækkandi leiguverði og
minnkandi framboði á hús-
næði sem hentar ungu fólki
í startholum lífsins fjölgar
þeim sem dvelja í hreiðrinu
fram eftir aldri. Talið er
að nærri helmingur ungs
fólks á aldrinum 18-30 ára
í Evrópu búi enn í foreldra-
húsum. Ísland er þar ekki
undanskilið. Eru þetta ósjálf-
stæðir eilífðarunglingar eða
er þetta bara það sem koma
skal ef leigumarkaðurinn
breytist ekki?
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Hinn tuttugu og tveggja ára gamli
Róbert Risto Hlynsson er alltaf
kallaður Poddi. Poddi býr með for-
eldrum sínum, yngri bróður, hundi
og tveim hænum á Njálsgötunni.
Herbergi Podda er lítið herbergi í
kjallaranum, en hann hefur fim-
lega komið skápum og rúmi fyrir
svo honum líði vel heima. Af og til
heyrum við þungt fótatak fyrir ofan
okkur. „Þetta er pabbi. Það er frek-
ar nett að þekkja fótatak allra, svo
á kvöldin þegar allir eru sofnaðir
heyri ég líka suðið frá ísskápnum
hingað niður,“ segir Poddi og hlær.
Poddi segir ákveðið frelsi í að
búa heima – nefnilega peninga-
frelsi. „Ég var áður að leigja og þá
hélt ég að sportið væri að maður
mætti hafa læti og halda partí
heima hjá sér. Það var svo ekki
raunin, það má yfirleitt ekkert
halda partí þar sem maður leigir,
svo það er ekkert gaman.“ Poddi
leigði í íbúð þar sem hann borgaði
leigusalanum svart, svaf á sófanum
og mygla var í húsinu. „Þetta var
eiginlega í þvottahúsi svo það var
engin loftræsting eða neitt. Einu
sinni gleymdum við Hlöllabát í ís-
skápnum og hann fór að mygla en
lyktin komst ekkert út. Ég hef ekki
borðað Hlölla síðan.“
Poddi hefur verið í menntaskóla
með hléum í sex ár, en klárar stúd-
entspróf frá Myndlistarskólanum
í Reykjavík í vor. Hann vinnur svo
með skóla í símaveri á kvöldin.
Eftir stúdent langar hann í há-
skóla en er ekki viss hvort hann
haldi þá áfram að búa í foreldra-
húsum. „Þá myndi ég örugglega
taka námslán og taka húsnæðislán
fyrir þau. Lifa hátt á námslánum.
Er það ekki það sem fólk gerir?“
Hann segist ímynda sér að ef
hann þyrfti að búa einn með nám-
inu myndi hann bugast á endanum.
„Rútínan væri bara vinna, sofa,
skóli, elda klukkan tíu á kvöldin.“
Poddi bendir á að leigumarkað-
urinn henti mörgum í hans stöðu
illa, enda vilji hann ekki eiga bíl og
þá eigi hann ekki annarra kosta völ
en að búa nálægt skólanum sínum.
„Ég get því ekki bara flutt í Breið-
holt og borgað ódýrari leigu. Breið-
holt er samt kúl hverfi, en þá þyrfti
ég að eiga bíl því Ísland er bílaland.
Og ég er ekki með bílpróf!“
Poddi er almennt jákvæður, og
segir margt gott fylgja því að búa
með foreldrum sínum. „Foreldrar
geta minnt mann á hluti eins og að
taka myglaða Hlöllabáta tímanlega
úr ísskápnum. Hlutir sem maður
man ekki alltaf eftir þegar maður
býr einn.“
Fullorðinn í foreldrahúsum
Hinn nýi
íslenski draumur
Poddi er sáttur við að búa með fjölskyldu
sinni og hundinum Betu í kjallaranum.
Poddi er fimmti og
síðasti í röð heimsókna til
fullorðinna í foreldrahúsum.
Meira á Fréttatíminn.is
38 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016
www.thor.is
TÖLVUVERSLUN
ÁRMÚLA 11 - SÍMI 568-1581 ÞÓR HF - UMBOÐSAÐILI EPSON Á ÍSLANDI Í MEIRA EN 30 ÁR
Þráðlaus ölnotaprentari (skanni, ljósritun og prentun). Hentar vel til að prenta allt frá texta yr í
góða ljósmynd. Beinn stuðningur við iPhone/iPad og Android. Hægt er að fá APP til að prenta og
skanna með iOS og Android tækjum. Allar helstu skipanir á skjá. Sérstaklega hagkvæmur í rekstri
vegna utanáliggjandi blektanka sem koma í staðinn fyrir hefðbundin blekhylki
EPSON EcoTank ET-2550
Þráðlaus heimilis prentari sem skannar og ljósritar,
með utanáliggjandi blektanki í stað blekhylkja.
ET-25
50
49.00
0,-
SEGÐU BLESS VIÐ BLEKHYLKIN!
HAGKVÆM LAUSN FYRIR ALLA
Epson EcoTank ET-4550
Einnig til í skrifstofu útgáfu, , fyrir meira
blek, hraðari prentun og skönnun.
ET-45
50
80.00
0,-