Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 12.02.2016, Qupperneq 74

Fréttatíminn - 12.02.2016, Qupperneq 74
2 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar-14. febrúar 2016 Anna Lea Friðriksdóttir útgefandi hjá Sölku Ástarævintýri þriggja barna móður og menntskælings „Fáir komast með tærnar þar sem Bergsveinn Birgisson er með hælana þegar kemur að því að skrifa fallegan texta og Svar við bréfi Helgu hefur allt sem til þarf; forboðna ást, kímni, erótík og að sjálfsögðu trega,“ segir Anna Lea Friðriks- dóttir, útgefandi hjá Sölku sem kveðst líka hrifin af Angantý eftir Elínu Thorarensen. „Angantýr er minningabók um samband Elínar við Jóhann Jónsson skáld. Það telst sannað að ýmsir fjölskyldu- meðlimir og áhrifamenn í íslensku menningarlífi reyndu að koma í veg fyrir útgáfu bókarinnar enda var Elín fráskilin þriggja barna móðir en Jóhann menntskælingur á meðan ástarævintýri þeirra varði. Þema bókarinnar er ekki nýtt af nálinni, sú von að ástin sigri boð og bönn og mótlæti sam- félagsins. Þetta ástarævintýri fékk ekki farsælan enda en texti Elínar er gullfallegur og þessi litla bók á stórt pláss í mínu hjarta.“ Egill Helgason stjórnandi Kiljunnar Blíðar og óblíðar ástir í Sölku Völku „Salka Valka. Þar eru blíðar ástir, óblíðar ástir, svik og harmur og togstreita og bókin hefur verið leið margra ung- menna inn í verk Halldórs Laxness.“ Egill örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Forlagsins Aldarspegill og saga um ást og harm „Ég slæ saman í eina, Kar- itas án titils og Óreiðu á striga eftir Krist- ínu Marju Baldursdóttur. Bækurnar eru fyrst og fremst stórbrotin og kröft- ug þroskasaga konu sem fer sínar eigin leiðir, en frásögnin um ástir Karitasar og Sigmars er eins og Besta ástarsaga íslenskra bókmennta Hvað er ástin? Ástin er stórhættuleg, lífsnauð- synleg, yndisleg og stundum hinn mesti vandræðagripur! Ástæðan fyrir því að sumt fólk forðast ástina er áhættan, það er svo vont ef ástin bregst – þess vegna er hún svo hættuleg. Ég lenti í því um daginn að fá magnað hræðslukast við tilhugsunina um hvernig lífið yrði ef ég missti ástina mína. Þetta er auðvitað eðlilegur fylgifiskur þessa góða fyrirbæris. Sá sem elskar óttast ekkert meira en að missa ástina sína – en óttinn má að mínu mati ekki standa í vegi fyrir því að fólk elski og sækist eftir ástinni! Skiptir ástin máli? Það er ekkert fyrir ást og ekkert eftir ást þannig að ástin er allt sem skiptir máli. Ástin sigrar allt! Er hægt að laga særða ást? ef ég skil þessa spurningu rétt þá fjallar hún um það hvort sá sem er svikinn af ástinni sinni geti rétt úr kútnum aftur, jafnvel fundið nýja ást og kannski gleymt þessari gömlu. Ég hef séð þetta gerast en það getur tekið langan tíma. eða stuttan. Það er misjafnt. en ég held að það sé alltaf hægt. Kannski helst ef viðkomandi særð ást reynir ekki of mikið til að af- særast. bara er og reynir að vera róleg. Hvernig ræktið þið ástina? er þetta blað bannað innan 18 ára? Ég veit það ekki hreinlega, við horfum t.d. ekki á sjónvarp, tölum saman í tíma og ótíma um allt og ekkert, dáumst að börnunum okkar saman en reynum líka að eiga okkar prívatstundir. Við kunnum að meta hvunndaginn og gerum okkur far um að láta ekki smáatriði pirra okkur. Svo styttist í fyrsta fullorð- insfríið í langan tíma og slíkt „trít“ er afskaplega gott fyrir ástina! Heldurðu að allir geti fundið hina einu sönnu ást – og er hún til? Það er auðvitað fáránlegt að halda því fram að fyrir mig eða aðra sé bara til ein sönn ást í öllum heiminum. Hvílík tilviljun að ramba á hana! Hvað ef mér hefði verið rænt í la árið 1984 (sem hefði getað gerst, skv. ömmu)? Þá væri ég kannski viss um að rapparinn eða kvikmyndamógúllinn væri sá eini sanni, grunlaus um að á Íslandi biði hann og biði, ástin mín eina, aleinn á Ölstofunni. Sá þyrfti að bíða lengi! Ég held að á hverjum stað og á hverjum tíma sé þessa einu sönnu ást að finna. Það þarf bara að hitta á mómentið og finna hana. Og hún er þarna – treystu mér! Kunnum að meta hvunndaginn Áslaug Guðrúnardóttir, kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur og höfundur bókarinnar Mínímalískur lífsstíll Opið virka daga frá 11:00 -19:00 og laugardaga 12 - 18 Í Ostaskóla Búrsins eru bara ostar á námsskránni. Engar frímínútur og heldur engin heimavinna. Afþreying fyrir ostelskandi einstaklinga. Ostaást? Búrið er troðfullt af ótrúlega girnilegu ostagóðgæti og öðru gúmmulaði. Komin tími til að kíkja í Búrið? Grandagarður 35 · 101 Reykjavík · Sími 551 8400 www.burid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.