Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Blaðsíða 66
\ Y’ét't Apunktar
Ásta Möller lætur af formennsku
Ásta Möller, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
lætur af formennsku á fulltrúaþingi félagsins sem haldið
verður 20.-21. maí nk. Ásta hefur verið formaður hjúkr-
unarfræðinga í tæp 10 ár, fyrst var hún formaður Félags
háskólamenntaðara hjúkrunarfræðinga í 4 ár og síðan
hefur hún verið formaður sameinaðs félags hjúkrunar-
fræðinga frá stofnun þess 15. janúar 1994, eða í rúm fimm
ár. Ásta tilkynnti þessa ákvörðun sína á fulltúaþingi 1997
er hún var kjörin formaður þriðja kjörtímabilið. í þessu
tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga auglýsir kjörnefnd eftir
framboðum eða ábendingum í stöðu formanns og þurfa
framboð að berast fyrir marslok.
Fjórða árs nemar i hjúkrunarfræði við H.í. heimsóttu
skrifstofu hjúkrunarfræðinga miðvikudaginn 27. janúar.
Þrátt fyrir aftakaveður og slæma færð var mæting góð
og fræddust verðandi hjúkrunarfræðingar m.a. um
starfsemi félagsins, réttindi og skyldur hjúkrunar-
fræðinga, kjarasamninga, lifeyrismál, erlent samstarf
og Tímarit hjúkrunarfræðinga af þeim Ástu Möller
formanni, Vigdísi Jónsdóttur hagfræðingi, Aðalbjörgu
J. Finnbogadóttur hjúkrunarfræðingi og Valgerði
Katrínu Jónsdóttur ritstjóra.
Þann 26. janúar var haldið málþing á vegum fræðslu-
og menntamálanefndar Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Mikil aðsókn var að þinginu,
þáttakendur voru 112 talsins. Á málþinginu var fjallað
um andlegan stuðning hjúkrunarfræðinga við fullorðna
og aðstandendur þeirra og var þingið annað í röð
þriggja málþinga um andlegan stuðning
hjúkrunarfræðinga. Þriðja málþingið verður haldið 19.
mars og fjallar það um andlegan stuðning við
hjúkrunarfræðinga i starfi.
Þann 20. janúar gaf María Pétursdóttir Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga Ijósmynd af Vilmundi Jónssyni fyrr-
verandi landlækni. Myndin var tekin við það tækifæri i
Sigriðarstofu á Suðurlandsbrautinni, en á henni eru frá
vinstri; Vilborg Ingólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur,
landlæknisembættið, Ragnheiður Haraldsdóttir
skrifstofustjóri Heilbrigðisráðuneytisins, Dr. Guðrún
Kristjánsdóttir dósent við Háskóla íslands, Ásta Möller
formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Maria
Pétursdóttir.
66
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999