Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Qupperneq 23

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Qupperneq 23
Friðrikka Guðmundsdóttir, Fríða Rut Baldursdóttir og Hlíf Hansen, rikkagu@simnet.is SKURÐHJÚKRUNARFRÆÐINGAR Á RÁÐSTEFNU í STAFANGRI Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga mun kynna starfsemi sína betur í næsta tölublaði en gefa hér forsmekk með frásögn af ráðstefnu í Noregi. Frá vinstri: Svanhildur Jónsdóttir, Friðrikka Guðmundsdóttir, Hlíf Hansen og Friða Rut Baldursdóttir. Norrænráðstefnaskuröhjúkrunarfræöinga (NORNA) var haldin í Stafangri í Noregi dagana 21. til 23. maí sl. Þetta var í annað sinn sem þessi ráðstefna er haldin, sú fyrsta var í Uppsölum í Svíþjóð árið 2005. Yfirskrift ráðstefnunnar í Stafangri var „Perioperativ kompetanse i Norden - utvikling, erfaring og kommunikasjon". Ráðstefnan var haldin í Stavanger Forum sem er glæsilegt ráðstefnusvæði. Allur aðbúnaður og skipulag var til fyrirmyndar. Dagana áður en ráðstefnan var sett fóru flugvallastarfsmenn í Noregi í verkfall þannig að um tíma leit alls ekki vel út með að þátttakendur kæmust til Stafangurs. Ýmsir urðu að leggja á sig langt ferðalag eftir alls kyns krókaleiðum til að ná á réttum tíma, þar á meðal þátttakendurnir frá íslandi. Ráðstefnan er skipulögð sameiginlega af stjórnum fagdeilda skurðhjúkrunar- fræðinga á íslandi, í Noregi, Svíþjóð, Danmörkuog Finnlandi. Fyrirlestrarnirvoru mjög góðir og áhugaverðir. Svanhildur Jónsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur flutti fyrirlestur tengdan meistararitgerð sinni í mannauðsstjórnun frá HÍ og var yfirskriftin „Human resource management in a technical environment. Experience, competence and communication." Fyrir- lestrana má skoða á www.NORNA.com. Á Norðurlöndunum eru nú um 7000 skurðhjúkrunarfræðingar þannig að markhópurinn er stór. Það er von okkar sem höfum tekið þátt í að skipuleggja þessar fyrstu ráðstefnur að þær eigi eftir að vaxa og dafna og verða vettvangur fræðslu og samskipta. Þátttakendum á ráðstefnunni var boðið að heimsækja Safer utdanningssenter (www.safer.net/welcome.htm). Þetta eru þjálfunarbúðir þar sem líkt er eftir raun- verulegum aðstæðum á vettvangi og inni á stofnunum. Þarna er boðið upp á þjálfun fyrir heilbrigðisstarfsfólk, sjúkra- flutningamenn, hjálparsveitir og fleiri í hermi. Þetta er mikið notað við alls konar þjálfun og „sjúklingarnir" sýna viðbrögð við réttri og rangri meðferð. Deildir eða stofnanir geta pantað tíma fyrir sitt starfsfólk til að þjálfa sig í ákveðnum atriðum, til dæmis móttöku sjúklinga sem lent hafa í slysi, meðferð vegna krampa hjá ungbarni eða hjartastoppi, og fór þessi seinni þjálfun fram í sjúkraflutningabifreið sem þarna var. Einn morguninn notuðum við íslendingarnir til að heimsækja skurðdeild Háskólasjúkrahússins í Stafangri. Sjúkrahúsið þjónar 300.000 íbúum, þar starfa meira en 5500 manns, þar af rúmlega 150 á skurðdeildinni. Á aðalskurðganginum eru 14 skurðstofur, auk þess eru á deildinni 4 augnskurðstofur og 13 dagdeildarskurðstofur. í tengslum við sjúkrahúsið var stórt sjúklingahótel og þangað fara margir aðgerðarsjúklingar samdægurs, til dæmis eftir aðgerð vegna fleygskurðar. Ráðstefnur af þessu tagi eru ekki síst mikilvægar til að efla tengsl, skiptast á skoðunum og upplýsingum. SkurðhjúkrunarfræðingaráNorðurlöndum eiga margt sameiginlegt, þeir fást við sömu hluti í starfi, menntunin er svipuð og áherslur og markmið þau sömu. Næsta NORNA-ráðstefnan verður haldin á íslandi 25.-27. maí árið 2011 og er undirbúningur þegar hafinn. Mikill hugur var í skurðhjúkrunarfræðingum á hinum Norðurlöndunum að sækja þessa ráðstefnu enda ísland eftirsótt land fyrir ráðstefnur. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.