Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Síða 52
J^okÁVÍ Y'ktfní { IjÓSMÓðu
Vormisseri 2001
í vor luku eftirtaldar Ijósmæður embættisprófi í Ijósmóðurfræði frá Háskóla íslands.
Nafn Heiti lokaverkefnis Leiðbeinandi:
Birna Ólafsdóttir Áhrif mænurótardeyfingar í fæðingu: Fræðsla til barnshafandi kvenna. Árdís Ólafsdóttir
Hulda Þórey Garðarsdóttir Öryggi og upplýst val kvenna - hugmyndir um framtíð fæðingarþjónustu á Húsavík. Ólöf Ásta Ólafsdóttir / Sigfríður Inga Karlsdóttir
Karitas Halldórsdóttir Tvíburafæðing. Fæðingarmáti og umönnun í fæðingu. Árdís Ólafsdóttir
Kristbjörg Magnúsdóttir Meðferð á þriðja stigi fæðingar og blæðingar eftir fæðingu. Ólöf Ásta Ólafsdóttir
María Þórisdóttir Aðferðir við að vernda spöng í fæðingu. Helga Gottfreðsdóttir
Ragnhildur Reynisdóttir Axlarklemma: Greining og meðferð. Ólöf Ásta Ólafsdóttir
Tinna Jónsdóttir Fæðing eftir fyrri bráðakeisaraskurð. Helga Gottfreðsdóttir
Unnur B. Friðriksdóttir Tvíburameðganga: Upplifun feðra. Ólöf Ásta Ólafsdóttir
Víðurkenning fyrír framúrskarandi námsárangur
Herdís Herbertsdóttir, hjúkrunarfræðingur, útskrifaðist í maí sl. frá San Francisco State University með Master of
Business Administration (MBA) gráðu. Við útskriftina fékk hún sérstök verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur.
Hún útskrifast með „college honors" sem þýðir að prófessorar viðskiptadeildarinnar töldu hana skara mest fram úr af
þeim rúmlega 220 nemendum sem útskrifuðust með MBA-gráðu frá skólanum síðastliðið vor. Þetta er mesti heiður
sem skólinn veitir.
Herdísi var einnig boðin aðild að alþjóðlegu heiðurssamfélagi viðskiptanema, Beta Gamma Sigma, en sá heiður
veittist vorið 2001 einungis 0,8% allra viðskiptafræðinema í framhaldsnámi sem höfðu tilskilda lágmarkseinkunn.
Herdís útskrifaðist frá námsbraut í hjúkrunarfræði HÍ árið 1983 og vann nær samfleytt frá útskrift á Borgar-
sþítalanum í Fossvogi/Sjúkrahúsi Reykjavíkur; í fimm ár áður en hún fór til meistaranáms starfaði hún sem deildarstjóri
á skurðlækningadeild B6. Herdís Herbertsdóttir, hjúkrunarfræðingur, hefur verið ráðin deildarstjóri frávikagreiningar og
rekstrareftirlits á fjármálasviði skrifstofu fjárreiðna og upplýsinga.
276
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001