Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1997, Blaðsíða 26
Systir Hildegard á fdrum
Með fáeinum orðum langar
mig að kveðja og minnast
mætrar konu, hjúkrunarfræð-
ings og fyrrverancli forstöðukonu
Landakotsspítala, sem nú kveður
land okkar eftir áralangt fórn-
fúst starf í Jtágu allra lands-
manna. Systir Hildegard er á
förum til að eyða ellinni í Dan-
mörku eftir rúmlega 40 ára starf
í l>águ okkar Islendinga. Fjöldi fólks sendir bestu
kveðjur.
Hún var í fararbroddi fyrir mörgum nýjungum í
hjúkrun og rekstri spítala m.a. kennslu sjúkrabða og
ég veit að Jjeir bópar sem útskrifuðust á Landakoti
hugsa til hennar með þakklæti og virðingu.
Margir læknanemar hlutu sín fyrstu kynni af sjúkl-
ingum fyrir hennar atbeina, þeir komu til sumarvinnu,
og kynntust sínu framtíðarstarfi frá öðrum sjónarhóli,
sem hefur örugglega ekki gert J)á að verri læknum.
Lengi mætti telja upp hve lirræðagóð lnin var og
hve skarplega hún vann úr hinum ýmsu vandamálum
sem alltaf koma upp á „stórum“ stofnunum. Ekki má
gleyma andrúmsloftinu sem ríkti á Landakoti meðan
hún og forveri hennar, Systir Genoveva, voru við
stjórn. Það ríkti friður, kyrrð og hljóðlát vinnusemi.
Enginn skarkali var frá sjálfssölum, sjónvarpi né
öðru sem eru svo áberandi friðarspillar á sjúkrahús-
um nú á tímum.
Systir Hildegard stóð fyrir byggingu nýjasta hluta
Landakots og tók hverja deildina á fætur annarri í
notkun, undirhjó allt í skúffur og skápa og bjó upp
öll sjúkrarúm ásamt einni hjúkrunarkonu sem stóð
svo dagvaktina og hún kvöldvaktina þegar hver deild
opnaði. „Gamli spítali“ var svo rifinn þegar allar
hæðir voru tilbúnar á þeim nýja. Þetta var spenn-
anch og þroskandi tími. Að vhma með svo fráhærri konu
og leiðheinanda, nýkomin úr námi, var mikils virði.
Ekki skal gleyma öllum systrunum sem störfuðu með
Systir Hildegard. Hún kom með ferskan blæ, ýmsar nýj-
ungar og aðra hugsun í hjúkrun. Systurnar tileink-
uðu sér hreytt viðhorf sem leicldi til hetri hjúkrunar.
Eg og margir í hjúkrunargeiranum sendum | >ér
systir Hildegard innilegar þakklætis- og vináttu-
kveðjur, með ósk um að þú eigir gott ævikvöld í faðmi
vina og systra.
Með virðingu
Erla Oskarsdóttir, hjúkrunarfrœðingur
Pascal yíirdýnur - þægileg bylting
Pascal yfirdýnur -
sniðnar að þöríum
hvers og eins
Pascal yfirdýnan veitir þægindi
sem maður gat aðeins látið sig
dreyma um áður, - sveigjanleika
og frelsi sem aldrei fyrr.
Pascal yfirdýnan hefur þrjú
stuðningssvæði, sem hlúa að
þörfum hinna ýmsu hluta
líkamans á algjörlega nýjan hátt.
Ekki er lengur nauðsyn að velja
dýnu sem er öll stíf, millistíf
eða mjúk.
Nú getur þú hannað
nákvæmlega rúmið sem hentar
þér. Ekki þarf að kaupa nýtt rúm,
það nægir að setja Pascal
yfirdýnu á qamla, qóða
DUX rúmið.
Hér sést hvernig Pascal yfirdýnan
tryqqir hverjum og einum fullkomna
hviíd, þótt sofið sé í tvíbreiðu rúmi.
Hann vill hafa mjúkt undir höfði og
herðum, millistíft undir mjöðmum
og stíft undir fótum.
Hún vill hafa millistíft undir höfði
og herðum, mýksta hlutann undir
mjöðmunum og stíft undirfótum.
Auðveldara getur ekki verið að fá
tvíbreitt rúm sem hentar þeim
báðum og veitir fullkomna hvíld.
GEGNUM GLERIÐ
Faxafeni 7 - Sími: 568 9950