Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Síða 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Síða 35
HUERNIfi BEN6UBP Minheilsa,mínáDyrgð Fyrr á þessu ári stofnuðu þrjár vinkonur, sem allar eru hjúkrunarfræðingar, BAS-hópinn. Markmið þeirra er að ganga 63 km til styrktar rannsóknum og meðferð á brjóstakrabbameini í AVON WALK FOR BREAST CANCER í New York nú í október, Þátttökugjald í göngunni rennur til rannsókna og meðferðar á brjóstakrabbameini en það fé, sem BAS-hópurinn safnar umfram þátttökugjaldið, rennur til Samhjálpar kvenna sem eru samtök til stuðnings konum sem greinast með brjóstakrabbamein. BAS-stelpurnar, þær Bríet Birgisdóttir, Soffía Eiríksdóttir og Anna I. Arnardóttir, hafa stundað æfingar í Laugum og náð góðum árangri og leggja áherslu á að besta forvörnin sé að þekkja sinn eigin líkama og vera meðvitaður um eigin heilsu. Frekari upplýsingar um BAS-hópinn má finna á heimasíðu hópsins, www.bas.is. FRETTAPUNKTUR Hjúkrunarfræðinemar vilja sterkari stöðu - Ásrún Ösp Jónsdóttir kjörin varaformaður 5.-8. júli sl. var Kvæsthuset, sem er höfuðstöðvar Dansk sygeplejerád, Danska hjúkrunarfélagsins fullt af hjúkrunarnemum frá 13 löndum sem héldu þar árlegan aðalfund ENSG. Á fundinum var nafni samtakanna breytt í ENSA sem stendur fyrir European Nursing Student Association, Samtök Evrópskra hjúkrunarfræðinema. Fráfarandi forseti samtakanna er Staale Skaar frá Danmörku en nýkjörinn forseti Barry McConaghy frá írlandi og varaforseti Ásrún Ösp Jónsdóttir frá íslandi. Auk Ásrúnar sótti Díana Dröfn Heiðarsdóttir fund samtakanna fyrir íslands hönd. Nemar frá 12 Evrópulöndum auk Kanada höfðu valið að eyða fimm heitum júlídögum saman í Kaupmannahöfn. Eitt brýnasta efnið á dagskrá fundarins var framtíð samtakanna. „Samtökin þurfa helst að vera virkari en þau eru núna þannig að þau hafi slagkraft," segir Staale Skaar. Það hafa verið svolítil vandamál tengd því að halda uppi virkum samskiptum milli einstakra aðildarlanda. Ástæðan er annars vegar sú að samtökin hafa ekki yfir að ráða miklum fjármunum og hins vegar að nám tekur enda hjá flestum. Það er þess vegna mikil endurnýjun innan félagsins og enginn með langa reynslu. Af þessum sökum hefur verið ákveðið að mynda yfirnefnd sem getur gefið samtökunum fastari grunn að standa á. Agnese Bergmane (19 ára) og Olga Kuligina (20 ára) eru báðar frá Lettlandi sem sendi fiú í fyrsta sinn fulltrúa á ársfund ENSG. Einn námsdagur í hverri viku Ársfundurinn hefur einnig haft önnur efni á dagskránni og beint augum sínum að faglegum þáttum. M.a. bókuðu fundarmenn afstöðu sína varðandi rétt nema í verknámi. „í Danmörku fá nemar einn námsdag í viku. Mér finnst sjálfri að þannig eigi það að vera í allri Evrópu. Þannig getur maður kafað ofan í það sem maður hefur lært,“ segir Staale Skaar. Fleiri karlmenn í fagið Kynjapólitík var einnig á dagskrá fundarins. Þetta er efni sem augljóslega er Staale hjartans mál. „Eins og þetta er nú eru meira en 95% hjúkrunarfræðinga konur. Maður gæti gert mun meira til að hvetja fleiri karla í námið. Margir þeirra sem byrja í náminu koma úr hernum, þeim þykir gaman að vinna með fólki og koma þess vegna. Þarna tel ég að hægt sé að sækja meira af karlmönnum i fagið,“ segir Staale Skaar að lokum. Samtökin gera árlega skýrslu sem fjallar um laun og vinnuaðstæður í hverju landanna. V.H. Vefur ENSA er www.nursingstudents.eu. Tímarit hjúkrunarfræöinga - 4. tbl. 82. árg. 2006 33

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.