Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Side 32
GEÐHJÚKRUN OG GEÐORÐIN 1
0
Geðorð nr. 8
„Gefstu ekki upp, velgengni í
lífinu er langhlaup"
Öll dreymir okkur um velgengí í lífinu.
En hvaö er velgengni? Eðlilega er
skilgreiningin mjög einstaklingsbundin
og fer auk þess eftir menningar- og
samfélagslegu samhengi hvers og eins.
Að vera ungur, fallegur, grannur og ríkur
er í augum margra dæmi um mikla
velgengni. Annars staðar er velgengni
mæld í kílóum og aldri. Töfralæknar sums
staðar ná fyrst velgengni eftir tvö tímabil
með ofskynjunum og ranghugmyndum,
hér á landi þykir það ástand ekki merki
um mikla velgengni eða glæsta framtíð.
Jafnvel að vinna við geðhjúkrun var á
tímabili talið mjög hallærislegt til lengdar
og nokkuð sem maður þurftí að vaxa upp
úr eða gerði að ævistarfi vegna þess að
maður dugði ekki til annars. Þetta hefur
sem betur fer breyst en leiðin hefur oft
verið ansi grýtt fyrir marga. Þegar maður
er ungur og óþolinmóður er erfitt að bíða
eftir velgengninni, ég tala nú ekki um
þegar maður er nýkominn úr námi og
vill breyta heiminum og geðheilbrigðis-
þjónustunni. Þá er eðlilegt að þolið
sé ekki mikið, maður rekist á ýmsar
hindranir og gefist jafnvel upp. Gefist
upp á hugmyndafræðinni, áherslunum,
laununum og starfsaðstöðunni sem
manni fannst bara alveg út í hött. En í
uppgjöfinni geta líka falist tækifæri til að
skoða aðrar leiðir og ná árangri á öðrum
vettvangi. Við ráðleggjum oft öðrum að
horfast í augu við ástandið, skoða aðra
möguleika og viðbrögð. Ýmsar leiðir eru
til velgengní og við þurfum að vera
opin og sveigjanleg gagnvart þeim, fyrir
okkar hönd og sjúklinganna. Kannski
felst velgengi okkar sem fagfólks ekki
í stærri lyfjaherbergjum eða tæknilegri
hjúkrunargreiníngu. Velgengnin felst að
mínu matí í að við verðum sýnilegri,
bæði gagnvart njótendum þjónustunnar
og út á við, þorum að taka afstöðu,
tökum uppbyggilegri gagnrýni en séum
ekki hrædd við að hrósa hvert öðru
þegar vel er gert. Við skulum vera með
í þeim breytingum sem fara í hönd í
heilbrígðiskerfinu, fræðast og vera með í
umræðunní um nýjar leiðir, sjálfseflingu og
aukið val njótenda og aðstandenda. Þar
leikur sjálfsmat okkar sem meðferðaraðila
stórt hlutverk og er kannski lykilatriði f
velgengni okkar.
Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræð-
ingur og forstöðukona í Vin, athvarfi
Rauða kross íslands fyrir geðfatiaða.
FRÉTTAPUNKTUR
Leiðbeiningar til að fyrirbyggja mismunun gefnar úr af Dansk
sygeplejerád, (DSR).
Danska hjúkrunarfélagið hefur gefið út bækling með leiðbeiningum um hvernig
koma megi í veg fyrir mismunun á vinnustað. Það er stefna danska félagsins
að í heilbrigðiskerfinu sé pláss fyrir alla og því ekki hægt að líða mismunun
sökum ólíks menningarlegs bakgrunns, kynþáttar, húðlitar, trúarbragða
og fleira. Þess vegna telur félagið mikilvægt að vinna markvisst að því að
fyrirbyggja mismunun. Félagið hefur einnig gefið út bækiing um fjölbreytileika
starfsfólks í heilbrigðiskerfinu. Þar er komið inn á rétt hvers einstaklings til að
vera sá sem hann er og að vinnustaðurinn og samfélagið geti lært að nýta sér
þennan fjölbreytileika. Bæklingana má fá á heimasíðu DSR, www.dsr.dk.
V.H.
30
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006