Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 42
nefnd er skipuð tveimur fulltrúum frá viðkomandi
stéttarfélagi, einum frá stofnun, einum frá viðkom-
andi ráðuneyti og oddamanni sem aðilar koma sér
saman um. Ef ekki næst samkomulag um oddamann
skal hann tilnefndur af ríkissáttasemjara. Urskurð-
arnefnd skal ljúka störfum eigi síðar en mánuði eftir
að hún var skipuð. Skipa skal úrskurðarnefnd ])egar
starfstími aðlögunarnefndar er liðinn eða fyrr ef sýnt
er að aðlögunarnel'nd muni ekki komast að niðurstöðu.
Fresturinn til að skipa úrskurðarnefnd er tvær vikur
og hefur hún einn mánuð til að skila niðurstöðu.
Meðferð mála ef vandamál koma upp á
samnfngstímanum, eftir að aðlögunarnefnd hefur
loktð störfum - samstarfsnefnd
A samningstímanum starfar nefnd - samstarfsnefnd -
sem skipuð er allt að þremur fulltrúum l)æði frá
félaginu og viðkomandi stofnun. Þessi nefnd hefur
ir " þa^ hhitverk að koma á sáttum í ágreinings-
málum og fjalla um breytingar á forsendum starfa-
flokkunar og röðun starfa í launaflokka. Ef hjúkrun-
arfræðingar eru ósáttir, t.d. við röðun sína í launa-
flokka í nýju launakerfi, geta þeir úskað eftir því að
samstarfsnefnd taki málið til umfjöllunar.
Yfirfærsla yfir í nýtt launakerfi
Yfirfærsla í nýtt launakerfi fer þannig fram:
1. Allir hjúkrunarfræðingar, sem eru í starfi við yfir-
færsluna, flytjast yl'ir í nýtt launakerfi og skal
tryggt að enginn lækki í launum. Fyrir yfirfærsl-
una hafa starfsmenn hækkað um 4,7% frá 1. maí
1997 og aftur um 4% frá 1. janúar 1998.
2. Þar til tilfærslu hjúkrunarfræðinga yfir í hið nýja
launakerfi er lokið, skal núgildandi launatafla og
kaíli um starfsheitaröðun halda gildi sínu.
3. Enginn hjúkrunarfræðingur á að lækka í launum
við að færast yfir í nýtt launakerfi. Þetta þýðir að
hjúkrunarfræðingar taka með sér allan sinn far-
angur yfir í nýtt launakerfi og með farangri er átt
við launaflokka, t.d. vegna mats á viðbótarnámi
eða stöðu deildarhjúkrunarfræðings 1 og 2. Því er
mikilvægt að hjúkrunarfræðingar láti meta til
launa allt viðbótarnám sitt fyrir áramót.
4. I aðlögunarnefnd verður síðan búið til nýtt kerfi
til að raða hjúkrunarfræðingum í launaflokka og
launaramma, og telst J)að hluti kjarasamnings.
Fleiri kjarasamningar
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur í surnar
gengið frá kjarasamningum við eftirtalda aðila:
- Akuro.yrurbæ
Elli- og lijúkrunarlieimilið Grund
Hrafnistu, DAS, í Reykjavík og Hafnarfirði
- Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra í
Kópavogi
Hjúkrunarheimilið Eir
Umönnunar- og hjúkrunurheimilið Skjól
- Vinnu- og dvalurheimilið Sjúlfsbjörg
- lleilsustofnun NLFÍ
Þessir samningar hal'a verið mjög svipaðir og sá
sem gerður var við ríki, Reykjavíkurl)org,
Reykjalund og St. Fransiskusspítala í júní sl.
Nú standa yfir viðræður við SAA.
Þar verða búnar til nýjar forsendur um röðun í
launaílokka (t.d. á grundvelli mats á menntun,
hæfni og árangri). Raða skal starfsmönnum í
launaflokka í samræmi við Jietta nýja kerfi eins
fljótt og unnt er og ekki síðar en við önnur mán-
aðamót eftir að stofnun fær niðurstöður aðlögun-
arnefndar í hendur.
5. Starfsmenn lækka ekki í launum þrátt fyrir að
nýjar forsendur um röðun í launaflokka verði til í
aðlögunarnefnd. Nýjar forsendur geta |)annig
aðeins orðið til að hækka starfsmenn í launum.
6. Þrátt fyrir að gengið sé frá röðun einstakra starfs-
manna í nýtt kerfi eftir umsaminn gildistökudag,
skulu laun þeirra skv. nýju kerfi miðast við gildis-
tökudag nýja launakerfisins.
7. Eftir að yfirfærslunni er lokið á viðkomandi stofn-
un, fjallar samstarfsnefnd, sem er nefnd fulltrúa
félagsins og stofnunarinnar, um breytingar J)ær á
forsendum röðunar í launaflokka sem nauðsyn-
legar kunna að reynast eða ágreiningsmál sem upp
kunna að koma við framkvæmd. Þannig geta
hjúkrunarfræðingar sem eru ósáttir við röðun
sína í hinu nýja launakerfi leitað með mál sín til
uinfjöllunar í samstarfsnefnd.
Grafarvogs Apótek
Torginu, Hverafola 1 -3
Grafarvogi, Reykjavík
Sími: 587 1200 Fax: 587 1225
Opið alla virka daga kl. 9-19
og laugard. kl. 10-14
APOTEK
HRINGBRAUT 119, REYKJAVÍK
SÍMI: 51 1 5070 FAX: 51 1 5073
0PIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 9-21
OG UM HELGAR KL. 10-21
^nlíMts /Ifjííttk
Álfabakka 12, Mjódd
Sími: 557 3390
Opið virka daga kl. 9-19
og laugardaga kl. 10-14
234
TÍMARIT HIÚKRUNARFRÆÐINGA 4.TBL. 73.ÁRG. 1997