Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Page 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Page 39
Ásta Möller formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ramgangskerfí fyrir kj á kru lÆArfrÆð í ha a I kjarasamningum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sem undirritaðir voru í júní 1997, var samið um að tekið yrði upp nýtt launakerfi sem hefði það m.a. að markmiði „að auka sveigjanleika launakerfisins og draga úr miðstýr- ingu í launaákvörðunum og koma á skilvirkara launakerfi sem tekur mið af þörfum og verkefnum stofnana og starfsmanna þeirra." Með nýju launakerfi er verið að hverfa frá því að laun séu einvörðungu ákvörðuð út frá stöðu og prófaldri viðkomandi. Nýtt launakerfi byggist á að færni/hæfni einstaklingsins sé metin eftir ákveðnum gagnsæjum aðferðum sem síðan er grundvöllur ákvörðunar um laun viðkomandi. Um langt árabil voru möguleikar hjúkrunarfræðinga til launahækkana og frama í starfi bundnir við að taka að sér stjórnunar- eða kennslustöður innan hjúkrunar. Hjúkrunar- fræðingar í almennum störfum höfðu aðeins von um launahækkun ef þeir bættu við sig sérmenntun innan hjúkrunar og var sú hækkun þó óveruleg. Fræðilega gátu þeir sem gegndu almennum störfum innan hjúkrunar verið í sama launaflokki alla starfsævi og hækkun launa fólgin í hærra launaþrepi eftir starfsaldri eða lífaldri. Fyrsta skrefið til að launa hjúkrunarfræðinga í almenn- um störfum eftir aukinni hæfni og verkefnum var tekið f kjarasamningum stéttarinnar á árinu 1989 þegar samið var um svokallaðar K-stöður. K-stöður voru útfærðar á stofnunum sem verkefnabundnar stöður fyrir almenna hjúkrunarfræðinga og gáfu möguleika á 3-6% hækkun launa (1-2 launaflokkar) gegn því að viðkomandi tæki að sér tiltekin skilgreind verkefni. Næsta skref var tekið í kjarasamningum félagsins á árinu 1994 þegar samið var um stöður deildar- og stoðhjúkrunarfræðinga sem voru hæfnisbundnar og verkefnabundnar stöður. Ákveðinn kvóti var á þeim, þ.e. skv. kjarasamningnum átti tiltekið hlutfall hjúkrunarfræðinga að sitja í þeim. Þó stöðurnar nýttust nokkrum fjölda félagsmanna til launahækkana varð reyndin sú að þetta ákvæði, ásamt mati á menntun, samsvaraði að meðaltali einungis 3% hækkun launa hjúkrunarfræðinga eða einum launaflokki á mann. Stærsta skrefið f þessa átt var síðan tekið í aðlögunar- nefndarsamningum félagsins á stofnunum sumarið 1998. Samið var um að taka upp framgangskerfi fyrir hjúkrunar- fræðinga sem skyldi hrinda í framkvæmd á árinu 1999. Land- spítalinn og Sjúkra- hús Reykjavíkur hafa þegar lokið útfærslu á fram- gangskerfi fyrir hjúkr- unarfræðinga og eru þau kynnt í þessu tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga. Fulltrúar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga voru til- nefndir til að vinna að gerð þessara framgangs- kerfa. Hér á eftir verður fjallað um framgangs- kerfi í hjúkrun og getið ýtarefnis. Framgangskerfi í hjúkrun Þróun á framgangskerfum fyrir klínfska hjúkrunarfræðinga hófst á sjöunda áratugnum í Bandaríkjunum en síðar á Nýja-Sjálandi og víðar. Hvatinn var skortur á færum klínískum hjúkrunarfræðingum sem vildu starfa við hlið sjúklinga. Möguleikar til starfsframa á þeim vettvangi voru takmarkaðir og því sóttust þeir eftir störfum við stjórnun og kennslu í hjúkrun. Klínísk framgangskerfi veittu mögu- leika á að fá viðurkenningu og starfsframa við klíníska hjúkrun. Rannsóknir Ratriciu Benner, sem hún kynnti í bók sinni „From novice to expert", blésu byr undir vængi þróunar klínískra framgangskerfa í hjúkrun. í bókinni lýsir hún 5 getustigum sem fagmaður fer í gegnum til að ná og þróa með sér færni. Þessi stig eru: nýgræðingur, byrjandi kom- inn vel á veg, fær, mjög vel fær og sérfróður. Rannsóknir Benner hafa verið lagðar til grundvallar fjölmörgum fram- gangskerfum í hjúkrun í heiminum (Benner, 1984; Margrét Gústafsdóttir, 1988). Ýmsir aðrir fræðimenn í hjúkrun hafa lýst þróun færni klínískra hjúkrunarfræðinga. Þar á meðal er Virginia 39 Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.