Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 8
Mér var í þessum símtölum við afgreiðslu heilsu-
gæslustöðvarinnar aldrei boðin nein fyrirgreiðsla að
fyrrabragði. Það var ekki spurt hvort hægt væri að
hjálpa mér á annan hátt, t.d. hvort ég vildi tala við
annan lækni eða hjúkrunarfræðing. Mér var ekki
bent á bráðaþjónustuna sem ég hefði getað notað
strax á mánudeginum þegar ég reyndi fyrst að ná í
lækninn. Að tala við afgreiðsluna var eins og að vera
í tölvuleik. Eg þurfti að kunna réttu lykilorðin og ýta
á rétta takka til að komast áfram.
Tveimur dögum síðar mætti ég í tímann hjá heim-
ilislækninum. Hann sagði mér að hafa ekki áhyggjur,
lyfið væri rétt og ég ætti eftir að hrista þetta af mér.
Hann þurfti ekki að skoða mig til að greina mér frá
þessari niáurstöðu, eina snerting okkar var handa-
]>and. Eg sagði honum að fjölskyldunni minni hefði
líkað vel við hann sem heimilislækni en ná væri orðið
svo snúið að ná í hann að við hefðum ákveðið að leita
annað. Það skal tekið fram að enginn heimilislæknir
er á lausu í Reykjavík og því ekki um það að ræða að
sækja persónulega heimilislæknaþjónustu annað. Við
erum nú skráð læknislaus á heilsugæslustöðina í
hverfinu.
Þrátt fyrir allt er ég enn þeirrar skoðunar að
heilsugæslan sé sá aðili sem fólk á fyrst að leita til
þegar það þarf að leita sér lækninga eða hefur
spurningar varðandi heilsufar sitt. Reynsla mín af
heilsugæslustöðinni, sem ég var skráð á, er ekki góð.
Því miður virðist það ekki vera einsdæmi því ég hef
heyrt svipaðar sögur af öðrum heilsugæslustöðvum í
Reykjavík. Ég hef heyrt skýringar lækna sem segjast
hafa of mikið að gera og að símatímar séu inisnotaðir
og að þá eigi að leggja af. Mér finnst það liins vegar
engin afsökun fyrir óaðgengilegri |)jónustu. Þar er
hins vegar eitthvað á ferðinni sem þarf að ráða hót á.
Eigi heilsugæslan að standa undir nafni verður hún
að vera aðgengileg þannig að þar sé hægt að fá fyrir-
greiðslu skjótt og örugglega. Fólk leitar J)ar aðstoðar
í alls konar ástandi og gjarnan Jiegar því líður illa.
Fagfólk á heilsugæslustöðvum má ekki beita starfs-
fólki í afgreiðslu fyrir sig eins og krókódílum í
kastalasíki. Það hlýtur að vera metnaðarmál að laða
viðskiptavini að heilsugæslustöðinni og veita Jjeim
góðar upplýsingar og hestu mögulega Jjjónustu eins og
lög gera ráð fyrir. Fyrir almenning, sem stendur að
mestu leyti undir heilbrigðisþjónustunni með sköttum
sínum, á })að að vera léttur leikur og á allra færi að
sækja sér grundvallar-heilbrigðisþjónustu. Það á
ekki að Jnirfa að leggja ótal krókódíla að velli og bíða
í marga daga áður en hægt er að fá að bera sig upp
við lækni á heilsugæslustöð.
Gutenberg býður viðskiptavinum
sínum vönduð vinnubrögð
fagfólks sem leggur metnað
í að uppfylla óskir viðskiptavina
í smáu sem stóru.
Verkin eru unnin á tæki af
nýjustu og fullkomnustu gerð.
Fagfólk hjálpar til við
uppsetningu prentgripa þannig að
sem bestum árangri sé náð.
Steindórsprent-Gt
Síðumúli 16-18 - Sími 533 2525'