Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Side 48

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Side 48
þroska, sem eru það miklir að þörf er á inngripi fagfólks, má kalla geðheilsuvanda. Þegar geðheilsuvandi er alvar- legur og viðvarandi eða mörg geðheilsuvandamál eru til staðar, oft í tengslum við fleiri áhættuþætti, er um geð- röskun eða geðsjúkdóm að ræða. Geðheilbrigðisvanda- mál eru hlutfallslega algeng hjá börnum. Faraldursfræði- legar rannsóknir, þar með taldar íslenskar, benda til að um 20 prósent barna eigi við geðheilsuvanda að stríða og að 7-10 prósent barna þurfi á geðrænni meðferð að halda. Geðheilbrigði barna er mikilvægt vegna þess að: * Ómeðhöndlaðir geðsjúkdómar barna eða annar vandi af félagslegum eða andlegum toga valda ekki ein- göngu þjáningu og skerða möguleika barnanna sjálfra til heilbrigðs þroska heldur valda þeir einnig oft veru- legu álagi á fjölskyldur þeirra. * Óleyst vandamál barna og unglinga halda oft áfram með vaxandi þunga fram á fullorðinsár. * Geðheilbrigðisvandamál barna auka álag víða í þjóð- félaginu, svo sem á félagsmála- og skólakerfið. * Ógreindar geðraskanir barna með langvarandi líkam- lega sjúkdóma geta haft neikvæð áhrif á batahorfur þeirra. * Geðheilbrigðisvandamál, sem koma upp í heilsugæsl- unni, krefjast oft mikils tíma og orku þar til tekist er á við orsakir vandans. í stefnumótuninni er lagt til að: 1. Aðaláhersla verði lögð á að efla starfsemi BUGL á næstu árum. Vægi deildarinnar verði þannig eflt til að veita faglega forystu er varðar þjónustu, kennslu, rannsóknir og ráðgjöf við aðrar stofnanir og fagaðila. Tillögurnar eru: a) fimm ára framkvæmdaáætlun um eflingu BUGL verði gerð að forgangsverkefni í heil- brigðiskerfinu, b) stofnuð verði bráðamóttökudeild fyrir börn og unglinga á Landspítalalóð, c) framhaldsmeð- ferðardeild fyrir unglinga upp að 18 ára aldri verði stofnuð, d) geðheilbrigðisþjónusta verði veitt í nýjum barnaspítala, f) stjórnunarlegri stöðu BUGL verði breytt. 2. Heilbrigðisráðuneytið hafi frumkvæði að því að fjölga barna- og unglingageðlæknum eins fljótt og auðið er. 3. Stofnuð verði kennslustaða í barna- og unglingageð- lækningum við læknadeild Háskóla íslands. 4. Þjónusta heilsugæslunnar við geðheilsuvanda barna og unglinga verði stórefld með markvissari fjölskyldu- ráðgjöf og möguleika á meðferð algengari vandamála. Ráðið verði í lögboðnar stöður fagfólks og mynduð samráðsteymi innan heilsugæslunnar sem tengist sér- hæfðri barnageðheilbrigðisþjónustu um handleiðslu og sérfræðiaðstoð. 5. Efla þarf og endurskoða hlutverk sérfræðiþjónustu grunnskólanna (lög um grunnskóla nr. 66/1995, 43 gr., og reglugerð um sérfræðiþjónustu skóla, nr. 386/1996, 3. gr.), auka vægi meðferðarþátta og sam- 48 vinnu við námsráðgjafa og skólaheilsugæslu. Saman þurfa þessir aðilar aukið svigrúm til að geta sinnt með- ferð barna og unglinga í geðrænum vanda. Þörf er á þverfaglegri samvinnu til að auka gæði þjónustunnar. 6. Framboð á þjónustu sérfræðinga í stofureksti við börn í geðrænum vanda er mjög takmarkað, sérstaklega hvað varðar barna- og unglingageðlækna. Endur- skoða þarf gjaldskrá og hækka greiðslur til sérfræð- inga. Starfshópurinn leggur einnig til að Tryggingar- stofnun ríkisins taki þátt í að greiða fyrir þjónustu sálfræðinga, félagsráðgjafa og geðhjúkrunarfræðinga með sérmenntun á þessu sviði. 7. Komið verði á skipulögðu samstarfi BUGL, Barna- verndarstofu, SÁÁ og vímuefnaskorar Landspítalans varðandi mat og meðferð á unglingum í hegðunar- og vímuefnavanda. Mat og meðferð á samsettum vanda unglinga í vímuefnaneyslu þarf m.a. að grundvallast á þekkingu nútíma barna- og unglingageðlæknisfræði. 8. Opnuð verði sérstök unglingamóttaka. Unglingamót- tökur á Norðurlöndum sinna margs konar heilbrigðis-, félagsmála- og fræðsluþjónustu þar sem sérfræðingar á ýmsum sviðum, sem snerta unglinga, starfa á sam- eiginlegum vettvangi. Milliliðalaust, gott aðgengi án beins kostnaðar fyrir unglinginn er grundvallaratriði. Vísir er að slíkri starfsemi með tilraunaverkefninu Fjöl- skyldumiðstöð vegna barna í vanda sem gæti orðið hluti að slíkri þjónustu. 9. Samstarf BUGL og Greiningarstöðvar. Fatlaðir, til að mynda þroskaheftir, eru í meiri hættu en aðrir varðandi geðheilsuvanda og eiga sama rétt til geðheilbrigðisþjónustu og aðrir landsmenn. BUGL og GRR eiga því oft sameiginlegan skjólstæðingahóp og því er mikilvægt fyrir þessa aðila og fjölskyldur þeirra að samstarf sé virkt. Starfshópurinn telur að línur séu enn óskýrar varðandi þá þjónustu sem BUGL og GRR þurfa að veita einhverfum og sjúklingum með einhverfurófsraskanir. Nýgreindir, fatlaðir einstaklingar innan þessa hóps, svo sem þeir sem eru með dæmi- gerða einhverfu og oftast með almenna greindarskerð- ingu, njóta þjónustu nýstofnaðs fagteymis GRR. Hins vegar er sá sjúklingahópur, sem BUGL greinir með raskanir á einhverfurófi, yfirleitt ekki greindarskertur en í mörgum tilvikum félagslega fatlaður. Heilbrigðisyfir- völd þurfa að tryggja nauðsynlegt fjármagn til BUGL svo að hægt verði að veita þessum hópi þjónustu. Stjórnendur BUGL og GRR þurfa að komast að sam- komulagi um eðlilega verkaskiptingu í Ijósi hlutverka stofnananna. 10. Þegar í stað verði skipaður starfshópur um fram- kvæmd fyrirhugaðrar uppbyggingar á geðheilbrigðis- þjónustu við börn og unglinga. Samantekt úr skýrslu vkj Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.