Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Side 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Side 47
Flest bendir til að hver geðsjúkdómur hafi marga áhættuþætti. Til þess að koma við árangursríkum forvörn- um verður því oftast að líta til margvíslegra áhættuþátta og margra verndandi þátta. Sem dæmi um áhættuþætti geð- sjúkdóma má nefna þunglyndi en fimm áhættuþættir hafa sérstaklega verið tengdir fyrsta veikindakasti. í fyrsta lagi að eiga foreldri sem hefur átt við þunglyndi að stríða, í öðru lagi mikið mótlæti eins og ástvinamissir, hjónaskilnaður, atvinnumissir, mikil líkamleg veikindi eða önnur alvarleg áföll, í þriðja lagi lítið sjálfstraust og það að skynja sig hjálparvana og vonlausan, í fjórða lagi að vera kona og í fimmta lagi að búa við fátækt. Flestir áhættuþættir geðsjúkdóma aðrir en arfgengir þættir eru sameiginlegir mörgum geðsjúkdómum. Sem dæmi má taka áhættuþætti og verndandi þætti er varða geðsjúkdóma barna: Af almennum áhættuþáttum geð- sjúkdóma má nefna lága fæðingarþyngd, lága greindar- vísitölu, truflun á málþroska hjá ungum börnum og les- blindu og atferlistruflanir hjá eldri börnum. í fjölskyldu eru áhættuþættir miklir hjónabandserfiðleikar foreldra, erfiður fjárhagur og basl, lítið húsrými og stór systkinahópur, and- félagsleg hegðun föður og geðsjúkdómur móður. Verndandi þættir fyrir börn, sem búa við mikla áhættu, virðast hins vegar tengjast góðri meðfæddri skapgerð, góðri greind og góðri félagsfærni og á unglingsárum að hafa tilfinningu fyrir stjórn á eigin lífi og að eiga sér mark- mið. ( fjölskyldunni verndar að vera með færri en fjögur börn á framfæri og hafa a.m.k. tvö ár milli systkina. Fljá ungum börnum eru náin tengsl við foreldri talin mjög mikil- vægur þáttur, jafnvel hjá börnum sem búa að öðru leyti við mjög erfiðar aðstæður. Góðir skólar, þar sem saman fara hæfilegt aðhald og agi og örvun til náms, eru einnig taldir vernda gegn geðrænum erfiðleikum hjá eldri börnum og unglingum. Lögð er áhersla á að forvarnir gegn geðsjúk- dómum þurfi að vera samofnar daglegu lífi fólks á öllum æviskeiðum og þær þurfi oftar en ekki að standa lengi til að árangur náist. Ljóst er einnig að menntun, líkamlegt heilsufar, vinna og geðheilsa eru ekki aðskildar einingar heldur mynda eina heild. Nái einstaklingur framförum á einu sviði (t.d. menntun) hefur það áhrif á önnur (t.d. geð- heilsu). Samvinna milli skóiakerfis, atvinnulífs, heilsugæslu og geðheilbrigðisstofnana er því nauðsynleg á sviði for- varna gegn geðsjúkdómum. Áhættuþættir geðsjúkdóma fylgja oft hverri kynslóðinni fram af annarri í fjölskyldum. Forvarnaráætlanir, sem taka til tveggja kynslóða eins og ýmsar áætlanir sem stuðla að bættri aðlögun mæðra með kornabörn, eru dæmi um aðgerðir sem geta haft forvarnagildi fyrir tvær kynslóðir. Þjálfun í félagsfærni hefur reynst gagnleg hjá ungum börn- um og virðist draga úr hættu á hegðunarvandamálurm. Flest bendir til að slíkar aðgerðir þurfi að hefjast í leikskóla og á fyrstu barnaskólaárum til að þroska með börnum félagsanda sem vinnur gegn árásarhneigð og vímuefna- misnotkun. Talið er að hægt sé að fyrirbyggja einhvern hluta af hegðunartruflunum barna og draga þannig síðar úr hættunni á andfélagslegri hegðun og afbrotahneigð. Fljá fullorðnum og hjá eldra fólki bendir margt til að draga megi að einhverju leyti úr þunglyndi með sálfræðilegum aðgerð- um. Þótt líffræðilegir þættir séu taldir mikilvægir áhættu- þættir margra geðsjúkdóma hafa forvarnir til þessa lítið beinst gegn þeim ef undan er skilið mæðraeftirlit á með- göngu og bólusetningar ungra barna. Börn og unglingar Þriðjungur þjóðarinnar er börn og unglingar undir 18 ára aldri. Það er Ijóst að margir geðsjúkdómar byrja eða eiga sér forstig í barnæsku og sífellt fleiri rannsóknir sýna að því fyrr sem gripið er inn í, þeim mun meiri árangurs er að vænta. Fyrirbyggjandi gildi góðrar geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga verður að teljast ótvírætt. Skipulags- leysi þjónustunnar hér á landi er vandamál þannig að oft er óljóst hvert á að leita eða hvaða hlutverk aðilar hafa en fyrst og fremst er framboð ónógt. Skortur er á sérhæfðu starfsfólki, sérstaklega barna- og unglingageðlæknum. Erfiðleikar á sviði samskipta, líðanar, hegðunar eða 47 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.