Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Blaðsíða 38
Réttindi úr starfsmenntunarsjóði: Atvinnurekandi greiðir 0,22% af dagvinnulaum í starfsmenntunarsjóð. Nei.
Greiðsiur úr vísindasjóði: Atvinnurekandi greiðir 1,5% af föstum dagvinnulaunum í vísindasjóð. Nei.
Tryggingagjald: Atvinnurekandi greiðir 5,23% af launum í tryggingargjald. Verktaki þarf sjálfur að standa skil á 5,23% tryggingagjaldi.
Ábyrgð á skilum staðgreiðslu skatta og launatengdum gjöldum: Atvinnurekandi stendur skil á framlögum í lífeyris- sjóði, sköttum og öðrum launatengdum gjöldum. Verktaki þarf sjálfur að standa skil á greiðslum í lífeyrissjóð, staðgreiðslu skatta og öðrum launatengdum gjöldum.
Greiðsluskylda virðisaukaskatts af vinnu: Nei. Já, heilbrigisþjónusta er þó undanþegin virðisaukaskatti.
Réttur til margvíslegrar þjónustu og ráðgjafar af hálfu stéttarfélagsins: Hjúkrunarfræðingar greiða félagsgjöld til félagsins og njóta þess í stað ýmiss konar réttinda, lág- marksákvæða í kjarasamningi auk margvíslegrar þjónustu og ráðgjafar er varða bæði fagleg og stéttarfélagsleg mál. Nei, verktakar eru í raun sjálfstæðir atvinnurekendur og greiða ekki í stéttarfélag. Undantekning frá þessu eru hjúkrunarfræðingar sem starfa skv. samingi félagsins við Tryggingastofnun ríkisins.
Sjúklingatrygging skv. reglugerð nr. 763/2000 Nei. Hjúkrunarfræðingar sem veita heilbrigðisþjónustu og eru sjálfstætt starfandi er skylt að hafa í gildi vátryggingu (sjúklingatryggingu) hjá vátryggingafyrirtæki sem hefur starfsleyfi hér á landi.
Við skoðun þessarar töflu má glöggt sjá að mikill munur
er á réttindum verktaka og launþega hjá ríkinu. Tímakaup
verktaka tekur til að mynda ekki sjálfkrafa breytingum sem
gerðar eru í kjarasamningum. Verktakar þurfa sjálfir að
standa skil á öllum sínum greiðslum, svo sem
launatengdum gjöldum til ríkisins og í lífeyrissjóði. Það getur
því verið mikið hagræði fyrir atvinnurekendur að ráða
starfsmann sem verktaka frekar en sem launamann. Ekki
eru til neinir taxtar vegna vinnu hjúkrunarfræðinga sem
verktakar. Þá er einnig erfitt að meta þá krónutölu sem
bæta þyrfti við taxtalaunin sem jafngildir þeim réttindum
sem talin eru upp í töflunni hér að ofan. Hins vegar má
fyllyrða að þau réttindi jafngilda mörgum tugum prósenta
ofan á laun samkvæmt kjarasamningi. Ekki er óalgengt að
tímakaup útseldrar vinnu háskólamanna sé allt frá 3.000 kr.
upp í ca. 9.000 kr. á klukkustund. Hjúkrunarfræðingar, sem
starfa sem verktakar, þurfa að gæta að stöðu sinni og
krefjast tímakaups sem samsvarar heildarkjörum að
meðtöldum réttindum sem ekki eru lakari en gengur og
gerist hjá hjúkrunarfræðingum sem starfa hjá ríkinu. Kjör
hjúkrunarfræðinga, sem starfa sem verktakar, mega þá ekki
vera lakari en hjá öðrum háskólamönnum.
Hvað er fram undan í kjaramálunum?
Afkvæðagreiðsla um kjarasamning Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga annars vegar og ríkisins hins vegar fór fram
16. ágúst sl. Hann var samþykktur með meirihluta atkvæða eða 77,9% á móti 21,2%. Hann var afturvirkur til 1. júní
2001 og ný launatafla tekur gildi frá og með þeirri dagsetningu. Kjarasamningurinn nær til hjúkrunarfræðinga sem
starfa hjá ríkinu. Þá nær hann einnig til hjúkrunarfræðinga sem ekki eru starfandi hjá ríkinu en hafa í sínum
ráðningarsamningi vísun til þess að laun þeirra taki breytingum sem verða í kjarasamningi Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga og ríkisins. Laun þeirra hjúkrunarfræðinga, sem starfa þannig, eiga því að taka þeirri breytingu sem varð
með nýjum kjarasamningi, þ.e. nýrri launatöflu frá 1. júní sl.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og St. Franciskusspítalinn í Stykkishólmi sömdu 26. september síðastliðinn.
Atkvæðagreiðsla fór fram 3. október og var samningurinn samþykktur einróma.
Sveitarfélög höfðu vísað fjórum umboðum til Launanefndar sveitarfélaga gagnvart Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Félagið samdi við nefndina 27. september og er atkvæðagreiðslu ólokið þegar þetta er skrifað.
Viðræður við sjálfseignarstofnanir hafa verið í gangi og vonast er eftir því að þeim viðræðum Ijúki með kjarasamningi
hið fyrsta. Fréttir af gangi þeirra viðræðna munu birtast á heimasíðu félagsins, www.hjukrun.is.
262
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001