Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Page 68
'tttiikruAþiviA
Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga verður
haldið dagana 20. og 21. maí 1999 á Grand Hóteli,
Sigtúni 38, og hefst kl. 9:00
Samkvæmt lögum félagsins fer fulltrúaþing með
æðsta vald í málefnum félagsins og skal það haldið annað
hvert ár. Allir félagsmenn eiga rétt á setu á fulltrúaþingi
með málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisrétt eiga stjórn
félagsins og kjörnir fulltrúar svæðisdeilda. Hver svæðis-
deild skal eiga að lágmarki einn fulltrúa á fulltrúaþingi.
Þegar félagatala deilda stendur á hálfu eða heilu hundraði
fær hún næsta fulltrúa sinn. Fulltrúa á þingið þarf að kjósa
svo og varamenn og eru það stjórnir svæðisdeilda sem
bera ábyrgð á kjöri fulltrúa á fulltrúaþing. Þær skulu einnig
samkvæmt lögum félagsins tilkynna kjörnum fulltrúum og
varafulltrúum um kosningu þeirra og tímasetningu full-
trúaþings með a.m.k. 6 vikna fyrirvara eða fyrir 8. apríl
nk. Þá þurfa stjórnir svæðisdeilda að senda kjörbréf
fulltrúa og varafulltrúa, sem réttilega hafa verið kjörnir til
setu á þinginu, til stjórnar félagsins með sama fyrirvara.
Málefni, sem óskast tekin fyrir á þinginu, þurfa að berast
stjórn félagsins með a.m.k. 6 vikna fyrirvara, eigi síðar en
8. apríl, svo og skýrslur svæðisdeilda, fagdeilda og
nefnda félagsins.
Til að fulltrúaþing teljist lögmætt þarf að boða fulltrúa
með a.m.k. 4 vikna fyrirvara eða fyrir 22. apríl og senda
þeim málaskrá. Mikilvægt er að fulltrúar kynni sér vel
málefni þingsins og mæti vel undirbúnir til leiks.
Fundargerð fulltrúaþings verður send atkvæðisbær-
um fulltrúum eigi síðar en 17. júní nk. og skulu athuga-
semdir berast stjórn félagsins fyrir 1. júlí.
Þau mál, sem taka skal fyrir á fulltrúaþingi, eru:
1. Kosning fundarstjóra og ritara, eftir tilnefningu stjórnar.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu
starfstímabili.
3. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
4. Ákvörðun um félagsgjöld.
5. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar næsta starfstímabils.
6. Afgreiðsla starfsáætlunar næsta starfstímabils.
7. Lagabreytingar.
8. Staðfesting starfsreglna fyrir sjóði eða nefndir
félagsins eða breytingar á þeim.
9. Kosning formanns.
10. Kosning annarra stjórnarmanna en formanns, þ.e.
1. og 2. varaformanns, gjaldkera, ritara og tveggja
meðstjórnenda.
11. Kosning tveggja varamanna í stjórn.
12. Kosning tveggja endurskoðenda.
13. Kosning í nefndir félagsins.
14. Önnur mál.
A.J.F.
élagsstörf
Samkvæmt lögum félagsins fer fram kosning í stjórn og
nefndir félagsins á fulltrúaþingi dagana 20.-21. maí 1999.
Stjórn og nefndir félagsins.
Kjörnefnd óskar eftir framboðum eða ábendingum um
hjúkrunarfræðinga í stjórn og nefndir félagsins en þær
eru fræðslu- og menntamálanefnd, kjaranefnd, ritnefnd,
siða- og sáttanefnd, kjörnefnd, orlofsnefnd og vinnu-
verndarnefnd. Einnig er óskað eftir framboðum eða
ábendingum um endurskoðendur félagsins.
Framboð og ábendingar þurfa að berast kjörnefnd
fyrir 8. apríl nk.
Formannskjör
Kjörnefnd félagsins óskar eftir framboðum eða ábending-
um í stöðu formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Kosing fer fram á fulltrúaþingi félagsins dagana 20.-21.
maí 1999. Frambjóðendum gefst kostur á kynningu í
Tímariti hjúkrunarfræðinga.
Æskilegt er að framboð berist kjörnefnd fyrir marslok nk.
Upplýsingar veitir kjörnefndin en einnig vísast í lög
félagsins sem eru í handbók Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga 1998/1999.
Kjörnefndina skipa:
Erlín Óskarsdóttir
Guðrún Thorstensen
Gyða Halldórsdóttir
Sesselja Jóhannsdóttir
vs. 482 1300
vs. 560 1060
vs. 525 1000
vs. 560 1350
hs. 486 3397
hs. 565 6350
hs. 561 4667
hs. 557 2465
Kjörnefndin
68
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999