Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Page 17
FRÉTTAPUNKTAR
að hækka launin núna ef við megum ekki fara í verkfall? Eg
held að það séu ýmis ráð, uppsagnir eru vænlegri leið tel
ég, hjúkrunarfræðingar geta unnið sjálfstætt, stofnað eigín
fyrirtæki eins og þeir hafa þegar gert. Þá er hægt að fá
útlendinga til starfa sem krefjast hærri launa eins og þegar
dönsku hjúkrunarfræðingarnir voru ráðnir sl. sumar, þá
þykir kannski vænlegra að greiða okkar hjúkrunarfræðingum
samsvarandi laun. Launabarátta er erfið og verður aldrei leyst
í eitt skipti fyrir öll."
Bergljót segist ánægð með að hafa talað gegn verkfallsrétti
á fundi félagsins þegar verið var að berjast fyrir þessum
rétti. „Þá komu fremstu verkalýðsleiðtogar þjóðarinnar á
fundinn, Kristján Thorlacius og Bergmundur Guðlaugsson,
ég var ákveðin í því að vera ekki ein af þeim sem tala bara
á kaffistofum, hafði greinilega þroskast frá því ég var í
forskólanum. Þeir kváðu mig auðvitað í kútinn þessir snillingar
og sögðu m.a.: „Já, já, það er ágætt að tala um rósrauðan
heim eins og hún gerir þarna hún Bergljót," og annað í
þeim dúr, gerðu góðlátlegt grín að mér. Auðvitað gerði ég
mér þá Ijóst og geri ekki síður í dag að raunveruleikinn er
harður húsbóndi en ekki rósrauður. „Hálsaskógar“-pólitíkin
er góð í Hálsaskógi en dugar samfélagi manna ekki þó sumir
stjórnmálaflokkar tileinki sér hana. Engar undirtektir fékk
ég, enginn púaði á mig, mér var ekki vísað á dyr, en lítið og
dræmt var klappið að loknu mínu innleggi."
Bergljót segist í störfum sínum oft hafa þurft að sitja báðum
megin við borðið. „Fyrsta skylda stjórnenda er að gæta
hagsmuna skjólstæðinga og fara að lögum og reglum sem
stofnuninni eru sett. Ég bar ábyrgð á að þeir fengju faglega
og trausta þjónustu en til þess þarf vel menntað og traust
starfsfólk sem krefst að jafnaði hærri launa. Mér bar samt
fyrst og fremst að sitja skjólstæðinga- og stofnunarmegin við
borðið en ekki stéttarfélags míns þegar einhverjar aðgerðir
voru í gangi eins og stundum gerðist, t.d. hópuppsagnir,
þannig að þetta er kannski svolítið mótsagnakennt. Þetta eru
mín afskipti af kjaramálum."
Fór í mál við víð Lífeyrissjóð
hjúkrunarfræðinga
Bergljót var ein þriggja kvenna sem kjörnar voru heiðursfélagar
á síðasta fulltrúaþingi, hinar eru Pálína Sigurjónsdóttir og
Sigþrúður Ingimundardóttir sem báðar hafa verið kynntar
hér í tímaritinu. „Það sýnir víðsýni félagsmanna og virðingu
fyrir málfrelsi og gagnrýni," segir Bergljót og bætir við að hún
hafi farið í mál við Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga. Ástæðan
fyrir málaferlunum var sú að 1. janúar 1997 var felldur niður
lífeyrisréttur sem hjúkrunarnemar áunnu sér þau þrjú ár sem
þeir voru í námi og tryggður var í lögum, með þeim afleiðingum
að eftirlaunin lækkuðu um 4,8%. „Þessi lífeyrissjóðsréttur var
meðal fárra fríðinda sem við nutum á námsárunum, eins og
húsnæði, fatnaður, fæði o.fl., en að sjálfsögðu gátum við
ekki greitt í sjóðinn þar sem við höfðum engin lauri, aðeins
Stjórnarfundur SSN í Noregi
Dagana 28.-30. ágúst var haldin stjórnarfundur í SSN,
Sygeplejernes Samarbeit i Norden, eða Samstarf
norrænna hjúkrunarfræðinga.
Þrír fulltrúar frá íslandi sóttu fundinn sem að þessu sinni
var haldin á sjóleiðinni frá Þrándheimi til Tromsö.
Á fundinum voru rædd mál er varða sameiginlega
hagsmuni hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndunum.
• Hvert land kynnti það átak sem unnið hefur verið við
kynningu á tímaritinu Várd i Norden. Hér á landi hefur
átakið skilað auknum fjölda áskrifenda.
• Ritstjóri Várd i Norden tilkynnti að hún hygðist láta af
störfum en ætlar að sinna starfinu þar til eftirmaður
hennar verður fundinn.
• Næsta ráðstefna, sem SSN stendur fyrir, verður haldin
í Reykjavík í október 2007 en þá verður fjallað um
launa- og réttindamál hjúkrunarfræðinga.
• ( byrjun árs 2006 var sett á stofn nefnd innan SSN
sem er ætlað að skoða hvaða gæðavísa má nota á
Norðurlöndunum til þess að meta gæði í hjúkrun. Á
fundinum var ákveðið að óska eftir því að þessi nefnd
haldi áfram störfum og komi með tillögur um hvernig
best er að haga vinnu sem þessari og taki saman
hvaða gæðavísa má nota. Ágústa Benný Herbertsdóttir
situr í þessari nefnd fyrir hönd FÍH.
V.H.
Athugasemd
í síðasta tölublaði gleymdist að geta höfundar pistils um
öryggi sjúklinga, en hann er Jan Thomasson og pistillinn
birtist áður í Várdfacket.
V.K.J..
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006
15