Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1997, Side 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1997, Side 19
Mikilvægast að vita hvað maður vill læra Viðtal við dr. Ivo Abraham /vo Abraham var sérstakur gestur við opnun rannsóknarstofnunar í lijúkurnarfrœði við Há- skóla Islands í maí sl. Hann er belgískur að œtt og uppruna, prófessor við háskóla í Bandaríkjunum og í Belgíu. Hajin er þekktur fyrir rannsóknir sínar á sviði öldrunar ogfyrir hugmyndir sínar um umsjón- arhjúkrun (case management). Viðtal við hann birtist í Morgunblaðinu 8. maí sl. þar sejn hann lýsir rannsóknum síuujji og hugmyndum nokkuð. Ivo Abraham lauk þriggja ára námi í geðhjúkrun frá kaþólska háskólanum í Leuven í Belgíu. Það fékk hann metið sem jafngildi B.Sc. gráðu í Háskólanum í Michigan Bandaríkjunum þar sem hann stundaði meistaranám. Meðan á náminu stóð var hann hvattur til að lialda áfram og ljúka doktorsprófi sem hann gerði árið 1984. Doktorsritgerð hans fjallaði um klíníska ákvarðanatöku hjúkrunarfræðinga. Nii starfar hann hæði við Virginiaháskóla í Bandaríkjun- um og kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu. Hann er belgískur ríkisborgari en býr ásamt fjölskyldu sinni í Bandaríkjunum. Konan hans, sem er með MS gráðu í geðhjúkrun, hvíhr sig sem stendur á hjúkrun og vinnur sem aðstoðarkennari við skóla barnanna þeirra tveggja. Hér á landi eru karlmenn í hjúkrunarstétt fremur fáir. I Belgíu mun vera algengara að karlmenn leggi fyrir sig lijúkrun. Fjórðungur þeirra sem luku námi með Ivo Abrahain voru karlmenn og hann segir að í Belgíu séu 12 - 15% allra lijúkrunarfræðinga karl- menn. Þegar hann kom til Bandaríkjanna liorfði öðruvísi við og hann segist hafa orðið hissa á að upp- götva ríkjandi viðhorf til karla í faginu þar. „Eg bjó hjá vinafólki foreldra minna í Michigan. Eitt sinn voru þau með stóra veislu og þar hitti ég margt fólk. Ég sagði stoltur frá því að ég hefði fengið inngöngu í hjúkrun við háskólann á staðnum. Fólkið horfði undarlega á mig og sýndi því htinn áhuga. Seinna fékk ég þá skýringu hjá heimilisfólkinu að almennt ríktu þær hugmyndir um karlmenn í hjúkrun í Bandaríkjunum að þeir væru samkynhneigðir. Þetta þekkti ég ekki frá Belgíu.“ Meðal hjúkrunarfræðinga eru gæðabundnar rann- sóknir að ryðja sér til rúms og sýnist sitt hverjum um ágæti þeirra í samanburði við hefðbundnar magn- bundnar rannsóknir. Ivo Abraham hefur unnið mik- ið af rannsóknum á sviði öldrunarþjónustu sérstak- lega á þörfum fólks með Alzheimiersjúkdóminn. Ilann var spurður um álit á mismunandi rannsókn- araðferðum í hjúkrun. „Ég hlaut þjálfun í inagnbundnum rannsóknum,“ sagði hann. Eg hef hins vegar verið svo heppinn að vinna með og þiggja leiðsögn rannsakanda sem er sér- fræðingur í gæðabundnum rannsóknum. Eg hef lært mikið af því. Val á rannsóknaraðferð þarf að byggj- ast á eðli þess sem er verið að rannsaka og livað við vitum um það fyrir. Hvernig getum við best aflað þeirra upplýsinga sem við erum að sækjast eftir? Gæðabundnar rannsóknir eru meira lýsandi, magn- bundnar meira framkvæmdamiðaðar. Gæðabundnar rannsóknir geta verið gagnlegar til að auka skilning á því sem verið er að skoða. Það er því atriði að nota báðar aðferðirnar eftir því sem þörf krefur og við á hverju sinni. Við getum tekið sorg sem dæmi. Það er erfitt að rannsaka sorg á magnbundinn hátt. Það þarf að gera með hluttekningu þannig að útkoman verði upplýsandi og þar eiga gæðabundnar rann- sóknir betur við.“ Ivo hefur aðallega gert magnbundnar rannsóknir sjálfur en ef liann hnýtur um eitthvað, sem hann getur ekki skýrt með aðstoð jteirra, grípur hann til gæðabundinna aðferða og fær þá aðstoð sérfræðinga í þeim. Hann nefnir líffæraígræðslu sem dæmi. Hvers vegna tekur sumt fólk lyf í langan tíma samkvæmt TÍMARIT HIÚKRUNARFRÆÐINGA 2.TBL. 73.ÁRG. 1997 155

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.