Fréttatíminn - 12.02.2016, Síða 52
Talið er að um það bil 50% fólks yfir fimmtugt þjáist af einhverri tegund gyllinæð-
ar við endaþarmsopið. Nú er komin lyfjalaus lausn á vægari tilfellum af gyllinæð.
Unnið í samstarfi
við Ýmus
Óþægindi sem fylgja gyllinæð eru
til dæmis blæðingar og særindi
þegar hafðar eru hægðir auk
stöðugs kláða yfir daginn. Um það
bil 30-40% kvenna fá gyllinæð á
meðgöngu eða stuttu eftir fæð-
ingu barns. Lykilatriði fyrir barn
og móður er lyfjalaus meðferð við
gyllinæð á meðan á meðgöngu og
brjóstagjöf stendur. Engir sterar
eða endaþarmstílar sem innihalda
efni sem geta skaðað móður eða
barn.
Einstök kælimeðferð
Hermorrite kælimeðferðin er ein-
stök lyfjalaus meðferð við gyllinæð.
Áhrif kælingarinnar eru að æðarnar
í kringum endaþarmsopið dragast
saman, blóðflæði og bólgur minnka
og meðferðin linar kláða og verki.
Kostir lyfjalausrar meðferðar við gyllinæð:
n Hentar vel á meðan meðgöngu
og brjóstagjöf stendur.
n Hentar vel til eftirmeðferðar
eftir skurðaðgerðir þar sem draga
þarf úr blóðflæði og veita liningu
verkja.
n Virkar vel þar sem einstaklingar
þjást af þrálátum sprungum við
endaþarmsop.
n Samþykkt af Lyfjastofnun
Bandaríkjanna (FDA) til með-
ferðar á innri og ytri gyllinæð.
n Meðferðin veitir allt að 8-10
klst. liningu á einkennum eftir
aðeins 8 mínútna kælimeðferð.
Leiðbeiningar um notkun:
Frystið stautinn í boxinu í
a.m.k. þrjár klst. í góðum frysti.
Setjið nokkra dropa af sleipiefni á
stautinn. Leggist í þægilega stell-
ingu í rúm og stingið meðferðar-
stautnum upp í endaþarm. Látið
virka í a.m.k. átta mínútur. Hver
meðferðarstautur endist í sex
mánuði frá fyrstu frystingu.
Hemorrite er nú á sérstöku tilboðsverði, 25% lægra verði, og fæst í eftirfarandi apótekum: Reykjavíkur apóteki,
Borgarapóteki, Árbæjarapóteki, Lyfsalanum Glæsibæ, Apóteki Garðabæjar, Garðsapóteki, Lyfjavali Hæðarsmára, Lyfja-
vali Mjódd, Rima apótek, Stærri verslandir Lyf og heilsu, Apóteki Vesturlands, Siglufjarðarapóteki og Akureyrarapóteki.
Innihald:
Einn með-
ferðar-
stautur, box
til geymslu/
frystingar
og tvær
flöskur af
sleipiefni.
Lyfjalaus meðferð
við gyllinæð
Ef þú ert á vegferð í leit að
bættu líkamsformi en þér
finnst árangurinn standa á
sér gæti verið að þú sért að
gera eitthvað rangt sem
erfitt er að festa fingur á.
1 Þú borðar of mikið pró-tein. Prótein er vissu-
lega mikilvægt fyrir
vöðvauppbyggingu en
það er auðveldlega
hægt að neyta of mik-
ils af því. Einnig eru pró-
teinsjeikar og -drykkir mjög
hitaeiningaríkir. Þegar allt kemur
til alls þá snýst fitutap bara um að
eyða meiri orku yfir daginn en þú
innbyrðir.
2 Þú drekkur of margar hita-einingar. Ávaxtasafar geta
vissulega verið bæði góðir og
hollir í hófi en ef þú byrjar til
dæmis daginn á stóru glasi af
ávaxtasafa þá ertu bæði að
innbyrða mikið magn hitaeininga
og hækka blóðsykurinn sem getur
kallað á ærandi hungur seinna yfir
daginn.
3 Þú stundar of einhæfa lík-amsrækt. Ekki gera alltaf
sömu æfingarnar, líkam-
inn þarf fjölbreytni og
ekki gleyma að lyfta
lóðum, í því felst
nefnilega mikil
fitubrennsla.
4 Þú færð
þ é r o f
hitaein-
ingaríkt milli-
mál. Hnetur eru frá-
bær orka en í þeim
er líka mjög mikil
orka. Handfylli af
hnetum getur ver-
ið 100-200 hitaein-
ingar.
5 Þú borðar of lítið. Þó þú sért að reyna að léttast verðurðu að
borða. Svelti er engin leið til þess að
verða heilbrigðari.
6 Þú borðar of mikið. Þú gætir verið að borða fullt af salati,
ávöxtum og heilbrigðri fæðu yfir
daginn en bara í of miklu magni.
Hollur matur getur líka verið hita-
einingaríkur. Það er góð regla að
gæta hófs. Líka í hollum mat.
7 Þú sefur of lítið. Svefn er mjög mikilvægur til að viðhalda
brennslu líkamans og þreyta kallar
gjarnan á ofát. Ef þú færð yfirleitt
minna en 6 tíma svefn gæti það ver-
ið að hafa mikil áhrif á brennslu.
8 Þú leggur of mikla áherslu á líkamsrækt og of litla á mat-
aræðið. Þumalfingursreglan er sú
að mataræðið skipti 80% máli og
líkamsræktin 20%. Passaðu þig á
því að verðlauna þig ekki með sukki
þó þú sért búin/n að vera dugleg/ur
í ræktinni.
9 Vatn á að drekka reglulega yfir allan daginn, það er gott
fyrir þig á ótal vegu. Ekki síst fyrir
brennsluna. Drekktu líka vatnsglas
fyrir mat, það dregur úr ofáti.
10 Þú einblínir á töluna á vigt-inni. Það er svo ótrúlega
margt annað sem spilar inn í heilsu-
bót en þessi tala sem margir gera að
miðpunkti í lífi sínu. Slepptu því að
vigta þig í góðan tíma og hugsaðu
heldur um það hvernig þér líður og
hvað spegillinn og fötin þín segja
þér.
10 algeng mistök
í leitinni að
betra formi
Kynningar | Heilsa AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Sofðu rótt
í alla nótt
með Anti
leg cramps
Fæst í
apótek
um
Dreifingaraðili: Ýmis ehf
Perspi
Guard
Bakteríusápa
og svitastoppari
Dreifing: Ýmus ehf
Fæst í apótekum
Til meðhöndlunar á
lyktarvandamálum
vegna ofsvitnunar.
Kringlunni, 2. hæð - 103 Reykjavík | S: 568 9111 | www.augad.is
ÞÚ FINNUR ÞAU HJÁ OKKUR!
52 | fréttatíminn | HELGiN 12. FEBRúAR–14. FEBRúAR 2016