Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Page 45
þremur fyrst nefndu starfsþáttunum sem teljast allir til
starfsskyldna hjúkrunarfræðinga við SHR. Hjúkrunarfræð-
ingur metur starfsþættina í samráði við sinn næsta yfirmann.
Þannig er fyrst metið til stiga uppbygging hjúkrunar-
starfsferils hjá viðkomandi hjúkrunarfræðingi innan
sérgreinar sem og tryggð í störfum við SHR. Ef unnið er á
þrískiptum vöktum er það metið sérstaklega. Síðan er
klíníska starfið sem viðkomandi hjúkrunarfræðingur gegnir
metið til stiga samkvæmt matslykii á þar til gerðu eyðublaði.
Matslykillinn innifelur stigakvarða frá 1-5 varðandi eftirtalin
atriði; umfang, fjölþættni, flókin/vandasöm/sérhæfð verkefni,
umfang faglegrar ábyrgðar, andlegt og líkamlegt álag,
áhættu og hvort gerðar séu sérstakar hæfniskröfur.
Næst er metið til stiga stjórnunarreynsla og síðan
stjórnunarþátturinn í starfi hlutaðeigandi hjúkrunarfræðings
samkvæmt þar til gerðum matslykii. Matslykillinn um hjúkr-
unarstjórnun innifelur stigakvarða frá 1 -5 varðandi eftirtalin
atriði; umfang stjórnunar-, rekstrar- og fjárhagslegrar
ábyrgðar, fjölþættni, umfang starfsmannastjórnunar og
mannaforráða, hvort stjórnunarþátturinn sé vandasamur
og flókinn og hvort því fylgi sérstakt andlegt/líkamlegt álag
og hvort gerðar séu sérstakar hæfniskröfur.
Þá er litið til hjúkrunarkennslu, ráðgjafar og vinnu að
sértækum verkefnum. Gefin eru stig fyrir reynslu sem
deildarkennari, stundakennari og umsjónarkennari. Enn-
fremur fyrir útgefin verkefni s.s. vegna sjúklingafræðslu,
kennsluefni fyrir nemendur og starfsfólk á deild, gæða-
staðla o.s.frv. Þar næst eru kennslu- og ráðgjafarstörf
hlutaðeigandi hjúkrunarfræðings metin samkvæmt mats-
lykli. Matslykillinn innifelur stigakvarða frá 1-5 varðandi
eftirtalin atriði; umfang kennslu og ráðgjafar sem og
umfang við gerð kennslugagna og hvaða fræðilegar kröfur
séu gerðar til hjúkrunarkennslu og ráðgjafar.
Ef hjúkrunarfræðingurinn hefur stundað hjúkrunarrann-
sóknir eru þær metnar til stiga. Hér er átt við hjúkrunar-
rannsóknir sem hlotið hafa mat rannsókna- og siða-
nefndar SHR eða annarra viðurkenndra dómnefnda. Fyrst
og fremst eru metin útgefin rit. Að lokum eru persónu-
bundnir þætti metnir samkvæmt matslykli. Matslykillinn
innifelur stigakvarða frá 1-5 varðandi eftirtalin atriði; sjálf-
stæði, áhuga, innsæi, áreiðanleika og alúð og frumkvæði.
Ef hjúkrunarfræðingur hefur ekki fengið sérleyfi metið
samkvæmt aðlögunarnefndarsamningi, þá telst það til 50
stiga. Á bak við stigakvarðann 1-5 liggur síðan lykill að
stigagjöf sem er mismunandi milli atriða í matslyklunum.
Þannig er lágmarksfjöldi stiga fyrir hjúkrunarstarf 800 stig
og hámark 4800 stig. Fyrir hjúkrunarstjórnun er spönnin
350-1600, fyrir hjúkrunarkennslu 100-2500 stig og fyrir
hjúkrunarrannsóknir 0-1000 stig og fyrir persónubundna
þætti 50-500 stig.
Niðurstöður í framgangsmati eru síðan teknar saman.
Hjúkrunarfræðingur fer síðan yfir það með yfirmanni sínum
hvaða starfsheiti lýsir best því starfi sem hann innir af
hendi. Sú niðurstaða ásamt niðurstöðum framgangsmats
ráða síðan þeirri launaröðun sem hlutaðeigandi hjúkrunar-
fræðingur fær, og segir til um þann framgang sem náðst
hefur innan starfsheitisins ásamt því að skerpa þær línur
sem leiðbeina um hvernig ná megi frekari framgangi.
Hjúkrunarfræðingur getur þannig skorað minnst 1300
stig og mest 10000 stig í framgangsmati. Þak er á fram-
gangi innan hvers starfsheitis, þegar því er náð nær hjúkr-
unarfræðingur ekki frekari framgangi nema með breytingu
á starfsheiti og þar með aukningu á starfsskyldum.
Þar sem um frumsmíði á mælitæki er að ræða, mun
það verða endurskoðað í árslok 1999. Framgangskerfi
hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsi Reykjavíkur er margþætt
eins og störf hjúkrunarfræðingsins. Um er að ræða bland-
að mat, þ.e. bæði starfsmat til uppfyllingar á notkun á
hlutlægu mælikvörðum og frammistöðumat sem er meira
huglægt og mælir árangur hjúkrunarfræðingsins í starfi
sem og persónubundna þætti í fari hans sem hafa áhrif á
að sá árangur náist. Það er í samtali hjúkrunarfræðings við
sinn yfirmann sem sameiginlegur skilningur næst á því
samhengi sem hlutaðeigandi starf og starfsframlag er
metið. Ef greinir á milli, getur hvor aðili um sig eða báðir
skotið framgangsmati til hlutlausrar þriggja manna nefndar
sem skipuð er af hjúkrunarstjórn og hjúkrunarráði.
Heimild:
I.Sjúkrahús Reykjavíkur, (1998). Framgangskerfi hjúkrunarfræðinga á
SHR. Reglur um framgangsmat. Reykjavík: Sjúkrahús Reykjavíkur.
2. Sjúkrahús Reykjavíkur, (1999). Framgangskerfi hjúkrunarfræðinga.
Handbók um notkun. Reykjavík: Sjúkrahús Reykjavíkur.
Heilsustofnun NLFf
Hveragerði
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga og skilning á
heildrænni hjúkrun. Áherslan er lögð á heilbrigðiseflingu, forvarnir
og endurhæfingu. Náttúrulækningastefnan er einn megin
grundvöllur hugmyndafræðinnar, þ.e. samspil lífveru og náttúru og
að lifa samkvæmt lögmáli náttúrunnar. Starfshlutfall eftir
samkomulagi. Möguleiki á föstum næturvöktum.
Upplýsingar veitir Hulda Sigurlína Þórðardóttir, hjúkrunarforstjóri
í símum 483 0322 eða 896 8815.
Bæjarfélagið
Hveragerði er lifandi og blómlegur bær örstutt frá höfuðborginni
þar sem gott er að ala upp börn. Þar er hægt að njóta kosta
þess að búa í litlu samfélagi en jafnframt hafa möguleika á tíðum
samskiptum við höfuðborgarsvæðið.
Aðeins er um 30 mínútna akstur til Reykjavíkur.
Hringið og kannið húsnæðismál og launakjör.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999
45