Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 37
FAGLEG MÁLEFNI
Norræim viimuhópur
tynÁA'C UW
ICNP
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir
Y
Ljósm.: Lára Long
Alþjóðasamband hjúkrunar-
fræðinga, ICN (International
Council of Nursing) hefur á
undanförnum árum unnið að
gerð flokkunarkerfis í hjúkrun.
Fyrsta útgáfa þess, International
Classification of Nursing Practice
(ICNP) var gefin út í febrúar á
síðasta ári og hefur Alþjóða-
samhandið óskað fulltingis aðild-
arfélaga um áframhaldandi
þróun flokkunarkerfisins.
A síðasta stjórnarfundi
Samtaka norrænna hjúkrunar-
fræðinga (SSN) sem haldinn var í
Helsinki 7. mars sl. var samþykkt
að kalla saman vinnuhóp sér-
fræðinga á þessu sviði til að sam-
ræma hugmyndir norrænu félag-
anna um verkefnið. Hópurinn er
skipaður einum hjúkrunar-
fræðingi frá hverju landi, auk
starfsmanns SSN. Stjórn SSN
ákvað enn fremur að hópurinn
skyldi hittast einu sinni fyrir
næsta stjórnarfund SSN, sem
haldinn verður 1. október nk.,
þar sem hópurinn legði fram
tillögur um umfang og hlutverk
sitt. Sá fundur var haldinn í
Reykjavík dagana 15. og 16.
ágúst sl. Fundinn sátu fulltrúar
allra Norðurlandanna auk starfs-
manns SSN. Fulltrúi Islands í
vinnuhópnum er Ásta Thor-
oddsen. Asta Möller, formaður
Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga og varaformaður SSN,
var fundarstjóri og Aðalltjörg J.
Finnbogadóttir, hjúkrunar-
fræðingur hjá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga, sat fundinn
sem áheyrnarfulltrúi.
Niðurstöður fundarins voru
Jiær að slíkur vinnuhópur væri
nauðsynlegur til að vinna sam-
eiginlega að framgangi ICNP og
hafa áhrif á þróun Jjess. Akveðið
var að leggja til við stjórn SSN að
hópurinn starfaði næstu tvö árin
og hittist tvisvar til þrisvar á ári.
Að ]>cim tíma liðnum skuli tilvist-
argrundvöllur hans metinn m.t.t.
áframhaldandi starfs.
Fulltrúar landanna kynntu
stöðu mála í sínu heimalandi og
ræddu næstu skref. Helstu
niðurstöður voru Jiær að hvert
land fyrir sig héldi áfram | > ví
starfi sem Jiegar er hafið varð-
andi þróun ÍCNP og prófaði Jiað
hæði teoretískt og klínískt, t.d.
með samanhurði við NANDA og
önnur flokkunarkerfi í hjúkrun.
Vinnuhópurinn myndi síðan
senda sameiginlegar athuga-
semdir til ICN varðandi ICNP
auk Jjess sem hvert félag gæti sent
athugasemdir í sínu nafni.
Stjórn Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga ákvað með
hliðsjón af framangreindu að
stofna nefnd um þróun ICNP.
Eftirtaldir félagsmenn skipa
nefndina:
Asta Thorodd-
sen, lektor, for-
maður nefndar-
innar og fulltrúi
félagsins í norr-
æna vinnuhópn-
um um ICNP.
Lilja Stefánsdóttir, deildarstjóri
Lilja Þorsteinsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur
Vilborg Ingólfsdóttir,
yfi rh j úkr un ar fræðingu r
Hildur Helgadóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir,
hjúkrunarfræðingur lijá Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4.TBL. 73.ÁRG. 1997
229